Morgunblaðið - 03.07.2014, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 03.07.2014, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Malín Brand Vinir Aðalsteinn Bergdal og Gestur Einar Jónasson hafa þekkst svo lengi sem þeir muna. Þeir byrjuðu báðir leik- araferilinn árið 1967 og hafa verið saman á leiksviði sem og á sjónvarpsskjá. Nú vinna þeir saman á Flugsafninu. Gestur Einar og ekki er annað að sjá en starfið geri Aðalsteini gott. Báðir eru þeir léttir á fæti og hraustir að sjá og ekki hægt að draga heilunarmátt verunnar á Flugsafninu í efa sé horft á það. Æskuvinir og kollegar Þessir tveir starfsmenn Flug- safns Íslands hafa þekkst og verið vinir frá því þeir muna eftir sér. „Við ólumst upp í sama hverfi,“ seg- ir Aðalsteinn en auk þess unnu þeir saman í leiklistinni í fjölda- mörg ár. Þeir byrjuðu báðir að leika árið 1967. „Við höfum alltaf verið vinir,“ segir Gestur Einar og Að- alsteinn tekur undir: „Og ætlum að halda þetta út alveg fram í rauðan …“ Án efa á sumarið á Flugsafninu eftir að þjappa þeim enn betur saman. Aðalsteinn bregður stundum á leik sem trúðurinn Skralli og gerir það við ýmis tækifæri. Trúðurinn hefur nokkrum sinnum brugðið á leik í Flugsafninu en þó ekki á venjulegum dögum heldur á sjálfan flugdaginn. Flugdagurinn er hald- inn á hverju sumri, nú síðast 21. júní, og þá mætti Skralli á svæðið og tók annan flugtímann sinn á Piper Cub. Betur fór en á horfðist en ljóst er að Skralli á margt ólært í fluginu, enda eru tveir tímar engin ósköp. Sprella inn á milli Þó svo að leikarastarfið snúist að sjálfsögðu ekki um grín og glens alla daga er óhjákvæmilegt að spyrja þessa tvo hvort þeir detti ein- hvern tíma í ærslagang á venjuleg- um vinnudegi á Flugsafninu. „Jújú, það kemur nú alveg fyrir. Við rifjum stundum upp gamla takta og þá hlæjum við tveir bara og það er allt í lagi,“ segir Gestur Einar. „Fólk sem kemur hingað þekkir okkur stund- um og veit að við erum leikarar. Kona sagði við mig um daginn: „Hva, ert þú hér?“ og ég játti því. Þá spurði hún: „Og af hverju ert þú ekki að leika?“ Þá segir maður bara söguna eins og hún er,“ segir Gest- ur Einar sem er hvergi nærri hætt- ur að leika þó svo að hann njóti þess til fulls að vinna á Flugsafninu. Þeir Aðalsteinn unnu saman í leikhúsinu í fjöldamörg ár en Gestur Einar hóf störf hjá Ríkisútvarpinu og hætti í leikhúsinu. Þar vann hann í um 23 ár, allt til ársins 2008 þegar staða hans hjá útvarpinu fyrir norðan var lögð af, mörgum hlustendum til mikilla vonbrigða. Þá var hann far- inn að vinna í hlutastarfi á Flugsafn- inu en hefur verið í fullu starfi þar svo gott sem síðan, eins og fyrr kom fram. Báðir eru þeir þó trúir leiklistargyðjunni sem menn yf- irgefa ekki svo auðveldlega eftir að þeir hafa eitt sinn gengið henni á hönd. Aðalsteinn hefur leikstýrt töluvert og saman hafa þeir meðal annars leikið í þáttunum Hæ gosi og í leiksýningum á Norðurlandi. Eftir atvinnuleik í 47 ár hlýtur að vera skemmtileg áskorun að fræða gesti um flugvélar á þessu merka safni. „Það liggur við að mað- ur segi að þetta sé hryllilega skemmtilegur vinnustaður,“ segir Aðalsteinn. „Svo koma margar flug- hetjur á svæðið og það eru sagðar sögur og drukkið alveg gríðarlega mikið kaffi. Hingað koma sögulegar flugvélar eins og Þristurinn og karl- ar að sunnan sem sinna viðhaldinu og hér skapast skemmtileg tengsl. Þetta er bara yndislegt,“ segir leik- arinn og flugáhugamaðurinn Gestur Einar Jónasson um starfið á Flug- safni Íslands þar sem hann nýtur góðs félagsskapar leikarans Aðal- steins Bergdal í sumar. Morgunblaðið/Malín Brand Flugdagur Á hverju sumri er Flugdagurinn haldinn hátíðlegur á Flug- safni Íslands. Hér má sjá Piper PA-23-150 Apache, á Flugdeginum. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2014 Þjóðlagahátíðin á Siglufirði fór af stað í gær með pomp og prakt og heldur áfram í dag og næstu daga. Nóg er að hafa fyrir þá sem vilja njóta, sprelligosarnir í hljómsveitinni Hundi í óskilum ætla að vera með barnatónleika kl. 17.15 í Allanum, ís- lensk lög verða frumflutt og þjóðlög sungin í kvöld kl. 20 í Siglufjarðar- kirkju, hljómsveitin Klezmer Kaos leikur franskar dægurperlur í Báta- húsinu kl. 21.30 og hljómsveitin Mó- gil leikur í Siglufjarðarkirkju kl. 23 í kvöld. Ævinlega er mikil stemning á Sigló á Þjóðlagahátíðinni. Þjóðlagahátíðin Hundur í óskilum Þeir eru fjörugir. Stuðið heldur áfram á Sigló Margir hafa notið þess að skoða einstaklega vel uppgerða sjóflugvél sem er á Flugsafni Íslands. Hún er af gerðinni DHC-2 Beaver frá árinu 1960. Vélin er í eigu flugkappans Arngríms B. Jóhannssonar en vélin er ein sú fegursta af þessari gerð sem til er. Það fór ekki framhjá leikaranum og flugáhuga- manninum Harrison Ford sem komið hefur á flugsafnið og ítrekað óskað eftir að fá að kaupa vélina. Eigandinn gaf lítið fyrir það, enda er vélin ekki föl. Víst þykir að Ford geri aðra tilraun til að bjóða í vélina þegar hann kemur hing- að til lands í sumar vegna leiks í nýj- ustu Stjörnustríðsmyndinni. Harrison Ford vill eignast sögulegan sýningargrip LEIKARAR LAÐAST AÐ SAFNINU Á AKUREYRI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.