Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.1942, Page 8

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1942, Page 8
SVEITARSTJÓRNARMÁL 30 liyggð svæði voru allsherjareign eða al- inenningar. Afrétturinn er fyrst eins konar almenningur, en verður svo eign þeirra, er í upphafi hafa orðið að taka að sér að smala hann. Þetta skipulag hefur i aðaldráttum haldizt fram ú vora daga. Að vísu hefur kirkjan siðar reynt að ná vissum hlutum af afrcttunuin úr hönd- um hreppanna og tekizt það sums staðar, og eins hafa höfðingjar vitanlega seilzt el'tir yfirráðum vi'ir afréttunum og reynt að afla sér fríðinda á þann hátt. Sums staðar á landinu hagar þannig til, að heiði eða fjalllendi tilheyri sjálfu heimaland- inu, og cr það afréttur þeirrar jarðar og hóndinn því skyldugur til að sinála sinn afrétt, silt heimaland. En jafnvel þar, sem hagaði svo til, þurfti samtaka með um göngurnar. Allir í byggðinni urðu að sniala á sama degi, og fjárskil varð að gera. Ákvæði þurfti að setja um rekstra og annað þvi um líkt. Var því alveg eins þörf fyrir hreppa þar eins og annars staðar. I>að mun vera almennt álitið, að hrepp- arnir hafi orðið lil eftir að kristnin var lögleidd. Er ástæðan sú, að aðalhlutverk hreppsins er samkvæmt Grágásarlögum latækraframfærslan. Það er bent á, að áður en kristni var lögleidd, hafi fátæk- um mönnum verið leyft með lögum að hera út hörn til ]>ess að forðast neyð. En cftir að það var bannað með lögum, hafi samtelagið orðið að taka afleiðingunum af þessum lögum með að sjá ]ieim far- horða, sem ekki gátu það sjálfir. Því til stuðnings er á það hent, að Landnáma, sem rituð er í kringum 1100, getur ein- ungis um 4 hreppa i Arnessýslu, það eru Hrunamannahreppur, Gniipverjahreppur, Hraungerðingahreppur og Kaldnesinga- hreppur. Þar sein Landnánia getur ekki um fleiri hreppa, mætti draga þá ályktun al' því, að hreppar hel'ðu þá verið óþekktir annars staðar en þar eða að minnsta kosti svo nýlega stofnaðir, að hreppamörkin hefðu lílt verið komin inn í meðvitund manna, Konráð Maurer minnist á þetta atriði, en telur sér eigi fært að draga neina ályktun af því. Mér virðist liggja nær að álíta, að „Hrepparnir“ hafi frá öndverðu horið þetta nafn. Því að ef svo væri, að þeir liefðu mvndazt á 11. öld kringum Skálholt og sem framfærslu- héruð í samhandi við tiundarlöggjöfina, ]>á hei'ðu þessi byggðarlög hlotið að heita einhverju öðru nafni áður. Mætti þá und- arlegt teljast, að hin göinlu nöfn hefðu svo algerlega horfið, að þeirra væri hvergi getið í mótsetningu við öll önnur byggðarlög á landinu, sem hafa haldið sínum gömlu nöfnum, þrátt í'yrir alla hreppaskiptingu. Það er t. d. fullvist, að á 13. öld, þegar Sturlungasága er skrifuð og margar af íslendingasögum, og hreppa- skipulagið orðið landlægt fyrir löngu, er yfirleitt aldrei minnzt á hreppa eða hreppamörk. T. d. er ekki talað uin Skóg- arstrandarhrepp eða Rauðasandshrepp, heldur Skógarströnd og Rauðasand. Sama hefur verið um sýslurnar síðar. Yfirleitt hala menn notað gömlu byggðarlaga- nöfnin fram á þennan dag. Menn tala um Grund i Eyjafirði, Miklabæ i Skagafirði o. s. frv. En þrátt fyrir það, þó víst megi telja, að hreppanöfnin á byggðarlögunum í Arnessýslu geti ekki talizt nein sönnun eða jafnvel gefi engar likur til þess, að hreppaskipulagið sé upp komið í sam- bandi við skipulagningu kirkjunnar, geta þau samt ef til vill orðið mikilvægur leið- arvísir í rannsókninni á myndun hrepp- anna. líg tel, að „Hrepparnir" hafi frá upphafi heitið „Hreppar“, eins og t. d. Grímsnes hefur frá öndverðu heitið Grímsnes. En hvernig stendur þá á þvi, að mönnu.m hefur dottið í hug að gefa þessuin byggðarlögum þessi nöfn? Ástæð- an inun vera sú, að þegar á landnámsöld, áður cn mikil byggð var komin i Hrepp- unum og áður en nokkurt sérstakt nafn hafði festst við byggðarlagið, hafi bænd- urnir á þessu svæði orðið að skipuleggja leitir á afréttum Flóamanna og Hreppa- manna. Hafa bændurnir skipt öllu svæð- inu í 1 uindæmi, sein hvert hafði sinn

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.