Morgunblaðið - 13.11.2013, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 13.11.2013, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 2013 Sumarið er horfið, haustið að kveðja, vetur að ganga í garð, laufblöð fallin af trjám og runn- um og landið að klæðast vetr- arbúningi. Við þessar aðstæður minnist ég góðs frænda, Stefáns Hlíðars Jóhannssonar, sem kvaddi þessa jarðvist síðasta haustdag 25. okt., eftir stranga baráttu við illvíga sjúkdóma, ekki einn heldur þrjá. Fáir nema þú fá svo erfið verkefni að takast á við og magnað hvernig þú fórst í gegn- um þetta, jákvæður og staðráð- inn að sigra. Á vissan hátt gerð- irðu það í lokin, með eigin ákvörðun. Þú varst allt í senn, bóndi á Þrándarstöðum, tré- smiður að byggja og smíða, fisk- eldismaður, rakst gistiheimili, ræktaðir landið, plantaðir trjám og varst frumkvöðull í kornrækt á Héraði í seinni ár. Það var ekki til það sem ekki var hægt í þínum huga og aðdáunarvert hversu áræðinn þú varst. Hik var ekki þinn stíll. Það var t.d. ekkert mál að skreppa til Lúx- emborgar að vinna við smíðar fyrir vini þar, enda varstu fram- sýnn maður með miklar hug- myndir og óragur að fram- kvæma. Sterkar skoðanir hafðir þú og það var ekkert gott að lenda í andstöðuþjarki við þig um pólítík né landsmálin, en það var gaman að hlusta á þín sjón- armið. Mér fannst gott að eiga þig sem frænda á næsta bæ þegar ég, ung feimin kona, flutti í sveitina 1976. Það var alltaf gott að leita til þín og fá hjálp enda með eindæmum greiðvik- inn maður. Þú lagðir margoft frá þér eigin verk til að aðstoða mig og þá sem til þín leituðu. Marga hjalla þurftuð þið Guð- rún eiginkona þín að klífa. Ung að árum og rétt að hefja búskap sáuð þið húsið brenna á Þránd- arstöðum. Það var 20. ágúst 1973. Einnig misstir þú tvo bræður af slysförum. Auðvitað hafði þetta sín áhrif á þig, en þú lést ekki á því bera. Ótrauð byggðuð þið upp og tókust á við allt af æðruleysi. Þitt happ eru fallegu börnin þín og velgengni þeirra, enda varstu stoltur af þeim og afabörnunum. Kæri Stebbi frændi, takk fyr- ir allt sem þú gerðir fyrir mig. Það skildi okkur aðeins einn dagur að í aldri. Við erum ljón, en ekki grimm, bara fjölhæf. Elsku Guja, Benni, Jói, Sigga, Þorgerður, tengdabörn og barnabörn, megi hlýja um- vefja ykkur um alla framtíð. Hvíl í friði. Þín frænka, Anna Kristín. Þær eru ófáar stundirnar sem ég hef setið í eldhúskrókn- um á Þrándarstöðum með hon- um Stebba og sötrað kaffi. Þar fóru gjarnan fram líflegar um- ræður um pólitík, sauðfjárrækt og landsins gagn og nauðsynjar. Það má segja að Stebbi hafi haft töluverð áhrif á ýmislegt sem ég hef tekið mér fyrir hendur. Hann litaði mig t.d. snemma af framsóknarmennsk- unni en einnig kveikti hann áhuga minn á húsasmíði sem ég Stefán Hlíðar Jóhannsson ✝ Stefán HlíðarJóhannsson, bóndi og húsa- smíðameistari, Þrándarstöðum (Stebbi Þrándur), fæddist á Sjúkra- húsinu á Egils- stöðum 19. ágúst 1949. Hann lést á sjúkrahúsinu á Eg- ilsstöðum 25. októ- ber 2013. Útför Stefáns fór fram frá Egilsstaðakirkju 1. nóvember 2013. svo nam. Það var alltaf gott að leita til hans um ráð hvernig best væri að útfæra ýmsa hluti sem ég ætlaði að koma í fram- kvæmd, ýmist fyrir sjálfan mig eða aðra. Oft rissaði ég einhverjar hug- myndir á blaðsnepil við eldhúsborðið, eftir kaffisopann var svo farið uppá verkstæði og málið leyst. Sumarið 2006 áskotnaðist okkur Stebba og Jóni hesthús sem verið var að rífa