Morgunblaðið - 03.07.2014, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.07.2014, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2014 Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Hvorki lög né reglugerð um Seðla- banka Íslands gera ráð fyrir því að formaður bankaráðs hafi sjálfstæðar valdheimildir, svo sem til að skuld- binda bankann með einhverjum hætti. Útgjaldatilefni í tengslum við fjárhagslega hagsmuni bankastjór- ans verður að bera upp í bankaráðinu til samþykktar áður en greiðslur eru inntar af hendi eða að formaður ráðs- ins fái formlega heimild fyrir þeim. Þetta segir Ríkisendurskoðun í svari við erindi bankaráðs Seðla- banka Íslands, þar sem þess var farið á leit gerð væri úttekt á málskostn- aðarreikningum Más Guðmundsson- ar seðlabankastjóra vegna máls hans á hendur bankanum í kjölfar úr- skurðar Kjararáðs snemma árs 2010. Óskað eftir úttekt Lára V. Júlíusdóttir, fyrrverandi formaður bankaráðs Seðlabankans, ákvað án þess að bera það undir bankaráðið að Seðlabankinn greiddi málskostnað bankastjórans. Ekki varð uppvíst um þetta fyrr en Morg- unblaðið greindi frá málinu 7. mars síðastliðinn. Í kjölfarið ákvað banka- ráð Seðlabankans að óska eftir því að Ríkisendurskoðun gerði úttekt á málinu. Meðal þeirra spurninga sem bankaráðið lagði fyrir Ríkisendur- skoðun var, hvort embættisfærsla Más Guðmundssonar seðlabanka- stjóra hefði verið með eðlilegum hætti í tengslum við greiðslu reikn- inganna. Í svarinu segir að ekkert hafi komið fram sem bendi til þess að bankastjórinn sjálfur hafi á nokkurn hátt komið að ákvörðunum, fyrir- mælum eða samþykki greiðslu þeirra reikninga sem um ræðir, heldur hafi alfarið verið um að ræða ákvarðanir og fyrirmæli Láru V. Júlíusdóttur, fyrrverandi formanns bankaráðsins. Varðandi heimildir Láru V. Júl- íusdóttur til að stofna til útgjaldanna segir Ríkisendurskoðun að enda þótt hún hafi með vitneskju bankaráðs og yfirstjórnar bankans farið með for- svar í málinu verði að líta til þess að bankaráðið sé fjölskipað stjórnvald. Ekkert hafi komið fram sem sýni að hún hafi haft umboð til að taka ákvarðanir ein utan funda, svo sem um útgjöld tengd bankastjóranum. Með vísan til þessa og í ljósi þess að hér var um umtalsverð útgjöld að ræða hefði að mati Ríkisendurskoð- unar átt að bera ákvörðun um greiðslu þeirra upp til samþykktar í bankaráðinu. Varðandi spurningar bankaráðs- ins um það hvort málskostnaður seðlabankastjóra geti talist til rekstrarkostnaðar bankans segist Ríkisendurskoðun telja að ekki sé rétt að taka afstöðu til þess álitamáls heldur sé það bankaráðsins. Varðandi skattalega meðferð greiðslunnar, ef ekki er um rekstr- arkostnað að ræða, segir Ríkisend- urskoðun að hyggist bankaráðið end- urskoða umrædda ákvörðun fyrrverandi bankaráðsformanns þurfi að ganga úr skugga um hvort skilyrði séu til staðar til að krefja bankastjórann um endurgreiðslu. Umrædd ákvörðun hafi í eðli sínu verið ívilnandi og þó áhöld séu um hvort hún hafi byggst á fullnægjandi umboði sé nauðsynlegt að ganga úr skugga um hvort hún, hvað sem því líður, skapi bankastjóranum ákveð- inn rétt. Huga þurfi að ákvæðum stjórnsýslulaga í því sambandi. Vegna þessa telur Ríkisendurskoðun hvorki rétt né eðlilegt að hún tjái sig um skattalega meðferð greiðslunnar, enda liggi ekki fyrir hver afstaða bankaráðs sé til þeirrar spurningar hvort bankinn skuli bera þennan kostnað eða ekki. Þá segir í svari Ríkisendurskoðun- ar að hún hafi ekki fundið neitt annað dæmi um að reikningar vegna út- gjalda Seðlabanka Íslands hafi verið samþykktir af formönnum banka- ráðs í gildistíð núverandi laga um bankann. Mál sérstaks eðlis Ríkisendurskoðun segir að fyrr- verandi formaður bankaráðs hafi ekki talið sig hafa sjálfstæðar vald- heimildir. Hann hafi á hinn bóginn litið svo á að þar sem hann var með fullri vitneskju og a.m.k. án form- legra athugasemda bankaráðsins í forsvari fyrir bankann í þessu dóms- máli og hafði tekið að sér að ljúka því hefði hann jafnframt heimild til þess að skuldbinda bankann að þessu leyti. Að mati Ríkisendurskoðunar er ekki hægt að horfa fram hjá því að mál þetta, þ.e. málsókn seðlabanka- stjóra á hendur bankanum, sé ákaf- lega sérstaks eðlis. Við málsóknina hafi allir starfsmenn bankans orðið vanhæfir. Því hafi verið einboðið að bankaráðið og einkum formaður hlyti að verða í forsvari fyrir bankann að því er málareksturinn varðaði. Hefði átt að bera málið upp í bankaráði  Engin fordæmi fyrir vinnubrögðum Láru V. Júlíusdóttur í Seðlabankaráði Morgunblaðið/Árni Sæberg Seðlabankinn Deilt hefur verið um þá ákvörðun að láta Seðlabankann greiða máls- kostnað bankastjórans í launadeilu við bankann. Lára V. Júlíusdóttir Már Guðmundsson Aukablað um bíla fylgir Morgunblaðinu alla þriðjudaga Gnoðarvogi 44, 104 Rekjavík | sími: 588 8686 | hafberg@internet.is | hafberg.is GLÆNÝ STÓRLÚÐA – ÞORSKHNAKKAR RAUÐSPRETTA LAXASTEIKUR Á GRILLIÐ EÐAL HARÐFISKUR Á TILBOÐI VIRKA DAGA 10.00 - 18.15 LAUGARDAGA 11.00 - 15.00 OPIÐ Stakkholt 2-4 Nýjar íbúðir í miðbæ Reykjavíkur • 2ja til 4ra herbergja íbúðir • 48,8 til 141,7 fermetrar að stærð • Stæði í bílageymslu með flestum íbúðum • Verð frá 22,8 m. • Frábært útsýni til sjávar og/eða til suðurs og vesturs yfir borgina • Allar innréttingar og fataskápar verða af vandaðri gerð • www.stakkholt.is Nánari upplýsingar á eignamiðlun.is og hjá sölumönnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.