Sagnir - 01.06.2004, Síða 77

Sagnir - 01.06.2004, Síða 77
fluttist hún árið 1783. Þótt innihald bréfanna á báðum tímabilum sé merkilegt þá er efni þeirra svo ólíkt að ótrúlegt er að um sömu manneskjuna sé að ræða. Á fyrra tímabilinu fjalla bréfin mest um búskap og fjármálabasl. Á seinna tímabilinu eru bréfin m.a. frá- j bærar heimildir um ísland á styrjaldartímabilinu, frá frönsku bylt- ingunni 1789 allt til loka Napóleonsstyrjalda 1815. Þrjú sendibréf hafa fundist til Guðrúnar og voru tvö þeirra frá ! föður hennar, Skúla Magnússyni, rituð 1773 og 1783 en það þriðja frá Jóni Ásgrímssyni ritað 1778.10 „GÓÐKVENDI GÖFUGT VAR...“ Guðrún Skúladóttir eldri fæddist 17. janúar 1740” en lést í Viðey á sjötugasta og sjöunda aldursári þann 20. júní 1816. Samkvæmt ^ óprentuðu handriti eftir Hannes Þorsteinsson ólst Guðrún að ein- hverju leyti upp hjá hjónunum í Miðgrund í Skagafirði og erfði síð- an jörðina eftir þau.12 Guðrún giftist Jóni Snorrasyni sýslumanni í Skagafirði 23. júlí j 1760 þá tvítug að aldri „og hélt Skúli veizlu þeirra virðulega í Við- ey og gerði dóttur sína vel úr garði.“13 Svo vel að Guðrún fékk tvö hlutabréf í Innréttingunum í heimanmund frá föður sínum og er hún eina konan sem vitað er um að hafi átt þar hlutabréf.14 Talsverður aldursmunur var á þeim hjónum eða sextán ár þar : sem Jón var fæddur 1724 en Guðrún árið 1740. Jón lést 47 ára að j aldri þann 15. júní 177115 eftir aðeins ellefu ára hjónaband þeirra. Allar heimildir eru samhljóða um að þau hafi ekki átt nein börn sem lifðu.16 Eftir að Guðrún varð ekkja bjó hún áfram í Skagafirði allt þar til hún fluttist suður og settist að hjá föður sínum í Viðey árið 178317 þá 43 ára að aldri. Jón var sonur þeirra Snorra Jónssonar prests og Kristínar Þor- j láksdóttur að Helgafelli. Hann lauk stúdentsprófi frá Skálholts- j skóla 1747 og fór þaðan í vinnu til Finns Jónssonar verðandi bisk- ups. Árið 1752 hélt Jón til náms í Kaupmannahöfn og útskrifaðist ; þaðan þremur árum seinna. Hann skrifaði m.a. akuryrkjuritið De ; agricultura Islandorum (1757) en það er á latínu. Um Jón var þó j sagt að hann hafi verið „lærður maður og vel að sér, en hinn mesti j drykkjusvoli og fóru embættisverk hans öll í ólagi og fjárskil með versta móti.“18 Jón varð sýslumaður í Hegranessýslu þann 6. júní 1757 og hélt hann þeirri sýslu til æviloka. Jón og Guðrún bjuggu fyrst á Ökrum til ársins 1764 en þaðan fóru þau að Hofi á Höfðaströnd.19 Hjónaband þeirra var ekki gott 1 og má telja að það hafi ekki síst verið vegna ráðskonu þeirra hjóna, j Ingibjargar Ólafsdóttur,20 en við hana hafði Jón haldið fyrir hjóna- band sitt og hélt því áfram eftir að hann kvæntist.21 „Hafði [Guð- rún] erft svo mikið af skaplyndi föður síns, að hún þoldi eigi að virðingu sinni væri misboðið, enda þótti hún kvenskörungur og j merkiskona um flesta hluti."22 Ef til vill hefur sambúð þeirra goldið þess að hjónabandið var barnlaust. Ekki eru heldur til heimildir um að ráðskonan hafi orðið ófrísk eftir Jón. LÆRDÓMSKONA HIN MESTA í ævisögu Skúla eftir Jón Aðils segir um menntun barna hans: Veitti Skúli börnum sínum öllum hið bezta uppeldi og voru dætur hans betur að sér í ýmsum greinum, en títt var um íslenzkar konur á þeim tímum. Einkum var Guðrúnu eldri... við brugðið eigi ein- j ungis fyrir hannyrðir, heldur jafnvel fyrir lærdóm. Kunni hún bæði dönsku og þýzku og var víðlesin, og þótti fáheyrt um þær mundir.23 j Enn fremur segir í ævisögu séra Jóns Steingrímssonar eldprests j um Guðrúnu: Það fyrsta eg catechiseraði, varð fyrir mér af ungmennunum Guðrún dóttir Skúla fóveta. Var hún svo skörp, að ei sá fyrir, hvor betur mundi hafa, þá eg spurði út úr, svo eg mátti þá strax leggja að mér að studera þá iðju, að ei yrði til minnkunar.24 Af þessu má sjá að Jón var fermingarfræðslukennari Guðrúnar25 Það er greinilegt að mönnum þótti mikið til koma hversu vel lesin og greind Guðrún var. Bréf Guðrúnar eru skrifuð á ótrúlega