á Egils- stöðum. Eftir mjög stuttar um- ræður ákváðum við að koma húsinu fyrir á Þrándarstöðum og taka fé. Eins og Stebba ein- um var lagið var ekkert verið að tvínóna við hlutina og var húsið komið á staðinn um haustið og 14 gimbrar og einn hrútur sótt í Suðursveit, þá var sauðfjárbú- skapur hafinn aftur á Þrándar- stöðum. Eftir þetta fjölgaði samverustundum okkar tölu- vert þar sem oft var setið lang- tímum saman á garðabandinu og dáðst að fénu. Að taka þátt í göngum var einn mikilvægasti hluti félagsbúsins og var mjög erfitt að beiðast undan þeim þar sem Stebba var mikið um að manna göngurnar vel. Í fyrra- haust lét hann ekki sitt eftir liggja þótt hann ætti orðið erfitt með gang og úthald, en þá mætti hann ríðandi í göngurnar. Ég heimsótti Stebba á sjúkrahúsið á Egilsstöðum um tveimur vikum áður en hann fór. Þá var Þórarinn Lárusson í heimsókn hjá honum og sátu þeir hugfangnir yfir myndum og dómum af mórauðum lambhrút sem Jói hafði sótt vestur á land. Einnig kom þar kornrækt til tals og sagði Stebbi frá því að Jói hefði verið að þreskja korn fyrir bændur í sveitinni. Hann bætti svo þessum fleygu orðum við sem mér finnst lýsa honum og hans hugsun svo vel: „Það er alltaf gott að geta gert mönnum greiða, bara ef það skaðar ekki hjá manni sjálfum“. Ég kveð nú þennan mikils- verða frænda minn með sökn- uði, en það eru fáir sem geta fyllt í hans skarð. Þakkir kunna þessum mæta manni margir fyrir greiðasemi og dug heiðursmaður segja má með sanni Stefán var í atgervi og hug. Ósérhlífinn, harður var og hraustur ávallt klár að rétta hjálparhönd, auðfús ætíð, trúfastur og traustur, taki föstu hélt um ættarbönd. Af þrautseigju og elju hefur barist og hildina hann hefur marga háð, þó kom að því að ei gat lengur varist, í höndum guðs hann hefur núna áð. Að lokum vil ég, frændi, þakkir færa fyrir allt er gafst þú gott af þér, alla tíð mun minningarnar mæra, þær mikilsverðar ávallt verða mér. Kveðja, Steini Þrándur. Fyrstu kynni okkar af Stebba Þrándi voru árið 1999 er við fluttum austur á Þrándarstaði. Þegar við höfðum komið okkur fyrir, en það voru fjögur hús á Þrándarstöðum, fórum við til Stebba og Gauju, yndislegrar eiginkonu hans, til að kynna okkur. Okkur var strax einstak- lega vel tekið og boðið inn í kaffi og konjak, þar sem ævilangur vinskapur var innsiglaður. Fljótlega fengum við viður- nefnið „Þrándarar“ sem var mikill heiður og á meðan við bjuggum fyrir austan leið ekki sá dagur sem við hittum ekki þau hjónin vegna þess að það var aldrei skortur á umræðuefni og svo einstaklega gott að sækja þau heim. Stebbi var framsókn- armaður í húð og hár og var húsið og bíllinn grænn og helst klæddist hann grænum fötum. Stebbi var einstaklega bóngóð- ur og mikill dýravinur. Kola, hundurinn sem hann átti þá, fékk að sitja á kolli við eldhús- borðið og sötra kaffi úr krús og fór hann aldrei neitt án þess að hafa hana með sér. Eftir að við fluttum suður þá komu símtöl í stað heimsókna og sáum við hann alltaf fyrir okkur þar sem hann sat á sínum stað í eldhúsinu og kveikti sér í vindli og þegar maður heyrði hvissið í pumpunni á stóru kaffi- vélinni þá vissi maður að sam- talið yrði langt. Einkenni Stebba voru trygg- lyndi og minnumst við hans sem einstaklega góðs drengs sem ekkert aumt mátti sjá. Hans er sárt saknað og Þrándarstaðir verða aldrei eins án Stebba vinar okkar. Við vottum Gauju, börnum, tengdabörnum og öðrum ætt- ingjum og vinum okkar