Morgunblaðið - 05.03.2013, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.03.2013, Blaðsíða 2
FÓTBOLTI Tómas Þór Þórðarson tomas@mbl.is Stundum þarf jafnvel besti knatt- spyrnumaður heims – mögulega besti knattspyrnumaður sögunnar – smáhjálp. Þótt Lionel Messi virðist stundum ómannlegur hvað varðar markaskorun getur hann ekki alltaf dregið vagninn aleinn. Hann getur það oftast – en ekki alltaf. Barcelona hefur litið ótrúlega vel út á leiktíðinni og er það Argent- ínumanninum að mestu leyti að þakka. Mörkin hans 48 hafa komið sér vel og er hann búinn að skora í 16 deildarleikjum í röð, sem er met. Messi er mikið í því að setja met. En nú kveður við annan tón í Barcelóna. Á tólf dögum breyttist tímabilið hjá Katalónunum. Liðið, sem stefndi harðbyri að þrennunni (Spánartitli, bikarmeistaratitli og meistaradeildarsigri), á á hættu að vinna „aðeins“ einn titil. Þrjú vond töp Ekki bjuggust margir við því að AC Milan myndi gera Barcelona skráveifu í 16-liða úrslitum Meist- aradeildarinnar en annað kom á daginn. Ítalska liðið spilaði gífurlega sterkan varnarleik og lokaði á Messi, sem spilaði einn sinn versta leik á tímabilinu. Það var ekki að spyrja að því, Argentínumaðurinn skoraði ekki og enginn annar tók af skarið. Vissulega þarf AC Milan að mæta á Nývang í næstu viku og passa að gestirnir skori ekki þrívegis en það er ekki ofsögum sagt að Mílanóliðið hafi dældað meistaradeildarvonir Barcelona mikið. Í fyrri El Clásico-leiknum í síð- tímabilinu og aðeins skorað eitt deildarmark og fjögur mörk alls, þar af tvö gegn 2. deildar liði í bik- arkeppninni. Það virðist vera nokkuð ljóst að hann hefur lítið að gera í Barcelona. Lionel Messi er búinn að skora 48 mörk á tímabilinu en hinir framherj- arnir fjórir til samans 27 mörk. Þótt mörkum Andrés Iniesta og Cescs Fábregas sé bætt við – þar sem þeir spila stundum frammi – ná þeir sex saman ekki Messi í markaskorun. Það er vissulega til marks um gæði þessa ótrúlega knattspyrnumanns en sýnir vel hversu litla hjálp hann fær við markaskorun þegar liðið þarf á því að halda. Þegar rýnt er í tölfræði framherja Barcelona kemur í ljós að ógnin af öðrum en Messi er ekki mikil. Vissu- lega fer spilið að miklu leyti í gegn- um Argentínumanninn en í liði sem búið er að skora 83 deildarmörk hafa framherjarnir áorkað af- skaplega litlu. David Villa er næstmarkahæstur í Barcelona með sjö deildarmörk og tólf alls. Ekki nema fjórfalt minna en Messi hefur skorað. Landsliðs- maðurinn Pedro er með fimm deild- armörk og sex mörk alls. Afskaplega slakt fyrir framherja í því sem á að heita besta félagslið sögunnar. Þá er nú ekki minnst á Alexis Sánchez sem hefur verið týndur á ustu viku, þar sem stórveldin og erkifjendurnir Barcelona og Real mættust í seinni leik liðanna í und- anúrslitum bikarsins, lokuðu gest- irnir frá Madríd á Messi, sem spilaði aftur frekar illa. Eins og í Mílanó vikunni áður fékk Argentínumað- urinn litla hjálp við markaskorun frá samherjum sínum og svo fór að Bör- sungar voru niðurlægðir á heima- velli, 3:0. Púðurskot framherjanna Messi tókst að skora um helgina í El Clásico í deildinni, hans 39. deild- armark, takk fyrir, en Real vann aft- ur, 2:1, og enn eina ferðina gat eng- inn annar en Lionel Messi skorað. Messi fær litla aðstoð  Lionel