Helgafell - 01.04.1942, Side 12

Helgafell - 01.04.1942, Side 12
52 HELGAFELL eftir fyrirskipunum þess. Þeir höfðu samvinnu við hernjósnakerfi Japana og Þjóðverja og náið samstarf við þýzka ræðismenn um framkvæmd njósna og skemmdarstarfsins. Þeir höfðu þegar látið af hendi við þýzk og japönsk hernaðaryfirvöld leyndarmál um landvarnakerfi ríkisins. Þeir höfðu fallizt á að starfa með Japönum og Þjóðverjum í komandi styrjöld og láta síðan af hendi við þá lönd á báða bóga, gegn því að njóta aðstoðar þeirra við að setja á stofn minna rúss- neskt ríki, er þeir mættu sjálfir stjórna“. Þannig segist Joseph E. Davies frá um málaferlin, og hann bætir við: ,,Til þess að gera sér fulla grein þess, hvað hér er á ferðinni, þá sam- svarar það því, að fjármálaráðherra vor, Morgenthau, verzlunarmálaráð- herra vor, Jones, aðstoðarutanríkis- málaráðherrann Welles, Bullit sendi- herra og Kennedy sendiherra og Early einkaritari forsetans játuðu á sig að hafa gert samsæri um það að vinna með Þýzkalandi að innrás í Bandarík- 4 • in . Krestinsky aðstoðarutanríkismála- fulltrúi játaði í heyranda hljóði fyrir rétti að hafa þegið 250 þús. ríkismörk á ári fyrir að koma upp njósnarstöðv- um fyrir Þjóðverja. Grinko verzlunarmálafulltrúi játaði að hafa unnið að því með yfirmönnum í hernum að opna landamæri Ukrainu fyrir innrás Þjóðverja. Rosengoltz verzlunarmálafulltrúi játaði að hafa afhent herstjórn þýzka hersins hernaðarleyndarmál, einnig þýzka sendiherranum í Moskva. Sokolnikov, fyrrum sendiherra í Bretlandi, játaði að hafa rekið njósnir fyrir Japana og gert við þá landráða- samning. Þessi dæmi verða að nægja af mörg- um. En hitt er staðreynd, sem nú er orð- in deginum ljósari, að það var engin fimmta herdeild til í Rússlandi 1941, þegar innrásarherinn þurfti á henni að halda. Hún hvarf í hreingerningunum. VARNARLÍNAN £n með öllu þessu er AUSTAN VIÐ þó ekki sannað, að VOLGU Rússar séu ósigrandi. Það er óendanlega dýrmætt í hernaði að hafa ekki Quislinga og föðurlands- svikara innanborðs á fleytu sinni, en það tryggir engan sigur. Meira þarf til. Einhuga þjóð, nógan mannafla til vopnaburðar og starfa, hráefni og iðn- aðartækni. Nú sé það fjarri mér að gera lítið úr þeirri aðstoð, sem Rúss- land hefur þegar notið og nýtur stöðugt frá Bretlandi og Bandaríkjunum. En í þessari styrjöld getur allt skeð, einnig það, að fyrir þessar sendingar taki að miklu leyti af hernaðarástæðum. Hvað er þá um Rússa ? Er viðnámsvon þeirra og sigurvon byggð á því, sem þeir eiga undir sjálfum sér ? Enginn skyldi gera lítið úr því, hví- líkt heljaráfall það var framleiðslu- kerfi Rússa, bæði um iðnað og mat- væli, að missa Dondalinn og Vestur- Rússland þegar í fyrstu atrennu. Vetrar- sókn Rússa hefur ekki nema að mjög litlu leyti bætt þeim það tjón, að því er framleiðsluna varðar. En hinu má ekki gleyma, að Rússland er ótrúlega stórt, og náttúruauðæfi þess nærri takmarka- laus. Mér hefur skilizt, eins og ég lét í ljós í útvarpserindi fyrir hartnær ári, að höfuðvamarlína Rússlands byrji austan við Volgu og nái langt austur fyrir Ural. Þar eystra eru, þrátt fyrir allt, höfuðstöðvar hinnar rússnesku her- gagnaiðju. Ég nefni til dæmis járniðn-

x

Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.