Nýtt Helgafell - 01.06.1956, Blaðsíða 37

Nýtt Helgafell - 01.06.1956, Blaðsíða 37
BÖKMENNTIR 83 að Kristján fer þarna að dæmi allra hinna meiri háttar spámanna, sem ætíð hafa rakið upphaf kenninga sinna langt aftur í tímann. Nýjungar í menningarmálum og andlegum efnum hafa lengi verið óvinsælar. Því nýstár- legri, sem þær hafa verið, þeim mun meiri þörf hefur verið að útvega þeim virðulegt faðerni. ÞAÐ ER ÁSTÆÐA til að íhuga, hvers vegna akademíumálið hefur hlotið svona daufar undirtektir. Ekki er Kristjáni um að kenna, því að málflutningur hans hefur verið djarflegur og skemmtilegur. Segist honum margt vel um það, hversu nota skuli íslenzka tungu, og hann færir gild rök að því, að nú sé brýn þörf aðgerða til að efla íslenzkuna að orðum og vemda hana gegn málleysum og smekkleysum. Hitt sýnir hann ekki jafn- vel fram á, að stofnun akademíu sé heppi- legasta lausn þess máls. Það er einhver útlenzku keimur af aka- demíunni, og mun nafnið eitt nægja til þess Er það sannarlega ekki sigurstranglegt að hefia herferð til vemdar íslenzku máli með orðið akademía letrað á skjöld sinn. Fyrir- mynd Kristjáns mun einkum hafa verið Aka- demían franska, en það er ekki nóg að fatið sé sótt til Parísar, ef það er ekki sniðið við hæfi þess, sem í það á að klæðast. Með aka- demíufrumvarpinu, segir Kristján, að sé „far- ið fram á, að við berum vegsemd og vanda af tungu okkar einna líkast því sem við vær- um stórþjóð." En við emm ekki stórþjóð og okkur hæfir oft allt annað en þeim. Það er því ekki einhlítt að sækja fyrirmyndir til þeirra. Sérstaklega á það við um menningar- stofnanir, því að • rætur þeirra þurfa að hggja djúpt, ef þær eiga að komast til nokk- urs þroska. Slíkt yfirsést oft þeim íslending- um, sem dvalizt hafa langdvölum erlendis. t heitu lofti erlendra stórborga, fjarri íslenzk- um hversdagsleika, vaxa oft í hugum þeirra skógar hugmynda Islandi til fremdar, sem fcdla og visna jafnskjótt'og kemur hingað norður í nepjuna. Islendingar em þannig gerðir, að erfitt mun reynast að kenna þeim að bera tilhlýðilega virðingu fyrir virðulegum stofnunum. Það kann að vera sorgleg staðreynd, en hana hljóta flestir að viðurkenna. Tign akademí- unnar mundi því ekki verða nægileg trygg- ing þess, að menn fengjust til að sætta sig við úrskurð hennar, og em viðtökur þær, sem þessi hugmynd hefur fengið, nokkur ábend- ing um það. Kristjáni finnst fjarstæða að óttast, að aka- demían vanræki starf sitt og reynist tildur- stofnun. Hann segir: „Með hvaða rökum leyfa menn sér að láta í ljós slíkan ótta?" Það mætti til dæmis benda á sjálfa fyrir- myndina, Akademíuna frönsku, en í hana eru menn kosnir eftir vegtyllum, svo að jafn- vel hershöfðingjar fá þar inngöngu vegna írægðar sinnar. Veigameiri rök má þó finna með því að íhuga, hvemig líkindi em til, að slík stofnun starfi hér á landi. Líklega mundi það verða talinn hinn mesti heiður hverjum rithöfundi eða fræðimanni að vera kjörinn félagi í akademíunni. Með kosningu til hennar mundi fyrst og fremst vera lagt mat á ágæti hvers manns á sínu sviði, en um hitt mundi ekki verða skeytt, hvort maðurinn væri líklegur til nýtilegs starfs í þágu íslenzkrar tungu. Mundu því margir félagar hennar reynast lélegir ný- yrðasmiðir og málhreinsunarmenn, en utan garðs verða margir hinir nýtustu menn á því sviði. Til gamans skulum við setja sam- an akademíu eins og hugsazt gæti að hún yrði nú skipuð. I henni gætu orðið til dæmis þessir menn: Halldór Kiljan, Gunnar Gunn- arsson, Davíð, Tómas, Guðmundur Hagalín, Þórbergur, Kristmann, Jón Helgason, Sigurð- ur Nordal, Alexander Jóhannesson, Einar Ólafur Sveinsson, Kristján Albertsson. Þótt þarna sé margt ágætra manna, er hóp- urinn ærið sundurleitur, og er hætt við, að samleikurinn yrði ekki alltaf góður. Mundu þessir menn verða sammála um stafsetn- ingu og greinasetningu? Mundu þeir verða sammála um notkun tökuorða í íslenzku? Er yfirleitt líklegt, að þeir yrðu sammála um nokkuð, sem allir eru ekki þegar sammála

x

Nýtt Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.