Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Síða 64

Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Síða 64
KYNNING SVEITARSTJÓRNARMANNA Kristín A. Arnadóttir framkvæmdastj ór i þróunar- og fjölskyldusviðs Reykj avíkurborgar Jón Bjömsson, framkvæmdastjóri þróunar- og fjölskyldusviðs Reykja- víkurborgar, lét af störfum hjá borginni hinn 1. febrúar sl. en hann hafði gegnt því starfi frá ár- inu 1995 og þar áður verið fé- lagsmálastjóri Akureyrarbæjar og forstöðumaður menningar- og félagsmála hjá Akur- eyrarbæ frá árinu 1976. Kristín A. Ámadóttir hefúr verið ráðin framkvæmdastjóri þróunar- og Qölskyldusviðs Reykjavíkurborgar og tók við starfinu 1. febrúar sl. Kristín gegndi starfi aðstoðarmanns borgarstjóra frá 1994 að einu ári undanskildu en þá stundaði hún ffamhaldsnám í stjómsýsluffæðum í Bandaríkjunum. Kristín er fædd 18. mars 1957 og ólst upp á Eskifirði. Foreldrar henn- ar em Ragnhildur Kristjánsdóttir og Ámi Halldórsson, útgerðarmaður og skipstjóri. Kristín lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum í Ármúla 1980, BA-prófi í ensku og fjölmiðlafræði frá Háskóla íslands 1986 og MA- prófi í stjórnsýslufræðum frá Maxwell School of Citizenship and Public Affairs, Syracuse University í Bandaríkjunum 1999. Kristín hef- ur margháttaða starfsreynslu á sviði opinberrar stjórnsýslu, í mennta- málaráðuneytinu 1988-1991, Há- skóla íslands 1991-1994 og Reykjavíkurborg. Hún var starfs- kona þingflokks Kvennalistans á ár- unum 1983-1985 og starfaði sem blaðamaður á Morgunblaðinu um skeið 1985-1987. Kristín hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfúm fyrir Kvennalistann og í umboði borgar- stjóra eða Reykjavíkurborgar. Eiginmaður Kristínar er Valur Harðarson, markaðs- og sölustjóri. Þau eiga þijár dætur. Signý Pálsdóttir, menningarmálastj óri Reykj avíkurborgar Signý Pálsdóttir hóf störf sem menningarmálastjóri Reykjavíkur- borgar 1. júlí 1999. Menning- armálastjóri hef- ur heildammsjón með menningar- málum á vegum Reykj avíkur- borgar og sam- vinnu borgarinn- ar við aðra aðila á sviði menningar- mála. Signý fæddist í Reykjavík 11. mars 1950 og em foreldrar hennar Guðrún Stephensen kennari og Páll S. Pálsson hæstaréttarlögmaður. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1969, stundaði tungumálanám í Háskóla íslands í eitt ár, en frá 1970-1974 nam hún leikhúsffæði og menning- arfélagsfræði við Kaupmannahafn- arháskóla og lauk þaðan EA-prófí í leikhúsfræðum í ársbyrjun 1975. Hún hefúr sótt fjölda námskeiða er- lendis er tengst hafa starfi hennar, bæði í leikhússtjómun, ffamkvæmd listahátíða og stefnumótun í menn- ingarmálum, þ.á m. tvö námskeið á vegum British Council i Edinborg sumrin 1998 og 2000. Signý var kennari í Stykkishólmi 1975-1982, leikhússtjóri á Akureyri 1982-1986, leikhúsritari Þjóðleik- hússins 1986-1991, leikhússtjóri á Akureyri öðm sinni 1991-1993 og framkvæmdastjóri Listahátíðar í Reykjavík 1994-1999 þar til hún var ráðin menningarmálastjóri Reykjavíkurborgar. Auk fyrrnefndra starfa hefur Signý m.a. leikstýrt, þýtt og ritað leikrit, unnið við dagskrárgerð í út- varpi og sjónvarpi og verið lausa- penni við tímarit og dagblöð. Signý hefúr tekið mikinn þátt í fé- lagsstörfum, lék með leikhópnum Andróklesi í Kaupmannahöfn á námsámnum, var fomiaður Félags islenskra námsmanna í Kaupmanna- höfn 1971-1972, formaður Leikfé- lagsins Grímnis i Stykkishólmi 1977-1982, í stjórn Bandalags ís- lenskra leikfélaga 1979-1982, stofnforseti Málfreyjudeildarinnar Emblu í Stykkishólmi 1981-1982, í stjórn Zontaklúbbs Akureyrar 1985-1986, var fulltrúi LA í leik- listarráði og skólastjóm Leiklistar- skóla Islands og formaður starfs- mannafélags Þjóðleikhússins 1990-1991. Hún hefúr setið í ffam- kvæmdastjórn IFEA-Europe (al- þjóðleg samtök listahátíða) undan- farin fjögur ár, er í skólanefnd Tón- listarskólans í Reykjavík, stjórn Parkinsonsamtakanna, nefnd á veg- um samgönguráðuneytisins um menningartengda ferðaþjónustu, verkefnastjórn menningamætur og starfshópum um ýmis mál hjá Reykjavíkurborg eins og mótun menningarstefnu borgarinnar. Signý giftist Ólafi H. Torfasyni rithöfundi árið 1969 og átti með honum fjögur böm, eitt þeirra er lát- ið en þijú em uppkomin. Þau Ólafúr skildu eftir rúmlega 20 ára sambúð og er sambýlismaður hennar Árni Möller, framkvæmdastjóri Borgar- leikhússins. Office 2000 leyfi til sölu Til sölu 14 stk. af Office 2000 leyfum (Windows, Word, Excel, Access o.fl.). Leyfin seljast öll í einu og mjög ódýrt, á um hálffvirði. Tilboð sendist á netfangið gudmarna@li.is og þá mun verða haft samband. 1 26

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.