Uppeldi og menntun - 01.01.2014, Síða 39

Uppeldi og menntun - 01.01.2014, Síða 39
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 23(1) 2014 39 Hanna ragnarsDÓTTir og HiLDUr BLönDaL Í máli þátttakenda kom enn fremur skýrt fram að þáttunum þremur úr líkani Gurin o.fl. (2002) eru gerð góð skil í náminu þar sem nemendahópurinn er fjölbreyttur og skipulag náms með þeim hætti að raddir nemenda fá að heyrast. Kennsluaðferðir og námsmat er afar fjölbreytt og nemendum eru skapaðar aðstæður til lýðræðislegrar þátttöku. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna fram á mikilvægi þess að virkja nemendur og ekki síst konur af erlendum uppruna til þátttöku í námi og jafnframt að tryggja þeim aðgengi að námsleiðum sem geta eflt þær í lífi og starfi. Ljóst er af niðurstöðum rann- sóknarinnar að konur af erlendum uppruna á Íslandi hafa ekki allar tækifæri til að stunda nám á íslensku og því er mikilvægt að nám á ensku sé valkostur. Einnig er mikilvægt að í öllu námi sé hugað að ólíkum uppruna, reynslu og þekkingu nemenda og byggt á því í kennslu (Gay, 2000; Nieto, 2010). Slíkar áherslur eru líklegar til vald- eflingar og til að styrkja sjálfsmynd nemenda eins og dæmin úr viðtölunum hér að ofan hafa sýnt. Þátttakendur töluðu enn fremur um mikilvægi þess að láta gott af sér leiða til samfélagsins og sumar lýstu mjög mótuðum hugmyndum um hvernig þær hygðust gera það, t.d. með því að bjóða stuðning við móðurmál barna af erlendum uppruna. Helstu niðurstöður þessarar rannsóknar renna stoðum undir þá skoðun og reynslu höfunda að sá hugmyndafræðilegi grunnur sem námið byggir á skili sér í reynd inn í námið og alla þætti þess, hvort sem um er að ræða kennsluaðferðir, námsmat eða virka þátttöku nemenda. Samkvæmt niðurstöðunum eflir námið auk þess nemendur þannig að þeir öðlast meiri trú á eigin getu og vilja til að láta gott af sér leiða. Jafnframt er ljóst að huga þarf betur að nánari samskiptum og samvinnu nemanda í alþjóðlega náminu við aðra nemendur á sviðinu til að koma í veg fyrir einangrun. Á Íslandi verða nemendahópar á háskólastigi sem og á öðrum skólastigum sífellt fjölbreyttari (Hagstofa Íslands, 2012) og er því brýn þörf á að endurskoða áherslur í námi og kennslu til að bregðast við því. Í því samhengi má líta til reynslu af al- þjóðlegu námi í öðrum löndum (Carroll og Ryan, 2005; Gundara, 2000). Jafnframt er mikilvægt að sú margvíslega reynsla og þekking sem býr hjá fólki af ólíkum uppruna sé nýtt samfélaginu og ekki síst menntakerfinu til góðs eins og ýmsir höfundar hafa bent á (Bartolo og Smyth, 2009; Hanna Ragnarsdóttir, 2010; Hanna Ragnarsdóttir og Hildur Blöndal, 2011; Ladson-Billings, 1994, 2001; Lumby og Coleman, 2007; Santoro, 2007; Santoro og Reid, 2006; Schmidt og Block, 2010). Alþjóðlegt nám í menntunar- fræði getur þannig verið nokkurs konar lykill að íslensku menntakerfi fyrir fjölbreytta nemendahópa, styrkt þá til frekari menntunar og veitt þeim ný tækifæri, eins og nem- endur í ofangreindri rannsókn hafa staðfest. Jafnframt getur reynslan af því nýst við þróun annarra námsleiða á háskólastigi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.