innileg- ustu samúð. Herdís Hjörleifsdóttir og Vigfús Helgason (Þrándarar). Vinur minn Stefán á Þránd- arstöðum lést aðfaranótt 25. október eftir veikindi sem mannlegur máttur fær ekki staðist til lengdar. Óstarfhæf nýru, bilað hjarta og krabba- mein – minna dugði ekki til. Ég var á leið til Íslands þennan dag og hafði sett efst í hólfið að hringja nú í vin minn við heim- komuna og „yfirfara stöðuna“ eins og við gerðum oft og tíðum. Nú er það orðið of seint, Stebbi er farinn þangað sem hvorki Facebook né sími ná. Leiðir okkar Stebba lágu fyrst saman á árunum upp úr 1990 og strax við fyrstu kynni kom drenglyndi og óendanleg góðmennska þessa höfðingja upp á yfirborðið. Stebbi var op- inn fyrir nýjungum og ávallt til í að „láta á það reyna“ án þess að vera handviss um að frum- kvöðlabröltið skilaði himinhárri arðsemi strax daginn eftir. Við sem þekktum Stebba vel vitum að fyrsta og síðasta hugsun dagsins var einmitt ekki um fjárhagslegan gróða, aðrir hlut- ir stóðu hjarta hans miklu nær. Margt höfum við skrafað í ár- anna rás, ekki endilega sam- mála um alla hluti en ævinlega skildum við sem vinir. Minnis- stæð er deilan um hitamælinn á varmadælunni sem við félagar komum upp á sínum tíma. Verk- fræðingurinn að sunnan taldi að hann stæði fastur en Stebbi hélt nú ekki. „Þú hefur ekkert vit á þessu, gæskur“. Einu má gilda hvor hafði rétt fyrir sér, þeir eru ekkert þversum að ráði, Þrándarnir! Stebbi var snillingur við smíðar og verklegar fram- kvæmdir. Honum dugði að gjóa augunum yfir verkefnin, og eins og ósjálfrátt var hann strax kominn með heildarmyndina í kollinn og alla framkvæmdina til enda á hreinu. Það var ekki annað hægt en dást að vinnu- brögðunum þegar valin var fjöl úr staflanum, henni var e.t.v. snúið á ákveðinn hátt en svo var heflað og sagað og áður en varði var búið að efna niður og smíða úrvals fína kassa undir bor- kjarna eða hvaðeina sem smíða þurfti. En Stebbi gat verið skemmti- lega hrekkjóttur. Þau Gauja vissu vel að ég gat ekki borðað lifur eða nokkur matvæli sem lifur er í. Eitt sinn sem oftar sátum við bormenn í kaffi á Þrándarstöðum og hafði ég smurt brauðsneið með vel af kindakæfu og bitið hornið af henni þegar síminn hringdi. Á meðan ég brá mér frá borðinu höfðu félagar mínir og Stebbi smurt aðra brauðsneið með þykku lagi af lifrarkæfu, bitið hornið af henni og lagt á diskinn minn. Hláturinn sem gaus upp við eldhúsborðið þegar ég sett- ist aftur og beit í sneiðina gleymist aldrei.! Það var ekki fyrr en eftir nokkra stund sem Stebbi gat staðið á fætur nær lamaður af hlátri, og hellti þá koníakstári í glas og rétti vini sínum. Ég kveð nú vin minn, þakk- látur honum og Gauju fyrir samferðina svo og allar máltíð- irnar og gistinæturnar sem ég hef þegið á Þrándarstöðum í gegnum tíðina. Friðfinnur K. Daníelsson. ✝ Haraldur Jó-hannsson fæddist í Reykja- vík 22. nóvember 1942. Hann and- aðist á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Brákarhlíð í Borg- arnesi 19. október 2013. Foreldrar hans voru Úlfhildur Þorfinnsdóttir, f. 14. mars 1911, d. 16. desember 1971, og Jóhann Kristján Lín- dal Sigurðsson, f. 20. júní 1914, d. 8. febrúar 1959. Eftirlifandi sambýliskona Haraldar er Katrín Magnús- dóttir, f. 5. september 1935. Börn Haraldar og Guðrúnar Bjarnadóttur eru Kolbrún, f. 20. desember 1964, d. 1. júlí 1970, Þorvaldur, f. 20. desem- ber 1965, maki Katrín G. Helgadóttir, Úlfhildur, f. 29. mars 1967, maki Jóhannes K. Sveinsson, börn Viktoría Ósk, f. 18.5. 