Messi skorar um helming marka Barcelona  Lítil ógn af öðrum framherj- um þegar lokað er á Argentínumanninn  Sex leikmenn ná ekki Messi í markaskorun Eins manns sóknarher Lionel David Pedro Christian Alexis Andrés Cesc Messi Villa Rodriguez Tello Sánchez Iniesta Fábregas Deildarleikir 26 17 22 12 18 19 21 Deildarmörk 39 7 5 4 1 2 6 Bikarleikir 5 5 5 6 6 5 7 Bikarmörk 4 5 1 0 2 2 2 Meistaradeildarleikir 7 5 6 3 5 5 5 Meistaradeildarmörk 5 0 0 1 1 1 1 Samtals 48 12 6 5 4 5 9 HANDBOLTI Tómas Þór Þórðarson tomas@mbl.is „Þetta var vægast sagt furðulegur leik- ur,“ segir Jóhann Gunnar Einarsson, stórskytta Framara, um sigurinn á Val, 30:29, að Hlíðarenda síðastliðið fimmtu- dagskvöld. Jóhann Gunnar fór einu sinni sem oftar á kostum fyrir Safamýrarliðið og skoraði tíu mörk í fimmtán skotum. Hann er leikmaður 18. umferðar í N1- deildinni hjá Morgunblaðinu fyrir frammistöðu sína. Sigurinn tryggði Fram sæti í úrslitakeppninni en liðið getur enn náð heimaleikjarétti í undanúrslitum. Leikurinn breyttist snögglega úr handbolta í slagsmál og almenna vitleysu þegar Orra Frey Gíslasyni, línumanni Vals, var vikið af velli með rautt spjald eftir fimm mínútur en Valsmenn voru vægast sagt ósáttir með dómara leiksins. Allir trylltir „Þessir dómarar virðast njóta afar lít- illar virðingar hjá leikmönnum. Þeir geta verið ágætir en stundum taka þeir ein- hverja mikilvæga ákvörðun og þá tryllist allt. Það reyna allir að láta þá jafna þetta út og þá verður allt tryllt. Þarna varð Valsbekkurinn trylltur, svo Fram- bekkurinn og áhorfendur. Það var bara allt tryllt,“ segir Jóhann Gunnar en Vals- menn börðu hressilega á Frömurum í leiknum. „Þetta var mjög harður leikur og hefði spilast allt öðruvísi ef Orri hefði fengið tvær mínútur en ekki rautt. Samkvæmt bókinni er þetta kannski rautt spjald en ég hef ekkert vit á þessu. Hefði hann bara fengið tvær hefði leikurinn verið í meira jafnvægi. Það var náttúrlega mikið í húfi fyrir bæði lið en þetta leyst- ist bara upp í hálfgerða vitleysu.“ Fagnaði ekkert inni í klefa Jóhann Gunnar skoraði sigurmark leiksins úr vítakasti eftir að leiktíminn var liðinn. „Mér fannst rosalega lítil pressa að taka þetta vítakast því Valur átti alveg skilið eitt stig og okkur dugði eitt stig til að komast í úrslitakeppnina. Það hefði enginn kvartað ef ég hefði klúðrað þessu,“ segir Jóhann Gunnar sem hefur áður farið á vítalínuna í svip- uðum aðstæðum og gengið upp og ofan. „Ég tók einu sinni svona vítakast í Evrópukeppninni tímabilið 2008/2009. Mark hefði komið okkur í framlengingu en ég skaut í slána þannig að þá var það búið. Svo fór ég líka á vítalínuna tvisvar undir blálokin gegn Stjörnunni í bik- arleik tímabilið áður og þar skoraði ég úr báðum en það var ekki eftir að leik var lokið,“ segir Jóhann Gunnar. Íhugaði að hætta Þessi magnaða skytta hefur skorað 93 mörk til þessa á tímabilinu og er fimmti markahæsti leikmaður deild- arinnar. Hæfileikar Jóhanns Gunnars eru óumdeildir en meiðsli í skotöxlinni, þeirri vinstri, hafa angrað hann lengi Morgunblaðið/Golli Öflugur Jóhann Gunnnar Einarsson er í hópi markahæstu leikmanna deild- arinnar og hann skoraði 10 mörk í sigrinum á Val í 18. umferðinni. Rosalega p  Jóhann Gunnar Einarsson leikmaður 18 gegn Val  Afskaplega sérstakur leikur  