Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2007, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2007, Blaðsíða 19
DV Besti vinur mannsins miðvikudagur 10. október 2007 19 HúsbóndaHollir og lífsglaðir Unnur Hagalín er skólaritari og hundaræktandi á Eyrarbakka. Hverrar tegundar eru þínir hundar? „Ég á 4 boxer-hunda; Johnnie, 4 ára, Kylie, 4 ára, og systkinin Chocco og Sally, 10 mánaða. Eldri hundana flutti ég inn þegar þeir voru 6 mánaða og þá voru þeir komnir með nöfn sem ég vildi ekki breyta. Svo þeg- ar þau eignuðust hvolpa vildi ég ekki fara að skíra þá íslenskum nöfnum. Ég vildi halda þessu í stíl og þess vegna heita þau öll erlendum nöfnum.“ Þjálfar þú þá mikið? „Við förum daglega út í göngutúra og tökum alltaf hlýðniæfingar inn á milli. Ég hef farið með eldri hund- ana á sporanámskeið þar sem þeim er kennt að rekja slóð eftir manneskjur. Ég hef farið með þá alla á hlýðni- námskeið en aðallega förum við bara saman í göngu- túra.“ Hefur þú átt hund áður? „Já, ég hef átt hund áður. Fyrsti hundurinn okkar var blendingur af írskum setter og golden retriever sem við misstum 13 ára gamlan núna í desember.“ Hvernig hafa sýningar gengið? „Það gekk mjög vel á sýningunni núna um helgina. Rakkinn minn, Johnnie, var valinn annar besti rakk- inn. Kylie var valin besta tíkin og fékk þar með sjötta al- þjóðlega meistarastigið sitt. Svo varð hún besti hundur tegundar. Afkvæmin þeirra tvö, Chocco og Sally, urðu bæði í þriðja sæti í sínum flokki. Þau fengu bæði ís- lenskt meistarastig sem telst mjög góður árangur fyrir 10 mánaða gamla hvolpa.“ Hvernig myndir þú lýsa skapgerð boxer-hunda? „Þeir eru mjög glaðlyndir, tryggir og traustir. Þeir eru húsbóndahollir og mjög lífsglaðir og skemmtileg- ir. Þeir gelta sáralítið en geta verið tortryggnir gagnvart ókunnugum og skipta sér lítið af fólk sem þeir þekkja ekki. Þeir vilja fyrst og fremst vera með fjölskyldu sinni og húsbónda.“ Hvernig er að eiga hunda þar sem þú býrð? „Ég bý á Eyrarbakka og hér er frábært að eiga hunda. Ég get labbað beint út í fjöru eða út í móa. Þetta væri sennilega ekki eins þægilegt í höfuðborginni og ég myndi ekki vilja eiga svona marga hunda þar.“ Margrét Ásgeirsdóttir, hundaræktandi Margfaldur Meistari Hvaða tegundar er þinn hundur? „Hann er St. Bernarðshundur. Hann heitir fræðilegu heiti ISW-07 ISCH NORDCH NUCH SUCH Titanerna Atl- as.“ Hvað er hann gamall? „Hann er 5 ára.“ Er hann vel þjálfaður? „Já, við reynum að hreyfa hann mik- ið fyrir sýningar, passa að hann sé í góðu líkamlega formi, ekki of þungur og ekki of grannur. Passa líka að feldur- inn sé í lagi, réttur og góður, svo það eru ýmsar pælingar í kringum þetta.“ Hefur þú átt hund áður? „Ég fékk fyrsta St. Bernharðshund- innn minn 1997. Það hefur gengið ofsa- lega vel með St. Bernarðshunda síðast- liðin 3 til 4 ár á sýningum svo við getum verið afskaplega stolt af tegundinni sem slíkri. Erum með íslenska og alþjóð- lega meistara úr okkar ræktun, sem við erum mjög stolt af.“ Hefur hann verið sýndur? „Hann hefur verið sýndur tvisvar hérna á Íslandi og hljóp beint í að vera stigahæsti hundur 2007. Hann var sýnd- ur í júní og þá vann hann á sýningunni. Svo aftur núna í október þar sem hann lenti í öðru sæti og hlaut titilinn stiga- hæsti hundur ársins. Hann og hundur- inn sem vann í þeirra flokki voru jafn- ir að stigum og deila því titilinum. En hann var sýndur úti í Noregi og Svíþjóð áður en hann kom til landsins. Hann er öllu vanur hvað varðar sýningar.“ Hvernig myndir þú lýsa skapgerð hundsins þíns? „Hann er æðislegur í skapinu og við erum ofsalega heppin með fólkið sem er með hann fyrir okkur og hann fer út með fósturmömmu sinni á hverj- um morgni að bera út blaðið. Hann er í launaðri vinnu drengurinn, hangir ekk- ert heima hjá sér á hverjum morgni og gerir ekki neitt. Hann er bara ofsalega fínn og góður, meðfærilegur og ekki yfir neinu að kvarta með hann. Það er voða- lega lítið hægt að setja út á hann svona þegar maður fer að pæla í því.