1994, og Baldvin Ari, f. 10.2. 1998. Jóhanna, f. 24. maí 1968, barn hennar er Kristín með Guðrúnu Bjarnadóttur í Mosfellsdalum um 1963. Á þeim árum vann hann hjá Áburðarverksmiðju ríkisins, Sláturfélagi Suðurlands og ýmsum fleiri stöðum. Haraldur og Guðrún slitu samvistir 1969. Á árunum 1969 til 1973 vann hann sem vinnumaður í Ferju- koti á sumrin en á veturna stundaði hann vinnu í Grinda- vík hjá fiskvinnslufyrirtækinu Þórkötlustöðum. Árið 1974 lá leið hans í Munaðarnes sem vinnumaður til að byrja með, og síðan sem sambýlismaður Katrínar. Hann vann þar við bústörf og að koma upp sumar- bústaðahverfinu ásamt ýmsum störfum sem til féllu þar, sem og í sveitinni. Eftir veikindi hans 2004 dvaldi hann í tæp átta ár á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi og rúmt ár á hjúkrunar- og dval- arheimilinu Brákarhlíð í Borg- arnesi. Hestamennsku stundaði hann alla tíð meðan heilsa leyfði og fremstur meðal gæð- inga hans var hesturinn Storm- ur, sem valinn var besti hestur landsins á Landbúnaðarsýning- unni í Reykjavík 1968. Liðtæk- ur bridsspilari var hann og spilaði brids í áratugi með sveitungum sínum. Útför Haraldar fór fram í kyrrþey. Ólafsdóttir, f. 22.12. 1986, maki Kristínar er Að- alsteinn Guð- mundsson, barn þeirra er Guð- mundur Kári, f. 29.12. 2011. Dóttir Haraldar og Guð- rúnar S. Guðjóns- dóttur er Guðrún Jóhanna, f. 11. nóvember 1966, maki Þórarinn Jóhannsson, börn Sigurður Hjartarson, f. 2.12. 1989, maki Sigurðar er Bettý Hrefna Valsdóttir, barn þeirra er Þengill Óðinn, f. 18.11. 2012. Guðjón Hrafn Þór- arinsson, f. 18.6. 1997, Ólafur Kolbeinn Þórarinsson, f. 21.11. 2005. Dóttir Haraldar og Svan- dísar Báru Steingrímsdóttur er Kristín Halla, f. 27. júní 1973, maki Lárus Sverrisson. Haraldur var sendur mánaðargamall í fóstur til Kristínar Jónsdóttur og Lár- usar Péturssonar í Káranesi í Kjós. Ólst hann þar upp allt til 19 ára aldurs. Hóf hann búskap Kæri Halli. Nú ertu loksins bú- inn að fá hvíldina. Það var mikill gleðidagur fyrir mig þegar þú komst í Ferjukot sem vinnumaður til að hjálpa pabba í laxinum. Þú komst með tvo hesta með þér, og það átti nú við mig. Við urðum strax bestu vinir, þú hjálpaðir mér að járna hestana mína og síðan riðum við út á bökkum Hvítár þegar tími gafst. Þú varst alltaf hress og kátur, þá sérstaklega þegar þú reiðst honum Stormi þínum sem hafði verið hæst dæmdi gæðingur landsins á landbúnaðarsýningu í Reykjavík. Það var unun að fylgj- ast með ykkur svífa um bakkana og láta sig dreyma um að eiga slík- an gæðing. Við fórum nokkrar ferðir ríðandi í Kjósina, á þínar æskuslóðir. Þá komu oft vinir þínir og frændfólk á móti okkur upp á Reynivallaháls og var þá oft glatt á hjalla. Síðan var riðið niður bakka Laxár og gist hjá skyldfólki þínu í Káranesi, þar sem við feng- um höfðinglegar móttökur. Svo var farið á kappreiðar á Arnarhamar og riðið aftur heim eftir mót. Á haustin þegar veiði- tíminn var búinn fórst þú að vinna á Þórkötlustöðum í Grindavík í fiski. Oft beið ég með eftirvænt- ingu eftir að þú kæmir með vorinu og við gætum farið á útreiðar sam- an. Síðar kynntist þú henni Kötu og fluttir í Munaðarnes. Þar áttuð þið yndislegan tíma saman og þú varst eins og kóngur í ríki þínu. Svo dundi áfallið yfir og þú veikt- ist. Allan þann tíma sem þú dvaldir á sjúkrahúsinu á Akranesi og ég kom í heimsókn varstu alltaf jafn hress og kátur þrátt