Uppeldi og menntun - 01.01.2014, Síða 20

Uppeldi og menntun - 01.01.2014, Síða 20
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 23(1) 201420 Hver j ir fara í kennaranám og Hvers vegna? UMrÆÐa Í rannsókninni, sem hér hefur verið fjallað um, kemur fram að íslensku þátttakend- urnir í grunnskólakennaranámi á Menntavísindasviði 2009 voru að meirihluta konur sem aldar voru upp á Íslandi með íslensku að móðurmáli. Í rýnihópaviðtali kom fram að meirihluti íslensku grunnskólakennaranemanna átti náinn ættingja sem var með kennarapróf. Þetta leiðir hugann að því hvort kennarahópurinn er nægilega fjölbreyttur. Ýmsir fræðimenn hafa bent á stéttamun þann sem sjá má milli hópa innan sama samfélags þar sem einstaklingar koma með heimamenningu sína sem er ólík, m.a. er varðar tungumál, viðhorf, og færni (Bernstein og Lundgren, 1983; Einarsson, 2004; Säljö, 2003). Þessi munur gerir ákveðnum hópum erfitt fyrir þegar í skólann kemur þar sem oft verður mikill munur á skólamenningu og heimamenningu. Þá eru kennarar einnig fulltrúar sinnar heimamenningar sem hefur mótandi áhrif á tungutak þeirra og viðhorf (Banks, 2008; Brooker, 2002; Santoro, 2007). Því má segja að þörf sé á skóla þar sem hinum fjölbreytilega bakgrunni nemenda sé mætt með breiðari félagslegum og menningarlegum bakgrunni grunnskólakennara (Hanna Ragnarsdóttir, 2012). Í ljósi hinnar breyttu stöðu í íslensku samfélagi, þar sem rúmlega 5% nemenda í grunnskólum landsins eru með annað móðurmál en íslensku, verður sú spurning einnig áleitin hvernig megi stuðla að því að nemendur með fjölbreyttan bakgrunn og tungumál sækist eftir kennaramenntun. Hanna Ragnarsdóttir og Hildur Blöndal (2007) hafa bent á mikilvægi þess að grunnskólakennarar séu af ólíkum og fjölbreytt- um uppruna, bæði menningarlegum og trúarlegum. Þær telja að það sé eina leiðin til að skapa þá þvermenningarlegu færni sem skólinn þarf á að halda. Hanna Ragnars- dóttir (2012) bendir á gildi þess að kennarar séu með ólíkan menningarbakgrunn og endurspegli samfélagið. Þá fjallar hún um þær niðurstöður rannsókna sinna að kennaranemar af erlendum uppruna í Kennaraháskólanum hafi upplifað sig í jaðar- stöðu í kennaranáminu en séu hins vegar í mikilvægri stöðu í starfi í grunnskólunum, ekki síst vegna skilnings þeirra á reynslu nemenda. Hún bendir á að huga þurfi að því í kennaranáminu hvernig laga megi það að breyttu samfélagi með breyttum kröfum, einnig varðandi það hverjir verði kennarar. Þá má einnig velta fyrir sér nauðsyn þess að kennaranemar komi úr ólíkum þjóðfélagshópum, með ólík viðhorf, tungutak og reynslu (Colnerud og Granström, 2002; Darling-Hammond, 2006). Eins og fram kom í niðurstöðukaflanum skar Ísland sig úr með hæsta hlutfall kven- kyns nema sem hófu nám á grunnskólakennarabraut Menntavísindasviðs árið 2009, eða 83% meðan karlar voru 17%. Til að fá svör við því af hverju karlmenn sækja ekki meira í kennarastarfið en raun ber vitni gerðu Blank og Palmqvist (1998) athyglis- verða rannsókn sem þeir fjalla um í bók sinni Vilken man vill bli lärare?! Meginniður- stöður þeirra voru að þeir fáu karlmenn sem fara í kennaranám brjóta upp hið hefð- bundna kynjamynstur. Þeir sem völdu kennarastarfið skera sig úr fyrir það að velja sér ekki starf út frá stöðutákni og launum heldur persónulegum áhuga, en þeir töldu mjög mikilvægt að standa vörð um stöðu barna í samfélaginu. Í þessu samhengi eru áhugaverðar niðurstöður úr rannsókn Guðbjargar Vilhjálmsdóttur (2004) þar sem hún
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.