Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2007, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2007, Blaðsíða 21
Alveg eins og guðni Peðum fórnað DV Umræða miðvikudagur 10. október 2007 21 DV fyrir 25 árum Mikil dásemd er að vera útsvars- greiðandi nú á dögum. Orkan flæðir, allt að gerast og svo hratt. Gríðarleg- um hagsmunum borgarbúa nýverið borgið með samruna tveggja fyrir- tækja, annars í opinberri eigu. Borg- arstjórinn kátur, næstráðandinn líka og þarnæstráðandinn. Fram undan gæti verið feikilegur ávinningur og stærsta orkufyrirtæki heims í upp- siglingu. Þessir sönnu hagsmuna- verðir fólksins láta ekki slíka gull- gæs sér úr hendi sleppa. Samhliða náðust frábærir kaupréttarsamn- ingar sem sýna glöggt tiltrú forkólf- anna á þessari sameiningu. Tíu og upp í þrjátíu milljónir eru mikið fé og sú áhætta sem þessir menn taka óumbeðnir í almannaþágu er lofs- verð svo ekki sé meira sagt. Auð- vitað hefði verið gaman að sjá hinn almenna borgara eða konur í hópn- um en tveggja ára biðtími er nú ekki langur. Borgarfulltrúar fá 500.000 þús- und í laun. Ráðsmaður fær 200.000 þúsund. Annar ráðsmaður fær 100.000 þúsund. Nefndarmaður fær 100.000 þúsund. Stjórnarseta gefur sex hundruð þúsund. Þegar einn og sami maður sinnir öllu þessu sýn- ir það ótrúlega yfirsýn, hæfileika, dugnað og fórnfýsi sem undirstrik- ar ótvírætt yfirburði viðkomandi og jafnframt framsýni þeirra sem manninn kusu á sínum tíma. Enda njóta þeir nú ávaxtanna og eiga fylli- lega skilið sín sæti á fyrsta farrými í þeirri ævintýraferð sem fram und- an er. Kerlingavæl um ólöglegan fyr- irvara fundarins og flausturslegan undirbúning er með ólíkindum, all- ir vita eftir þjóðaratkvæðagreiðsl- una (sem að vísu aldrei varð) að lög má túlka að vild. Að minnsta kosti er borgarstjórinn upplýstur og hafði sinn mann á staðnum. Klisjan um fólkið og hagsmuni þess hljómar enn og orðin ansi þreytandi. Menn sem fórna sér fyrir fjöldann, draga vagninn og ávallt árvökulir fyrir nýjum tæki- færum þjóðarbúinu til hagsældar eiga að njóta vildarkjara. Og vinirn- ir líka. Klókindi þeirra og útsjónar- semi sjá kannski aldrei dagsins ljós annars. Stjórnmálamenn með al- menna skírskotun eru gamaldags og óspennandi. Sópranó er dæm- ið og eftirlit með slíkum afburða- mönnum jafngildir kjaraskerðingu fyrir fólkið. Heimsyfirráð þola enga bið og kosningarétt kvenna ætti að endurskoða. Esjan Þorlákur Jónsson var staddur uppi á toppi esju nýlega. Sólarlagið var fallegt en það sannaðist að það getur verið kalt á toppnum, enda esjan tekin að hvítna á þessum árstíma.myndin Sandkassinn Höfði, 9. nóvember 2004. Full- trúar allra stærstu fjölmiðla á staðnum. Borgarstjóri Reykja- víkur gengur í salinn. Hann er þungur á brún. Hann er ólíkur sjálfum sér. Hann virðist hafa slæma samvisku eftir olíu- hneykslið. Niðurstaðan sú sem margir höfðu spáð. Borgarstjóri segir af sér. ráðHúsið, 8. október 2007. Full- trúar allra stærstu fjölmiðla á staðnum. Borgarstjóri Reykjavík- ur situr á stól. Hann er þungur á brún. Hann er ólíkur sjálfum sér. Hann virð- ist hafa slæma samvisku eftir Orkuveitu- hneykslið. Niðurstaðan sú sem margir höfðu spáð. Borgarstjóri segir ekki af sér. vilHjálmur ólíkur sér að hvaða leyti, kann einhver að spyrja. Hann er hikandi. Líður augljós- lega óþægilega í viðtölum. Hef- ur ekki svör á hraðbergi eins og gjarnan áður. Ótrúlegur fjöldi hikorða hrýtur af vörum hans. Skýrasta dæmið er Kastljósvið- talið á mánudagskvöldið. Ég missti töluna á hikorðunum um miðjan þátt. Strýkur svitaperlur af enninu. Þykist vera að klóra sér. Virkar sem yfirklór. vilHjálmur vAr eins og bArn í eigin afmælisveislu fyrstu mánuð- ina eftir að hann varð borgarstjóri. Brosið fór ekki af honum. Hann lék við hvern sinn fingur. Sló á létta strengi. Þjóðin uppgötvaði að maðurinn er bullandi húmor- isti. Nú er brosið stirðnað. Veislan er búin. Kökurnar og nammið er ekki lengur uppi á borðum. En það er þó einhvers staðar. Hegðun borgArstjórA þessa dagana minnir á krakka sem stendur á stól inni í eldhúsi, með höndina í sælgætiskrukku og mamma kemur aðvífandi. Hann veit að hann má þetta ekki. Mamma verður græn í framan. Líklega sambland af hneykslun, bræði og vonbrigðum sem því valda. Einni spurningu er ósvar- að: Borgarstjóri, hvað varstu að hugsa? Kristján Hrafn Guðmundsson undrast hegðun borgarstjóra grÍPum guLLgÆSiNa! P lús eð a m ínu s Álfheiður Ingadóttir alþingis- kona Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs fær plúsinn í dag fyrir að spyrjast fyrir á Alþingi um hvort íslensk stjórnvöld hafi veitt bandarískum yfirvöldum upplýsingar um refsidóma íslenskra ríkisborgara. Spurningin „við í Nessókn eigum auðvitað okkar lið, kr. Þess má geta að á altarinu í Neskirkju stendur kr, reyndar á grísku, sem vísar til fyrstu stafanna í kristur. Síðan er ég gjarnan í kr-litunum við athafnir eins og reyndar flestir prestar,“ segir séra Örn bárður Jónsson sóknarprestur. vatíkanið í róm festi nýverið kaup á fótboltaliðinu ancona. Frá róm hljóma þær skýringar á kaupunum að vatíkanið vilji bæta ímynd ítölsku knattspyrnunnar sem er heldur dapurleg. Á ÞjóðKirKjan að Kaupa fótboltalilð? lýður Árnason heilbrigðisstarfsmaður skrifar: Fram undan gæti verið feikilegur ávinningur og stærsta orkufyrirtæki heims í uppsiglingu. TILRAUNAÁSKRIFT 2 FYRIR 1 ::: Þú færð Helgarblað DV og Mánudagsblaðið sent heim að dyrum ::: Þú færð fyrstu tvo mánuðina á sérstöku tilboði ::: Þú færð annan mánuðinn frítt, hinn á aðeins 1.990 kr. Hringdu í síma 512 7000, farðu inn á dv.is, sendu póst á askrift@dv.is eða sendu okkur sms skilaboðin „dv ja“ í síma 821 5521 og við hringjum í þig til að ganga frá tilraunaáskriftinni. Eftir þessa tvo mánuði berst þér blaðið áfram en hafir þú ekki áhuga á að fá blaðið lengur, hringir þú í síma 512 7000. HELGARÁSKRIFT 2fyrir1 D Y N A M O R E Y K JA V ÍK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.