Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Blaðsíða 12

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Blaðsíða 12
SVEITARSTJÓRNARMÁL 8 að gjöf, er a. m. k. 150 þúsundir króna, og gerir það eitt fyrir sig gjöf þessa alleinstæða, þvi slíkar stórgjafir munu fáar eða engar hafa verið gefnar áður hér á landi. Hitt er þó einstæðara, að á sama tíma og íslenzka þjóðin tekur formlega í sínar hendur öll sín mál skuli henni áskotnast að gjöf sá staður í ' landinu, sem lengst af hefur verið að- setursstaður þeirra manna, er hér réðu fyrrum mestu, og eftir það að liafa verið það menntasetur á íslandi, sem vakti islenzku þjóðina til lifs að nýju, skuli það nú verða aðsetursstaður æðsta manns íslenzka ríkisins. Mun þessi höfðinglega gjöf Sigurðar Jónassonar áreiðanlega verða lengi í minnum höfð og vart skemur en sú gjöf, sem henni er likust, en það er gjöf Ísleifs biskups Gissurarsonar, er hann gaf íslenzku kirkjunni Skálholt til biskupsseturs. r Lög um ríkisstjóra Islands. 1. gr. — Alþingi kýs ríkisstjóra til eins árs í senn, og fer hann með vald það, sem konungi er falið í stjórnarskránni. 2. gr. — Kosning ríkisstjóra fer fram í sameinuðu Alþingi. Rétt kjörinn ríkisstjóri er sá, er hefur meiri hluta greiddra atkvæða við ó- bundna kosningu, enda séu að minnsta kosti % hlutar þingmanna á fundi og eigi jiátl í atkvæðagreiðslu. Hljóti enginn þann atkvæðafjölda við fyrstu kosningu, skal kosið óbundinni kosningu að nýju. Nú verður kosning þá eigi lögmæt, og skal þá kjósa um þá tvo menn, er flest fengu atkvæði við þá kosningu; en hafi við þá kosningu fleiri fengið jafnmörg atkvæði, ræður hlutkesti, um hverja tvo skuli kjósa. Ef þeir fá báðir jafnmörg atkvæði við hundnu kosninguna, ræður hiutkesti, hvor þeirra verður ríkisstjóri. Kosning skal vera skrifleg, og telst auður seðill greitt atkvæði. 3. gr. — Kjörgengur til ríkisstjóra er hver 35 ára gamall maður, sem fullnægir skilyrðum kosningarréttar til Alþingis, að fráskildu búsetuskilyrðinu. 4. gr. — Nú deyr ríkisstjóri eða lætur .af störfum áður en kjörtíma hans er lokið, og skal Alþingi þá kjósa nýjan ríkisstjóra, svo fljótt sem kostur er. Ákveða má þá, að sú kosning gildi ein- ungis til næsta reglulegs Alþingis. 5. gr. — Nú verður sæti ríkisstjóra laust eða hann getur ekki gegnt störfum uin sinn vegna dvalar erlendis, sjúkleika eða af öðrum ástæðum, og skal þá ráðu- neyti íslands fara með vald ríkisstjóra. 6. gr. — Ríkisstjóri má eigi vera alþingismaður né gegna öðrum opinber- um störfum en rikisstjórastarfinu. Eigi má hann heldur gegna störfum fyrir félög, stofnanir eða fyrirtæki einstakra manna eða félaga. 7. gr. — Ríkisstjóra skulu greiddar af ríkisfé þrjátíu þúsundir króna í laun á ári, auk útlagðs kostpaðar. Hann hefur ókcypis bústað, ljós og hita, og er undan- þeginn öllum opinberum gjöldum og sköttum. 8. gr. — Ríkisstjóri vinnur eið eða drengskaparheit að stjórnarskránni, er hann tekur við störfum. Af eiðstaf þess- um eða heiti skal gera tvö samhljóða frumrit. Geymir Alþingi annað, en þjóð- skjalasafnið hitt. 9. gr. — Ríkisstjóri ber eigi ábyrgð á stjórnarathöfnum. Hann verður eigi sótt- ur til refsingar nema með samþykki Al- þingis. 10. gr. — Rikisstjóri hefur aðsetur í Reykjavík eða næsta nágrenni. 11. gr. — Lög þessi öðlast þegar gildi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.