Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Qupperneq 62

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Qupperneq 62
föstudagur 19. október 200762 Síðast en ekki síst DV Sandkorn n Mikils pirrings gætir á Ríkis- útvarpinu eftir að ljóst var að Páll Magnússon er með eina og hálfa milljón króna á mánuði Almenningur sem spurður var af þættinum Ísland í dag á miðviku- dagskvöld hvort þetta væru eðlileg laun yfir- manns á svo stórri stofnun var sömu skoðunar og starfsfólkið; að þetta væri fullmikið af því góða. Vefur- inn visir.is spurði lesendur sína í gær um afstöðu til launa út- varpsstjóra. 81% svarenda finnst útvarpsstjóralaunin of há, mættu vera um 800 þúsund að einni milljón króna. n Vefritið dv.is hefur náð hraðri siglingu á stuttum tíma og einn skrifenda á málefnin.is segir að forgangsröðun sína á því hvert hann sæki fréttir þegar hann dvelur í útlöndum hafa breyst. Skrifandinn, Grandvar, segir skammval sitt hafa breyst, áður hafi ruv.is verið í öðru sæti en nú sé röðin svona þegar hann vilji fá beint í æð það sem gerist: 1. mbl.is 2. dv.is 3. eyjan.is 4. ruv.is 5. visir.is n Ljóst er að landsliðið í fótbolta er ekki uppáhaldslið allra lands- manna. Fólk ætlar í auknum mæli að snúa sér að kvenna- knattspyrnunni þar sem árangur næst og skemmtilegur fótbolti sést. Agaleysi leikmanna er þekkt og fer mjög í skapið á landanum. Þótt liðið tapi nánast hverjum ein- asta leik fara leikmenn engu að síð- ur út á lífið og drekka ótæpilega, þrátt fyrir að það sé leikur eftir þrjá daga. Flugfreyjur Icelandair þurftu víst að bera nokkra afréttara í liðið á sunnudaginn. Árangur liðsins hefur ekki verið í samræmi við væntingar og liðið náði aðeins í eitt stig af tólf mögulegum gegn liðum sem Íslendingar telja sig vera betri en í fótbolta. KSÍ hefur ekki verið þekkt fyrir að vera með puttana á púlsinum og það kæmi ekki á óvart ef stuðningsyfirlýsing handa Eyjólfi Sverrissyni lands- liðsþjálfara væri í undirbúningi. Hver er konan? „Ég heiti Marta Guðjónsdóttir, for- maður Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæð- isfélaganna í Reykjavík og varaborg- arfulltrúi. Ég er auk þess kennari við Tjarnarskóla. Ég fæddist í Þingholt- unum, ólst upp í Vesturbænum og hef búið í Skerjafirði frá 1989. Ég er gift og á tvö börn.“ Áttu gæludýr? „Ég á tvo ketti sem heita Sókrat- es og Aristóteles. Maðurinn minn er heimspekingur, það útskýrir nöfnin.“ Hvað drífur þig áfram? „Það er bjartsýni og hugsjónir.“ Hver eru þín áhugamál? „Ætli það séu ekki fyrst og fremst stjórnmál, gera góða borg enn betri og áhugi á því að bæta mannlífið í borginni. Útivist og fjallgöngur, lestur góðra bóka og íþróttir, þó ekki lengur sem þátttakandi heldur áhorfandi. Ég er mikill KR-ingur.“ Eftirminnilegasta bók sem þú hefur lesið? „Brekkukotsannáll eftir Laxness. Sú bók er mjög góð Reykjavíkursaga og góð heimild um borgina og mann- lífið á þeim tíma sem sagan á að ger- ast.“ Þú ert Reykjavíkurmær mikil? „Já, það er ég svo sannarlega. Ég er mjög stolt og ánægð með mína borg og þykir hún ein af þeim fallegustu í heimi.“ Ef þú byggir ekki á Íslandi, hvar myndir þú vilja búa? „Ja, það er nú það. Ég hugsa að það væri annaðhvort Kaupmannahöfn eða París.“ Ferðast þú mikið innanlands? „Já, mjög mikið. Ég fer reglulega í fjallgöngur og í sumar gekk ég til dæmis á Heklu. Ég er ein af nokkrum aðstoðarmönnum séra Ragnheiðar Erlu Bjarnadóttur, sem vinnur nú að því að rannsaka altaristöflur í kirkjum landsins. Þetta hefur verið yndislegt ferli og gefið mér tækifæri til þess að sjá hluta landsins sem ég hefði að öllum líkindum ekki séð annars. En það að ferðast um landið er það skemmtilegasta sem ég geri og ég kýs það mun frekar en að fara í utanlandsferðir.“ Minna yfirheyrslurnar í Valhöll eitthvað á spænska rannsóknarréttinn? „Nei, alls ekki, því það voru engar yfirheyrslur og hafa þær aldrei staðið til. Það sem menn hafa verið að rugla saman er að það er lítill starfshópur innan stjórnar Varðar sem fer yfir stöðuna í borgarmálum, vegna þessara óvæntu stjórnarslita, sem hann svo kynnir fyrir öðrum flokksmönnum. Hópurinn fundaði tvisvar og lagði til að haldinn yrðir lokaður fundur fyrir trúnaðarmenn flokksins í Reykjavík til að fara yfir breytta stöðu í borgarmálum. Stjórnarslitin voru mjög óvænt og því er eðlilegt að fara yfir stöðuna.