“ Hver eru karaktereinkenni þessarar tegundar? „Þetta eru ljúfir og rólegir hundar að eðlisfari, þeir eru mjög húsbóndaholl- ir, geta sýnt ókunnugum tortryggni þar sem þeir tilheyra tegundahópi 2 sem er vinnu- og varðhundar. Annars ljúfir og góðir og þolinmóðir með börnum. Þeir eru hörkuduglegir vinnuhundar ef þú nennir að þjálfa þá upp í það, mjög efnilegir í vinnu. Hann passar alveg upp á húsið þitt og passar upp á bílinn þinn. Þeir eru aldrei árásargjarnir en láta bara vita. Gelta og gelta en svo er það er í raun búið þegar maður er kom- inn inn.“ Hvernig er að eiga hund í borg? „Við erum búsett í Mosfellsbæ. Við megum náttúrulega ekki vera með lausa hunda innan borgarmarka, þar eiga þeir að vera í taum. Það eru tvö svæði sem við getum verið með hann á hérna í borginni en síðan bara utan borgarmarka þar sem hægt er að leyfa honum að hlaupa.“ Hvernig finnst þér aðstaða fyrir hundaeigendur í Reykjavík? „Það mætti alveg upplýsa fólk meira um hunda og hundamenningu al- mennt, fyrir svona almennan borgara. Aðstæður sem við höfum, sem hunda- eigendur, eru ekkert til fyrirmyndar og auðvitað eru svartir sauðir innan um hvort sem það er í hundunum eða í umferðinni eða annars staðar, en við getum bara ekkert einblínt á það. Ég held að þetta eigi eftir að verða miklu meira og betra fyrir okkur hundaeig- endur. Eins og tíðkast í nágrannalönd- unum. Þar er fólk með hundana sína úti um allt. Vonandi á það einhvern tím- ann eftir að verða svoleiðis hér, þó seint verði en vonandi einhvern tímann.“ Hvað er Kersins Orri gamall? „Hann verður þriggja ára í nóvember.“ Þjálfar þú hann mikið? „Já, nokkuð mikið, sérstaklega fyrir sýningaþjálfun. Þá kenni ég honum að hlaupa í hring, standa fallega og bera sig vel. Ég kenni honum líka að umgangast aðra hunda og haga sér vel í kringum þá.“ Hefur þú átt hund áður? „Já, ég átti einn sem hét Hringur en hann dó í apríl. Það eru tveir hundar á heimilinu. Pabbi minn á labrador/ border collie-blending. Við höfum haft hund á heimilinu undanfarin átta ár.“ Hlýðir Orri öllum á heimilinu? „Já, hann gerir það í meginatriðum. Hann færi kannski ekki með öðrum í sýningarþjálfun en hann fer eftir því sem heimilisfólkið segir honum að gera.“ Hefur hann verið sýndur? „Fyrst fékk hann fyrstu einkunn sem þýddi að hann fór í keppni um besta rakka í opnum flokki. Hann fékk fyrsta sæti þar, sem gaf honum íslenskt meistarastig. Þá gat hann kept um besta rakka tegundar. Hann varð svo besti rakki tegundar og fékk því alþjóðlegt meistarastig. Þá kepptu besti rakkinn og besta tíkin þar sem hann hafði líka betur. Hann varð besti hundur tegundar og stóð sig alveg frábærlega.“ Hvernig myndir þú lýsa skapgerð hundsins þíns? „Hann hefur alltaf verið mjög rólegur og yfirvegaður en þó glaðlegur og skemmtilegur.“ Hver eru karaktereinkenni þessarar tegundar? „Glaðlyndi er einkennandi fyrir íslenska fjárhunda. Þeir eru fljótir að aðlaga sig aðstæðum. Upphaflega voru þessir hundar notaðir sem smalahundar fyrir rollur og þess vegna gelta þeir sumir. Það er hins vegar vel hægt að kenna þeim að gelta ekki. Orri geltir til dæmis eiginlega aldrei.“ Hvernig er að eiga hund í borg? „Það er ekkert mál. Maður fer bara aðeins út fyrir borg- armörkin og leyfir þeim að hlaupa lausum. Ég bý rétt hjá Elliðaárdalnum og því er stutt fyrir mig að fara til að leyfa Orra að hreyfa sig. Þess á milli fer ég bara með hann í taumgöngu um Breiðholtið.“ Hvernig finnst þér aðstaða fyrir hundaeigendur í Reykjavík? „Hún er alveg sæmileg. Það náttúrulega má eiginlega hvergi vera með hunda en það gæti samt verið verra. Það er eitt hundasvæði en þau mættu vera fleiri.“ besti Hundur tegundar Linda Björk Jónsdóttir er 23 ára eigandi Kersins Orra, þriggja ára íslensks fjárhunds, sem keppti á sýningu HRFÍ um helgina. Framhald á næstu síðu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.