Sagnir - 01.06.1996, Blaðsíða 70

Sagnir - 01.06.1996, Blaðsíða 70
..VlLBQBG.AUÐ.UB..ÍSLElFSQÓniB. Líkneski úr Ögmundarbrík frá Skálholti. Ögmundur biskup Pálsson útvegaöi til Skálholtskirkju veglega altarisbrík, prýdda máluðum trélíkneskjum. Hann kallaði ordinanzíuna „stora uillu og uantru" með „afskapligum illuirkium" og bað menn um að aðhyllast ekki villukenningar Lúthers. samþykkta (Rezefi).9 Tilgangur og markmið hinnar siðbreyttu kirkju- skipunar var, að mati Jorgens Stenbæk ... at skabe læremæssig, liturgisk og administrativ enhed efter den foregáende tids kirkelige og politiske kaos.10 I þessum hluta er niðurraðað i 16 liðum hinum ýmsu útvortis þáttum kirkjunnar, allt frá messuembætti, prédikun, skírn, hjónavígslu og greftrun og til þess hvernig prestar skuli hegða sér við dauðadæmda glæpamenn, um fræðslu yfirsetukvenna og barnshafandi kvenna og framkomu gagnvart þeim konum, sem fyrirfara af vangæslu börnum sínum óviljandi í sænginni. I þessum greinum birtist vilji konungs til að koma fyrir tilstilli kirkjunnar reglu á hin ýmsu svið mannlífsins frá vöggu til grafar. I greinunum um konurnar kemur augljós- lega fram sá vilji að hafa hönd í bagga með meðgöngu og fæðingu, þeim mál- efnum, sem gera má ráð fyrir að hafi frá alda öðli verið í umsjá kvenna og tilheyrt þeirra reynsluheimi og í vissum skilningi þeirra valdsviði. Ekki eru öll kurl komin til grafar um, hvað þessi ákvæði merktu í raun fyrir konur á 16. öld. Við siðbreytinguna var lögð aukin áhersla á prédikunina, sem byggð var á ritningunni, en hún var samkvæmt kenn- ingu Lúthers um „sola scriptura" hinn eini grundvöllur, sem hægt var að byggja þekkingu á vilja guðs. Tilgangur prédik- unarinnar var sá, að söfnuðurinn fengi yfir sig anda guðs og öðlaðist eilífa sáluhjálp, Við prédikunina kom prédik- arinn í stað Krists og studdist þessi skilningur við 10. kapitula 16. vers Lúkasarguðspjalls, þar sem stendur: Sá sem á yður hlýðir, hlýðir á mig, og sá sem yður hafnar, hafnar mér. En sá sem hafnar mér, hafnar þeim er sendi mig. Slík áhersla var lögð á gildi orðisins, að það fékk nánast vægi sakramentis. I lútherskum kirkjum varð algengt, að prédikunarstóllinn væri fyrir ofan altarið til þess að hnykkja enn frekar á mikilvægi prédikunarinnar. Þess má geta hér, að þessi háttur var hafður á í kirkjunum í Viðey, Bolungarvík og i Snóksdal. Sú litúrgia guðsþjónustunnar eftir Jóhannes Bugenhagen, sem fylgdi með kirkjuordinanziunni frá 1537, var sniðin eftir kaþólskri messuskipan nema að þvi leyti, að messufórninni var sleppt, en prédikuninni bætt við. Þótt ýmis þeirra atriða, sem hér hafa verið rakin, hafi þótt nýstárleg á sinni tíð, þá höfðu þau samt engar grund- vallarbreytingar á stjórnskipan ríkisins i för með sér. Akvæði þau i kafla nr. V í kirkju- ordinanziunni, sem fjalla um skipun klerka i embætti og stöðu þeirra gagn- vart veraldlegum yfirvöldum, sem og greinin um efnahagslegan grundvöll biskupsembættisins varpa ljósi á þær stjórnskipunarbreytingar, sem urðu við siðbreytingu. Til þess að öðlast skilning á þessum byltingarkenndu breytingum verður að hafa i huga verksvið og pólítískt vægi kaþólskra biskupa hér- lendis fyrir siðbreytingu. Fyrir utan litúrgískar skyldur og kirkjulegt dóms- vald veittu islensku biskuparnir á Hólum og í Skálholti stærstu fyrirtækjum Iandsins forstöðu. Átti Hólastóll um 350 jarðir, en Skálholtsstóll um 274 jarðir.11 Þeir báru ábyrgð á rekstri stólseignanna, innheimtu biskupstíundar, leigu og landskulda i formi vaðmála, smjörs og annarra gjaldgengra vara. Víða um land voru útibú frá biskupsstólunum, þar sem þessum verðmætum var safnað saman. Á 16. öld áttu biskupsstólarnir skip, sem gengu til Noregs. I Biskupa atmálum Jóns Egilssonar er greinagóð lýsing á efnahagsumsvifum Ogmundar Pálssonar Skálholtsbiskups, útgerð, útflutningi, efnisútvegun og byggingar- framkvæmdum, er hann byggði nýja dómkirkju i Skálholti eftir kirkju- brunann, sem talinn er hafa orðið 1527.12 Samkvæmt hefð bar honum að skila biskupsstólnum af sér í eins góðu ástandi eins og hann hafði tekið við honum. Biskuparnir höfðu umsjón og ábyrgð á stærstu og glæsilegustu bygg- ingum Iandsins og gengdu í þvi samhengi embætti húsameistara ríkisins. I þeirra umsjá var skjalasafn biskupsembættisins. Þeir höfðu á að skipa fjölmennu starfs- liði og höfðu þeir um sig lifvörð, svonefnda biskupssveina, sem var vísir að her og löggæsluliði. Samkvæmt liknarhefð kaþólsku miðaldakirkjunnar höfðu biskupar forystuhlutverki að Sagnir 1996 - 70
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.