“ Sjálfstæðisflokkurinn hefur gjarnan komið fólki fyrir sjónir sem samheldinn flokkur. Hefði eitthvað þessu líkt gerst í stjórnartíð Davíðs Oddssonar? „Í stjórnmálum getur gengið á ýmsu og menn hafa mismunandi skoðanir. Þetta hefur verið blásið upp í fjölmiðlum, sem er ekki heppilegt. Ég vísa í stjórnartíð R-listans og þann ágreining sem var innan flokksins en komst sjaldan upp á yfirborðið. En þrátt fyrir ágreining komumst við að sameiginlegri niðurstöðu og það er það sem skiptir máli. Við gáfum út yfirlýsingu á föstudaginn var um að við styðjum oddvita flokksins í borgarstjórn, Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, og borgarfulltrúana heils hugar.“ Hvernig er stemningin í Valhöll ? „Hún er bara mjög góð. Við erum nú í óðaönn að skipuleggja hvernig við ætlum að standa að sterkri stjórnarandstöðu í borginni.“ Eru miklar líkur á því að einhver þurfi að taka pokann sinn? „Nei, alls ekki. Það hefur aldrei komið til tals og ég á ekki von á því.“ Hvað er fram undan? „Sem formaður Varðar ætla ég að beita mér fyrir því að efla enn frekar þau góðu tengsl sem eru milli Varðar og borgarstjórnarflokksins. Ætli við hjónin fáum okkur ekki svo göngutúr í Búrfellsgjá í Heiðmörk um helgina. Þar er stróbrotin náttúra og mikil jarðsaga. Ég bendi borgarbúum á að skoða þetta og þær ótal mörgu gönguleiðir sem eru í borgarlandinu sjálfu og við borgarmörkin.“ Í DAG Á MORGUN HINN DAGINN Veðrið +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx xx +12 7 xx +12 4 +12 7 xx xx xx xxxx xx xx xx xx xx xx xx +11 1 xx xx +81 +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx xx +8 4 +9 7 +12 7 xx 11 4 xx xx xx xxxx xx xx +8 7 xx xx +8 7 +11 7 +8 4 +10 7 +8 4 xx xx xx xx xx -xx -xx MAÐUR DAGSINS Góð stemninG í Valhöll Marta Guðjónsdóttir formaður Varðar, segir starfið innan Valhallar þessa dagana einkennast af fundahaldi um nýja stöðu vegna óvæntra stjórnarslita. boðað var til lokaðs fundar á dögunum í Valhöll. Enn lægðagangur en breytingar eftir helgi „frá fimmtudegi fram á sunnudag er von á fjórum lægðum yfir landið, eða einni á dag,“ segir einar sveinbjörnsson veðurfræðingur. „Úrkoma verður því alla dagana sunnanlands og vestan og mikil rigning nærri miðjum degi á föstudag. Minna fer fyrir úrkomunni norðaustan- og austanlands, en þar sleppa menn heldur ekki alveg. aftur á móti geta menn þar átt von á síðbúnum hlýindum á föstudegi með 13 til 15 stiga hita þegar best lætur. Á laugardag er síðan að sjá ákveðna og jafnvel hvassa s -og sV-átt á landinu og á sunnudag með fjórðu lægðinni kólnar heldur og er þá hætt við snjókomu á fjallvegum, þrátt fyrir að vindáttin sé sa-læg. eftir helgina stefnir í að hæðin þráláta við bretlandseyjar gefi sig loks eða öllu heldur klofni í tvennt með þeirri afleiðingu að hér á landi er líklegt að við taki veðurlag sem einkennist af N- og Na-áttum og lækkandi hitastigi.“ Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur stjörnur vIkUNNAR Arna Þórsdóttir og foreldrar hennar anna Hlín bjarnadóttir og Þór tulinius fá fjórar stjörnur fyrir að koma fram og sýna þjóðinni hvernig lystarstol fer illa með manneskjur í heimildarmynd- inni Lystin að lifa. fólk sem felur ekki vandann heldur segir frá honum til að vara aðra við og hjálpa þeim á alltaf lof skilið. berghildur bernharðsdóttir og Ásta sól kristjánsdóttir sem gerðu heimildarmynd- ina deila stjörnunum með þeim. Fangar vilja oft gleymast þegar ekki er rætt um strok eða annað neikvætt. Árni Johnsen, þingmaður sjálf- stæðisflokksins, á lof skilið fyrir að reyna að gera föngum í Hegningar- húsinu á skólavörðustíg gott vitandi sem er að það eitt að vera ófrjáls er mikil raun án þess að verða af þægindum á borð við sjónvarp. Árni fær því þrjár stjörnur fyrir að banka óvænt upp á í Hegn- ingarhúsinu og gefa sjónvörp í alla fanga- klefana. kanadíski grínistinn Jason Jones fær tvær stjörnur fyrir að skemmta landanum með yfirgengilegu gríni sínu um þjóðrembu og sjálfhverfu bandaríkjamanna þegar hann þóttist tala fyrir því að íslensk stjórnvöld sendu Herdísi sigurgrímsdóttur, fyrrverandi liðsmann Íslands í Írak, aftur til hins stríðshrjáða lands. sagan segir að einstaka blaðamaður hafi staðið í þeirri trú að hann væri að mæta á alvöru blaðamanna- fund. Eiður Smári Guðjohnsen fór mikinn í landsleik Íslendinga og Letta um síðustu helgi og skoraði þá tvö mörk. slíkur árangur hefði löngum dugað til minnst tveggja stjarna enda ekki svo oft sem íslenskir landsliðsmenn skora tvö mörk í leik. sú staðreynd að um tapleik var að ræða og að eiður smári líkt og landsliðið í heild lék illa gegn Liechtenstein veldur því að hann fær aðeins eina stjörnu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.