Uppeldi og menntun - 01.01.2014, Page 36
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 23(1) 201436
fjöLmenningarLegT námssamféLag
Að mínu mati verður góð menntun alltaf að vera valdeflandi fyrir alla – ekki ein-
göngu fyrir konur. Það væri hin fullkomna staða. Alþjóðlega námið var að því leyti
meira valdeflandi fyrir mig en annað nám sem ég hef stundað að ég lærði fyrst og
fremst að treysta á sjálfa mig. Ég fékk á tilfinninguna að „Já, ég get það!“ Ég fann hvar
styrkleikar mínir lágu og einnig veikleikar og ég veit að ég get þroskast enn meira.
Að auki er gott að uppgötva að maður er ekki einn og getur talað um það (þ.e. að vera
útlendingur) og það er valdeflandi líka.
Vida lýsti því sérstaklega að hún upplifði Ísland sem land sem styðji við valdeflingu
kvenna, ekki síst í gegnum menntun. Á Íslandi búum við við jafnrétti til náms, strákar
og stelpur geta valið að stunda að stunda það nám sem þau kjósa og jafnræðisregla
stjórnarskrárinnar (65. grein) tryggir enn fremur jafnan rétt og möguleika einstak-
lingsins óháð stöðu eða uppruna (Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, útgáfa
143a). Í rýnihópaviðtölunum og frásögnum sínum fjölluðu þátttakendur ítarlega um
reynslu sína af náminu og hvernig þær efldust við virka þátttöku í þeim fjölbreyttu
og krefjandi verkefnum sem þær þurfu að leysa. Þær lýstu því jafnframt að víðsýni
þeirra hefði aukist strax á fyrsta ári í náminu. Viola lýsti reynslunni af því að vera
útlendingur og hversu miklu máli það hefði skipt hana að fá tækifæri til að hitta aðra
innflytjendur á Íslandi og læra af reynslu þeirra. Viola talaði um mikilvægi þess að fá
staðfestingu í gegnum samskipti við samnemendur að hún væri ekki ein um að eiga
stundum erfitt með íslenskuna og að skilja ekki til fullnustu ýmislegt í íslensku sam-
félagi. Áhrif námsins voru að hennar mati bæði persónuleg og fagleg og spáði hún
því að langtímaáhrifin gætu jafnvel verið enn mikilvægari en hún gæti ímyndað sér á
þessum tímapunkti.
Vivienne tók í svipaðan streng og taldi sig ekki aðeins hafa lært heilmikið um
menntun heldur líka um fjölmenningarhyggju og að það hafi opnað augu hennar.
Hún lýsti enn fremur ánægju sinni með að fá tækifæri til að stunda nám og læra með
fólki alls staðar að úr heiminum og losa sig þannig við ákveðnar staðalmyndir sem
hún sagðist í þröngsýni sinni hafa alið á og ættu sér rætur í því menntunarumhverfi
sem hún hafði fram að þessu verið mótuð af í heimalandi sínu. Vivienne lýsti reynsl-
unni þannig:
Ég hef aldrei fundið eins mikla umbun og gleði eins og að vera í náminu og hitta fólk
af ólíkum uppruna. Að auki snúast námskeiðin öll um alþjóðlega menntun og að
byggja á reynslu sinni og færa hana í menntunarlegt samhengi.
Hún bætti við að þegar hún hafi ígrundað líf sitt áður en hún hóf námið, þá hafi hún
í raun bælt niður fyrri reynslu þar sem hún virtist einskis virði. Sá menningarheimur
sem hún var sprottin úr hafi þannig að mati hennar sjálfrar verið lítils virði og ósið-
menntaður.
Að sögn kvennanna er menntun mikilvæg leið til að stuðla að jafnrétti í samfélög-
um. Vanda orðaði þetta þannig: „Menntun veitir jöfn tækifæri og er staður til að koma
saman.“
Þátttakendur lýstu enn fremur nokkrum vanköntum á náminu og hvað mætti
betur fara, einkum þeir þátttakendur sem sóttu námskeið fyrsta árið sem námið var