fyrir veikind- in. Ekki breyttist það þegar þú fluttist í Brákarhlíð. Þú varst allt- af að skipuleggja reiðtúra sem við ætluðum að fara í þegar þú kæmir heim. Nú ertu eflaust sestur á bak á Storm og gleðin hefur tekið völd á ný hjá ykkur félögunum. Hafðu þökk fyrir allt, kæri vin- ur. Votta mína dýpstu samúð til Kötu og barna Haraldar. Guðrún Fjeldsted. Haraldur Jóhannsson Elsku besta amma mín. Ég óskaði þess svo innilega að sá dagur rynni aldrei upp að ég þyrfti að kveðja þig. En hér sit ég með tárvot augun að rifja upp allar minningar sem við áttum saman. Mér finnst ég svo heppin að hafa fengið að eyða öllum leikskólaárunum mínum hjá þér, í stað þess að vera á leikskóla, og svo kom ég til þín eftir skóla fyrstu grunnskóla- árin. Þú kenndir mér svo margt og mörg góð gildi í lífinu, sem ég mun aldrei gleyma. Að koma upp í Tjarnarkot á morgnana til ykkar afa og fá að kúra í ömmu eða afa holu var svo ynd- islegt. Oft lást þú hjá mér og straukst á mér höndina þangað til ég sofnaði, ég gleymi því aldrei hvað það var notalegt. Við dönsuðum oft „Óla skans“ og hlógum mikið á meðan. Þú meira að segja spilaðir fótbolta við mig og við notuðum snúru- staurana fyrir mark. Svo um hálffimm á daginn settumst við niður til að horfa á Leiðarljós og Nágranna, það var daglegur viðburður. Mér er líka minnisstætt þegar þú eld- aðir lambakjöt sem þú borðaðir ekki sjálf. Þá borðuðum við alltaf eitthvað annað eftir að hinir voru búnir, eins og við værum að laumupúkast eitt- hvað. Ég gæti skrifað heila bók um minningarnar mínar með þér úr æsku minni uppi í Tjarn- arkoti, og ég er svo þakklát fyrir að eiga allar þessar minn- ingar. Þú hefur alltaf verið hetjan mín. Þú varst alltaf svo sterk og það var ekkert sem bugaði þig, þótt þú værir með mikla Ilse Björnsson ✝ Ilse Björnsson,f. Frieden- hagen, fæddist í Ratzeburg í Þýska- landi 10. maí 1926. Hún lést á dval- arheimili aldraðra Klausturhólum, Kirkjubæj- arklaustri 18. októ- ber 2013. Útför Ilse fór fram í kyrrþey. lífsreynslu á bak- inu. Ég skrifaði ritgerð 2011 um „hetjuna mína“ og aðra 2013 um „merkan einstak- ling“ og skrifaði ég um þig í báðum rit- gerðunum og fékk toppeinkunn fyrir. Þér fannst nú al- veg stórfurðulegt að ég nennti enda- laust að vera að skrifa um þig, og hlóst að öllum þessum spurningum sem ég var að spyrja þig. Ég get ekki lýst því hvað ég elska þig mikið og sakna þín meira en orð fá lýst. Og ég er stolt af því að vera þrjóskt naut eins og þú varst. En þótt ég sé þrjósk þá þýddi sko ekkert að rökræða við þig. Þú varst svo einstaklega orðheppin. Mér finnst ég varla vera sama manneskjan eftir að hafa þurft að kveðja þig, en ég veit að þér líður vel og þú ert í góðum höndum núna. Hún var einstök perla. Afar fágæt perla, skreytt fegurstu gimsteinum sem glitraði á og gerðu líf samferðamanna hennar innihaldsríkara og fegurra. Fáar perlur eru svo ríkulega búnar, gæddar svo mörgum af dýrmætustu gjöfum Guðs. Hún hafði ásjónu engils sem frá stafaði ilmur umhyggju og vináttu, ástar og kærleika. Hún var farvegur kærleika Guðs, kærleika sem ekki krafðist endur- gjalds. Hún var vitnisburður um bestu gjafir Guðs, trúna, vonina, kærleikann og lífið. (Sigurbjörn Þorkelsson) Ég veit að við sjáumst aftur fyrr eða síðar, og þá getum við verið saman að eilífu. Þar sem englarnir syngja, þar finn ég þig. Hvíldu í friði elsku amma mín. Þín Elsa Rún.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.