góðri íslensku miðað við / .6ÓÐKVENDI GÖFU hvað önnur sendibréf frá sama tíma eru yfirleitt dönskuskotin. Það kemur þó fyrir að inn slæðast orð sem eiga danskan uppruna eins og sjá má hér: „sendi þér nokkuð, til að láta farva,26 fyrir mig, og..."27 Eins og fram hefur komið nutu öll börn Skúla þeirra forréttinda að menntast og þá einnig stúlkurnar hvort sem því var að þakka að hann var landfógeti eða hversu óvenjulegur maður hann var. Ekki fer á milli mála að Guðrún bar af öðrum íslenskum konum á þess- um tíma fyrir lærdóm sinn og þekkingu. Eftirfarandi tilvitnun bendir einnig til þess að Guðrún hafi verið vel að sér í íslendinga- sögunum. í bréfi til Sveins Pálssonar læknis frá 16. ágúst 1789 ritar hún: „og er ég svo eins og nafna mín, þeim verst, ég unni mest...“2s Þessi fleygu orð sótti Guðrún til nöfnu sinnar Ósvífursdóttur í Lax- dælu.29 „HÚN VAR HANDVYRÐAKONA MIKIL“30 Guðrún var þekkt fyrir fleira en menntun sína og sagði Espólín þetta um hana í Sögu frá Skagfirðingum: „Hún var handvyrðakona mikil.“ Handavinna hennar var m.a. gerð að umtalsefni í erfiljóði sem ort var um hana: Handiðnir, hugvit, dygð og hárra kosta nægð lands útum breiða bygð bárust með hennar frægð; hún bæði kunni’ og kenndi kvennprýðina með spekt og þægð.31 I texta á undan erfiljóðinu segir: „Hún kunni handvirðir kvenna bezt á íslandi um sína daga.“32 Guðrún þótti mjög fær hannyrða- kona og má enn fremur sjá það í bréfi frá Guðríði Magnúsdóttur til bróður síns Finns Magnússonar þar sem hún skrifar um hannyrðir dóttur sinnar: „ekkert hefi ég séð eins fallegt, hvorki eftir Guðrúnu sálugu Skúladóttur...“33 Þótt stúlkan nyti skyldleikans við er ólík- legt að Guðríður hefði borið verk hennar saman við verk annarra kvenna nema þær væru þekktar fyrir myndarskap í handavinnu. Eftir Guðrúnu er m.a. varðveittur hökull sem hún saumaði fyrir kirkjuna í Viðey og er hann geymdur á Þjóðminjasafni.34 Eftir að Guðrún fluttist til Viðeyjar nefndi hún vinnustofu sína nokkrum sinnum í bréfum sínum og kallaði hana Annnki.35 Þar var greinilega mikið að gera og margt brallað. Handavinnuna gerði Guðrún oftar en ekki að umtalsefni og sagði t.d. í bréfi til Sveins Pálssonar læknis þann 24. ágúst 1790: „Hér með fylgja nú enn síðir hvítir sokkar, og máski þeir verði fúnir, þegar til yðar koma, því þeir eru nú að þorna..."36 í bréfi til Gríms Jónssonar, 16. ágúst 1812, kemur í ljós að Guðrún hefur verið að lita garn í vefinn sinn og var hún hrædd um að ná ekki að ljúka því sem hún átti: „svo ég gæti lit- að mér nokkuð í vefinn minn. Nú er ég, að keppast við, að vefa og eyða upp, öllu því ég á, af útlenskum lit, áður en ég dey eða verð svo ónýt, að ekkert get unnið."37 Ekki virðast hafa verið margar stundir sem Guðrún var iðjulaus þótt hún sjálf segi annað: „Ég ætl- aði að senda yður sokka, en þeir liggja hálfprjónaðir, hindrar mig stundum letin, en stundum annríkið..."38 Það er því augljóst að Guðrún var kjarnakona til handanna en athyglisvert er að Guðrún fjallar svo til ekkert um handavinnu sína í bréfunum til föður síns sem skrifuð voru á árunum 1774-1776. Ástæðu þessa er líklega að leita í því að á þeim árum hafði hún nóg að gera við að hafa umsjón með jörðum föður síns í Skagafirði og bar ábyrgð á ýmsu sem hún gerði ekki eftir að hún var flutt í Viðey. „MEDICAMENTUM1139 Þegar Guðrún fór að eldast fór hún að hafa áhyggjur af heilsu sinni og minntist hún á það í bréfunum. Hún fékk einhvers konar lyf frá vini sínum Sveini Pálssyni lækni og fannst það hafa gert nokkuð gagn. Hún fjallar um það í bréfi frá 16. ágúst 1789: Ég drakk af því sopa minn, kvöld og morgun, meðan það entist, og á meðan á því stóð, og nokkrar vikur þar eftir, var ég nokkuð minnisbetri, en áður, svo víst er það, að sú náttúra fylgir því. Svo ef ég hefði fengið það strax, þegar ég missti minnið, þá máske það G T V A R "I SAGNIR 24 ARGANGUR 04 75
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.