Hekla - 01.04.1939, Síða 3

Hekla - 01.04.1939, Síða 3
H E K L A O vJ DÝRAÞINGIÐ. Pað var mikið um að vera daginn, sem dýrin héldu þing'. Allur skógurinn iðaði af margskonar dýrum. Pað hafði líka verió mikið að gera dagana fyrir þing- ið„ hjá dýrum skógarins. Pau höfðu orðið að safna greinum og iaufi í hááæti handa Ijóninu, en það var konungur þeirra. Og það stóð heima, að morg- uninn, sem þingið átti að vera„ var hásætið tilbúið. Nú komu ljónin. Fremst gekk gamalt karl-ljón. Það var nú konungurinn. Nú settist hann í hásætið, en. reig'ði sig nokkuð mikið aftur, svo að það lá við að hann ylti um koli, en tókst þó að ná jafnvæginu. Konungurinn kallaði nú á þrjá skógarbirni og lét þá sitja að baki sér. Og nú fór vel um hans hátign. Fyrstur kom tígurinn. »Má ég tala fyrst.?« sagði hann. »Pað er bezt«, sagði konungur. »Ég á heima í mestum hluta Asíu frá Mesópótamíu og norður í Síberíu og •—--- hm„ ham, nú get ég ekki sagt meira«. Svo lallaði hann burtu. Nú kom hlébarðinn. Hann sagði: »Eg á heima í Asíu og Afríku. Menn telja mig fegurstan, fimastan og siægastan af öllum rándýr- um. Nú hef ég ekki meira að segja. »Nóg komið af svona raupi«, sagði Ijónið og leit iililega til hans. Hérinn kom hoppandi út úr runna. »Ég er á stærð við vænan kött«, byrjaði hann. »Eyrun eru þriðjungi stærri en höfuð...« Hér þagn- Tý— M—f-c. j Tígrisdýr. aði hérinn skyndiiega, því að lítil mús stökk upp á bakið á honum. Hún beit í eyrað á honum um leið, og svo hljóp hún upp í sjálft hásætið. Birnirnir urðu dauðhræddir og flýðu. Ljónið valt aftur á bak og heyrðust þá brak og brestir. Við það skelfdust skógardýrin og flýðu sem fætur tog- uðu heim til sín. Par með var þessu dýraþingi lokið. María Sigurjónsdóttir (10 ára), Sigurður Karlsson (10 ára). Hermann Sigurjónsson (9 ára). Héri.

x

Hekla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hekla
https://timarit.is/publication/1064

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.