2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2013 England Aston Villa – Manch. City........................0:1 Carlos Tévez 45. Staðan: Man.Utd. 28 23 2 3 68:31 71 Man.City 28 17 8 3 51:24 59 Tottenham 28 16 6 6 49:33 54 Chelsea 28 15 7 6 56:30 52 Arsenal 28 13 8 7 53:32 47 Everton 28 11 12 5 44:35 45 Liverpool 28 11 9 8 53:34 42 Swansea 28 10 10 8 39:34 40 WBA 28 12 4 12 38:37 40 Fulham 28 8 9 11 39:44 33 Stoke 28 7 12 9 26:33 33 West Ham 28 9 6 13 32:41 33 Norwich 28 7 11 10 27:45 32 Sunderland 28 7 9 12 31:38 30 Newcastle 28 8 6 14 38:49 30 Southampton 28 6 9 13 39:51 27 Wigan 28 6 6 16 33:55 24 Aston Villa 28 5 9 14 26:53 24 Reading 28 5 8 15 34:54 23 QPR 28 3 11 14 21:44 20 Danmörk Esbjerg – AGF ..........................................2:1  Arnór Smárason var ekki í leikmanna- hópi Esbjerg. Staðan: København 21 15 5 1 49:19 50 Nordsjælland 21 11 5 5 38:21 38 Randers 21 10 4 7 27:31 34 AaB 20 10 2 8 35:27 32 OB 20 9 4 7 35:28 31 AGF 21 8 6 7 36:29 30 Midtjylland 21 6 7 8 28:32 25 Horsens 21 5 8 8 19:30 23 Esbjerg 21 5 7 9 20:25 22 SønderjyskE 21 6 3 12 29:42 21 Silkeborg 21 6 3 12 25:44 21 Brøndby 21 3 8 10 21:34 17 Ítalía B-DEILD: Verona – Padova ......................................0:2  Emil Hallfreðsson lék allan leikinn með Verona. Spánn Sevilla – Celta Vigo ...................................4:1 Lengjubikar karla B-DEILD, 2. riðill: ÍR – Grótta.................................................0:1 KNATTSPYRNA Danmörk Bjerringbro-Silkeb. – Skanderborg .32:26  Guðmundur Árni Ólafsson skoraði ekki fyrir Bjerringbro-Silkeborg. Svíþjóð Lugi – Kristianstad ............................ 23:25  Ólafur A. Guðmundsson skoraði 4 mörk fyrir Kristianstad. Hammarby – Ystad ............................. 27:24  Elvar Friðriksson skoraði 2 mörk fyrir Hammarby. HANDBOLTI NBA-deildin New York – Miami ............................... 93:99 LA Clippers – Oklahoma ................. 104:108 Washington – Philadelphia.................. 90:87 Orlando – Memphis ............................ 82:108 Sacramento – Charlotte..................... 119:83 Houston – Dallas .............................. 136:103 San Antonio – Detroit ........................ 114:75 Indiana – Chicago................................. 97:92 LA Lakers – Atlanta ............................ 99:98 Staðan í Austurdeild: Miami 43/14, Indiana 38/22, New York 35/ 21, Atlanta 33/25, Chicago 34/26, Brooklyn 34/26, Boston 31/27, Milwaukee 29/28, Philadelphia 23/35, Toronto 23/37, Detroit 23/39, Cleveland 20/39, Washington 19/39, Orlando 16/44, Charlotte 13/46. Staðan í Vesturdeild: San Antonio 47/14, Oklahoma 43/16, LA Clippers 43/19, Memphis 39/19, Denver 38/ 22, Golden State 33/27, Utah 32/27, Hou- ston 33/28, LA Lakers 30/30, Portland 27/ 31, Dallas 26/33, Minnesota 20/36, Phoenix 21/39, N.Orleans 21/39, Sacramento 21/40. Svíþjóð Sundsvall – Uppsala...........................69:102  Hlynur Bæringsson skoraði 22 stig og Jakob Örn Sigurðarson gerði 11 stig fyrir Sundsvall. KÖRFUBOLTI HANDKNATTLEIKUR 1. deild karla: Vestmannaeyjar: ÍBV – Grótta................ 18 Víkin: Víkingur – Fylkir ...................... 19.30 ÍSHOKKÍ Íslandsmót kvenna: Laugardalur: SR – Björninn .................... 20 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.