Helgafell


Helgafell - 01.09.1944, Síða 195

Helgafell - 01.09.1944, Síða 195
BÓKMENNTIR 353 mjög sem hann þjáist. Sjúkdómurinn hefur að vonum mikil áhrif á hann, og viðhorf hans til lífsins. Sjálfur telur hann, að veikindin hafi valdið miklu um þroska sinn. Auk þess urðu þau orsök til þess, að hann hóf ljósrannsóknir sínar. Hann hugsar og mikið um trúmál á þessum árum. I bréfköflum, til unnustunnar, kynnist maður vel hugðarefnum hans og á- hyggjum. Einhver þessara bréfa hefði kannski mátt birta í heild, en fækka bréfaköflunum að sama skapi, enda margir um svipað efni. Meginkafli bókarinnar er um vísindastörf Finsens. Frásögnin er þar sérstaklega létt og lifandi, og framabraut hans líkust ævintýri. — ,,Sannsögli, heiðarleiki, gætni og heilbrigð skyn- semi“, eru leiðarstjörnur hans. Hann fann mik- il, en einföld sannindi með rannsóknum sín- um á ljósinu og mætti þess. — Nokkurs bitur- leika gætir hjá Finsen í garð háskólans og læknaprófessoranna, og furðar mann á því. — Læknastéttin og háskólinn greiddu götu hans frá byrjun, en ríki og bær, auk ýmissa stuðn- ingsmanna, bjuggu honum ákjósanleg ytri skil- yrði til rannsókna og lækninga, til mikils sóma fyrir dönsku þjóðina. — ,,Forðist allt vísinda- legt tildur og stærilæti eins og pestina“, segir Finsen í reglum fyrir eftirmenn sína við Ljósa- Btofnunina. Kannski hefur hann orðið einhvers slíks var í viðskiptum sínum við suma prófess- orana. Sjálfur var hann lítillátur og sóttist ekki eftir viðurkenningu sér til handa. Vera má þó, að honum hafi sárnað, að þegar hann fékk Nó- belsverðlaunin 1903, var læknadeildin ekki á einu máli um að honum bæri þau. Ekki er minna um vert síðari kafla bókar- innar, sem lýsa Finsen sem manni. Persónuleiki hans og skapgerð eru einstök og stórbrotin. Langvarandi sjúkdómur hefur ekki beygt hann, heldur þroskað hann og göfgað. Hann skilur þá sem þjást, áhyggjur þeirra og viðhorf til lífsins. Sjúklingar þeir, sem hann var svo ham- mgjusamur að geta hjálpað, lúpussjúklingarn- ir, voru utanveltu við mannfélagið. Þeir voru holdsveikisjúklingar þeirra tíma. Hann kom þeim á réttan kjöl. Hann græddi sár hinna sjúku og gaf þeim nýja trú á lífið. Síðustu dagar Finsens voru daprir, en hann bar kross sinn með hugprýði til hinztu stund- ar. Hann fékk styrk í trú sinni, og hann kveður sina nánustu með þessum orðum: ,,Og svo fel ég ykkur öll guði á vald, þar á ég við gæzku og kærleika**. Oll er frásögnin létt og lifandi og bókin í heild fróðleg og skemmtileg. Lesandinn lifir og’ hrærist með söguhetjunni og leggur ógjarn- an frá sér bókina, fyrr en henni er lokið, þótt sumir kaflarnir séu í lengra lagi. Mynd sú af Finsen, sem hér er brugðið upp, er einstak- lega heillandi. Hann er ekki aðeins frábær vís- indamaður, heldur einnig sérstæður að göfug- lyndi og ljúfmennsku. Það er hverju orði sann- ara, sem dr. Claessen segir um hann í hinum greinagóða formála sínum, ,,að höfuðið bar ekki hjartað ofurliði“. Góð bók er göfgandi. Þessi ævisaga Finsens er í senn fróðleg og ágætlega rituð. Hún hef- ur auk þéss hverjum manni boðskap að bera, á þeim tímum haturs og samúðarleysis, sem við lifum á. Ljóssins börn vilja þó allir vera, en það var Finsen öðrum fremur. Allir, sem stuðl- að hafa að útgáfu bókarinnar á íslenzka tungu, eiga þakkir skilið. Gísli Fr. Petersen. Ur minningasafni menntakonu Thora Fri8ri\sson: DR. GRÍMUR THOM- SEN. — ísafold 1944. 69 bls. Verð 10—. Þátt þennan og raunar fleiri minningaþætti hefur Thora Friðriksson skráð til íhugunar um merka menn, sem hún hefur kynnzt um dag- ana. Við vitum allmargt af æviatriðum Gríms af skráðum heimildum. En sjón er sögu rík- ari, og Thora segir vel frá atvikum. Þeim fækkar mjög og hverfa senn, sem höfðu náin persónukynni af hinu dula skáldi á Bessastöð- um. Ahrifum Byrons og Sörens Kirkegaards á Grím stúdent í Höfn er lýst í ritinu. Þó að ég hafi ekki sannfærzt um, að áhrifin á Grím frá Kirkegaard hafi orðið mjög mikil, hlýtur þessi lýsing bókmenntaumhverfisins að vekja um- hugsun. Gerð er grein fyrir ritum Gríms í æsku, um franskan skáldskap á fyrstu áratugum 19. aldar (Om den nyfranske Poesi, Kbh. 1841) og um Byron (doktorsritgerð). Afstaða Gríms og bókmenntaskilningur eru borin saman við afstöðu og afrek Brandesar síðar, og fer því fjarri, að sá samanburður við stórmennið saki Grím. Glöggskyggni Gríms og samúð gagnvart Andersen, hinu lítilsvirta ævintýraskáldi Dana þá, er nokkuð lýst og minnzt margs í viðhorfi hins lífsreynda íslenzka skálds við bókmennt- HELGAFELL 1944 23
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196
Síða 197
Síða 198
Síða 199
Síða 200
Síða 201
Síða 202
Síða 203
Síða 204
Síða 205
Síða 206
Síða 207
Síða 208
Síða 209
Síða 210
Síða 211
Síða 212
Síða 213
Síða 214
Síða 215
Síða 216
Síða 217
Síða 218
Síða 219
Síða 220
Síða 221
Síða 222
Síða 223
Síða 224
Síða 225
Síða 226
Síða 227
Síða 228
Síða 229
Síða 230
Síða 231
Síða 232
Síða 233
Síða 234
Síða 235
Síða 236
Síða 237
Síða 238
Síða 239
Síða 240
Síða 241
Síða 242
Síða 243
Síða 244
Síða 245
Síða 246
Síða 247
Síða 248
Síða 249
Síða 250
Síða 251
Síða 252

x

Helgafell

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.