Sagnir - 01.06.2004, Qupperneq 64

Sagnir - 01.06.2004, Qupperneq 64
ORLAGASAGA ÚR ÍSLENSKRI SVEIT Erfiðlega hefur gengið fyrir Arnbjörgu að fóta sig innandyra vegna blindu sinnar. LEYFI VEITT TIL SKILNAÐAR AÐ BORÐI OG SÆNG Vegna Napóleonsstyrjalda dróst afgreiðsla málsins á langinn og eftir brottför Jörundar hundadagakonungs frá íslandi árið 1809 var Magnús Stephensen skipaður í embætti stiftamtmanns. Hann veitti Jóni og Ambjörgu leyfi til skilnaðar að borði og sæng í apríl 1810 og setti eftirfarandi skilmála varðandi framfærslu Arnbjargar: Bágborið ástand heimilisins og ýkt barnaómegð lýsti örvæntingu fjölskyld- unnar en örlög þeirra voru undir því komin að þau hefðu dygga ráðskonu sem gat annast bæði Arnbjörgu og bömin. At han forsörger sin Kone og fælles Börn vel og personligen, saalænge hun forventer fælles Boe udskiftet og deres Ægteskab aldeles ophævet eller Boet kommer til lovlig Skifte og Deling.32 Jón fékk því aðeins leyfi til skilnaðar að borði og sæng en slíkt leyfi veitti honum ekki rétt til að kvænast aftur. Fyrst varð hann að fá lögskilnað sem fékst eingöngu með því að fara dómstólaleiðina með áðurnefndum ástæðum en konungur einn gat þó veitt slík leyfi eins og áður segir. JÓN SKRIFAR TIL DANAKONUNGS I október 1810 skrifaði Jón því bréf til konungs þar sem hann bað um allranáðarsamlegt leyfi til að mega skilja við konu sína og gift- ast ráðskonu sinni, Guðrúnu Oddsdóttur, sem verið hafði konu hans og börnum svo góð. Jón gerði í fyrstu grein fyrir fengnu leyfi frá amtmanni um skilnað að borði og sæng við Arnbjörgu konu sína og vitnaði síðan í samkomulag þeirra hjóna um að hann mætti giftast ráðskonu sinni ef hann lofaði að framfæra konu sína til dauðadags. Jón sagðist ekki geta séð að það væri á móti náttúruleg- um lögum að halda tvær konur á heimilinu svo framarlega sem þær væru báðar samþykkar því og lofi hann að framfæra þær báðar." Meðfylgjandi var einnig bréf sýslulæknisins sem vottaði hið dap- urlega heilsufar Arnbjargar og afrit af leyfisbréfi Magnúsar Steph- ensen, frá árinu 1810, fyrir aðskilnaði að borði og sæng að ógleymdum samningi þeirra hjóna. Bágborið ástand heimilisins og ýkt barnaómegð lýsti örvæntingu fjölskyldunnar en örlög þeirra voru undir því komin að þau hefðu dygga ráðskonu sem gat annast bæði Arnbjörgu og börnin. Ef svo færi að þau misstu ráðskonuna stæðu þau frammi fyrir þeim mögu- leika að búið yrði bjargþrota og fjölskyldan myndi lenda sundruð á sveitinni. Sveitastjórnir höfðu samkvæmt lögum rétt til að ráðskast með ómaga en á 18. og 19. öld var mjög algengt að fjölskyldur væru leystar upp ef þær urðu bjargþrota. Sagnfræðingurinn Gísli Ágúst Gunnlaugsson telur að neikvætt viðhorf almennings til 62 SAGNIR 24 ÁRGANGUR '04 H ÓNASKILNAÐUR Á F Y R R H L U T A 9 A
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Sagnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.