Morgunblaðið - 29.08.2013, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 29.08.2013, Blaðsíða 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2013 Viðamikil landslagsinnsetning Bryn- hildar Þorgeirsdóttur, „Mynd- heimur“, var afhjúpað við hátíðlega vígsluathöfn nýrrar hverf- ismiðstöðvar í Alingsås í Svíþjóð í gær. Verkið vann Brynhildur að hluta í samstarfi við skólabörn í hverfinu en það samanstendur af þremur skúlptúrum auk 23 „Krakkasteina“. Í viðtali lýsti Brynhildur þessu viðamikla verkefni þannig: „Á torg- inu sem er þarna við skólana set ég þrjá tengda skúlptúra sem eru um og yfir metri á hæð hver. Af einum fellur foss, lækur af öðrum og loks er tjörn á þeim þriðja. Ég vísa þarna í japanskar kenningar um garðinn, þar sem verkin mynda þríhyrning og standa fyrir grunnþættina mann- inn, himininn og jörðina. Svo er ég með fjall þar skammt frá, sem er tveir og hálfur metri á hæð … Ég er aldrei að endurskapa náttúru heldur vinn ég eins og nátt- úran,“ sagði hún. Í ávarpi sem Brynhildur flutti við vígsluna í gær þakkaði hún þeim sem völdu sig til verksins, að gera sér kleift að vinna að sínum eft- irlætis viðfangsefnum, list í almenn- ingsrými og kennslu. „Að skapa list fyrir almenningsrými er eins og að byggja hús og að mörgu þarf að hyggja,“ sagði hún. „Opinber lista- verk á að líta á sem sjálfsagðan hlut, þau eru jafn nauðsynleg og súrefni; ef það skortir þá líður okkur illa.“ Náttúruverk Brynhildur Þorgeirsdóttir með gestum við hluta innsetning- arinnar. „Opinber listaverk á að líta á sem sjálfsagðan hlut,“ segir hún. „Eins og náttúran“ Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Það er mikill munur á því að stjórna ungmennasveit sem þessari og sinfóníuhljómsveit sem skipuð er atvinnumönnum,“ segir hljómsveit- arstjórinn Kirill Karabits þegar hann fær sér sæti, sveittur en bros- mildur, að lokinni langri æfingu með I, Culture-hljómsveitinni í Gdansk í Póllandi. Hljómsveitin, sem skipuð er 100 ungum hljóðfæraleikurum frá sjö löndum í Austur-Evrópu, er þessa dagana á tónleikaferð um sex lönd og kemur fram í Eldborgarsal Hörpu í kvöld. Einleikari á tónleik- unum er hin 26 ára gamla Khatia Buniatishvili, píanóleikari frá Georgíu, sem hefur skotist hratt upp á stjörnuhimininn. Karabits er aðalstjórnandi Sinfón- íuhljómsveitarinnar í Bournemoth og hefur vakið umtalsverða athygli fyrir skarpa stjórn víða um lönd. Hann útskýrir muninn á að vinna með ungmennasveit sem þessari og atvinnumönnum. Með sveit sem þessari séu í raun engin mörk, hvað framfarir varði, á meðan aðeins sé hægt að ná ákveðið langt í því að koma hugmyndum stjórnanda í gegn þegar atvinnusveit á í hlut, enda sé þá oft aðeins æft í tvo daga fyrir hverja tónleika. „Það er hægt að ná frábærri út- komu með ungmennasveit. Þegar maður vinnur með hljómsveitinni í tíu daga í æfingabúðum, eins og hér, er hægt að ýta sveitinni býsna langt. Það er spennandi áskorun.“ Þetta er þriðja árið sem I, Culture sveitin er starfrækt. 600 hljóðfæra- leikarar á aldrinum 18 til 28 ára, í Póllandi, Hvíta-Rússlandi, Úkraíu, Moldóvíu, Georgíu, Aserbaídsjan og Armeníu, sóttu um að vera með og 100 voru valdir úr hópnum. Um helmingur hljóðfæraleikaranna hef- ur leikið áður með hljómsveitinni en Karabits segir sum vera að leika með stórri hljómsveit í fyrsta skipti. „Það er áskorun að reyna að við- halda þessum ferskleika,“ segir hann og gestir á æfingum sveit- arinnar finna vel hvað hópurinn er spenntur og hrífst þegar vel tekst til á erfiðum stöðum í tónverkunum. „Ég hef áður unnið með ung- mennasveitum og hef alltaf notið þess,“ segir stjórnandinn. „En það fer langur tími í verkefnið, nærri mánuður með tónleikaferðinni. En ég vissi strax að þetta yrði áhuga- vert. Ég þekki bakgrunn þessa fólks, sem er frá ólíkum lýðvelda fyrrverandi Sovétríkjanna. Þetta er minn heimur, ég ólst upp í þessu kerfi austurs og vesturs. Ég fæddist í Austur-Evrópu en starfa nú í vestr- inu; ég þekki muninn á hugarfarinu og afstöðunni til hlutanna. Ég veit líka hvernig á að ná árangri í báðum þessum heimum.“ Heillandi blanda Karabits segir tónlistarmenn- inguna vera gjörólíka í austri og vestri. Á Vesturlöndum leiti fólk allt- af að fullkomnun í leiknum og fram- úrskarandi árangur á því sviði er tal- inn mikilvægur, á meðan góður árangur þykir vissulega mikilvægur í Austur-Evrópu en er ekki jafn mik- ið forgangsatriði. „Hér eru tilfinn- ingarnar sem settar eru í tónlistina mikilvægari en mér finnst mikilvægt að hafa sitt lítið af hvoru. Hér vinna með okkur frábærir kennarar, sem flestir eru frá Englandi, og þeir vita hvernig á að ná góðum árangri í hljómsveit á stuttum tíma. Mér finnst þetta vera heillandi blanda.“ Þegar Karabits er spurður að því hvort ekki sé mikilvægt að vera þol- inmóður við ungu hljóðfæraleik- arana, þá játar hann því. Og hann segir gaman að vinna með þeim. „Stundum getur maður jafnvel látið eins og kjáni án þess að vera dæmdur hart fyrir,“ segir hann og glottir. „Sem ungur stjórnandi í heimi atvinnuhljómsveita fer maður gegnum langt ferli þar sem sífellt er verið að fella yfir manni dóma, hljóð- færaleikararnir taka mann út. Ég viðurkenni að með þessu unga fólki get ég verið afslappaðri á sviðinu, ég „Hjörtu okkar slá í takt“  I, Culture-ungsveitin leikur í Hörpu í kvöld undir stjórn Kirills Karabits Morgunblaðið/Einar Falur Reynsla „Ég þekki bakgrunn þessa fólks sem er frá ólíkum lýðveldum fyrrverandi Sovétríkjanna. Þetta er minn heimur, ég ólst upp í þessu kerfi austurs og vesturs,“ segir stjórnandinn Kirill Karabits um hljóðfæraleikarana. Einbeiting „Við lærum gríðarlega mikið hér á hverjum degi,“ sagði einn fiðluleikarinn í I, Culture-sveitinni eftir æfingu með Karabits í Gdansk. Stofnað Fæst eingöngu í Nýtt á Íslandi Fyrirbyggjandi lúsasjampó Gotitas de Oro - Anti-Lice Shampoo Fyrirbyggjandi lúsasjampó fyrir börn. Virk samsetning innihaldsefna ver hárið og hársvörðinn og kemur í veg fyrir lúsasmit án þess að valda óþægindum né ertingu. Afar milt en öflugt sjampó. Fyrir venjulegan hárþvott. Inniheldur ekki eitur- né skordýraefni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.