Morgunblaðið - 03.10.2014, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 03.10.2014, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2014 FRÉTTASKÝRING Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Hreinar þjónustutekjur Arion banka, Landsbanka og Íslandsbanka námu 15,1 milljarði króna á fyrstu tveimur ársfjórðungunum árið 2014 og voru 26,9 milljarðar króna allt árið 2013. Þar af voru tekjur af þjónustugjöldum vegna greiðslukortaviðskipta um fimm milljarðar króna á fyrri helmingi ársins en voru 8,7 milljarðar á öllu síðasta ári. Bankarnir innheimta hver um 200 gjöld fyrir veitta þjónustu sem þeir kalla ýmist þjónustu- eða þóknana- tekjur. Hreinar þjónustutekjur eru reiknaðar eftir að búið er að draga gjöld frá. Greiðslukortin gefa mest Tekjur af þjónustugjöldum vegna greiðslukortaviðskipta eru stærsti tekjuliður þjónustugjalda bankanna. Arion banki fær hæstar tekjur af þjónustugjöldum og fékk 6,6 milljarða kr. í hreinar þjónustutekjur á fyrstu sex mánuðum ársins. Þar af voru tekjur vegna greiðslukortaviðskipta 2,4 milljarðar króna eða rúm 36% hreinna þjónustutekna. Hreinar þjón- ustutekjur árið 2013 voru 11,2 millj- arðar króna. Íslandsbanki fékk 5,6 milljarða í hreinar þjónustutekjur á fyrstu sex mánuðum ársins og þar af voru 2,1 milljarður króna eða 37,5% vegna greiðslukortaviðskipta. Hreinar þjón- ustutekjur síðasta árs voru 10,4 millj- arðar króna. Landsbankinn fékk 2,9 milljarða kr. í þjónustutekjur á fyrstu sex mán- uðum ársins. Þar af fékk bankinn 472 milljóna króna tekjur vegna greiðslu- kortaviðskipta eða 16,2%. Hér ber að geta þess að Arion banki á um 60,78% hlut í Valitor og Lands- bankinn 38%. Þá er eignarhlutur Ís- landsbanka í Borgun 62,2% og Lands- banka 31,21%. Ólíkt hinum bönkunum tekur Landsbankinn ekki þjónustu- tekjur frá Valitor og Borgun inn í samstæðureikning í ársfjórðungs- uppgjöri. Gerði hann það má áætla að þjónustutekjur myndu hækka umtals- vert í ársreikningum. Ekki fengust upplýsingar um þjónustutekjur frá Landsbankanum vegna Valitor og Borgunar. Hreinar þjónustutekjur Landsbankans árið 2013 voru 5,3 milljarðar kr. Eins og sjá má af sex mánaða upp- gjöri bankanna eru upphæðir vegna hreinna þjónustutekna hærri en helm- ingur af tekjum síðasta árs. Ekki er þó hægt að áætla að tekjurnar muni tvö- faldast í árslok þó að hreinar tekjur í hálfs árs uppgjöri séu hærri en helm- ingur af þjónustutekjum síðasta árs. Helgast það m.a. af því að jólaveltan reiknast inn í uppgjörið í byrjun árs. Ekki liggja fyrir upplýsingar um það hversu hátt hlutfall þjónustutekna má rekja til kreditkortaviðskipta annars vegar og debetkortaviðskipta hins vegar. Ekki eru greidd færslugjöld fyrir notkun á kreditkortum en greitt er árgjald fyrir notkun þeirra. 1,9 milljarðar úr eignastýringu Stærstur hluti þjónustuteknanna fellur til við greiðslukortaviðskipti en einnig er stór hluti þjónustutekna vegna eignastýringar- og fjárfesting- arhluta bankanna. Þannig kemur fram í svari við fyrirspurn til Arion banka að þjónustutekjur á fyrstu sex mánuðunum námu tæpum 1,9 millj- örðum kr. af eignastýringu bankans en rúmum milljarði króna af fjárfest- ingarhluta bankans. Þá námu hreinar tekjur af innheimtu- og greiðsluþjón- ustu rúmum hálfum milljarði kr. Ekki fengust sambærilegar upplýsingar frá hinum bönkunum. 15,1 milljarður í þjónustutekjur  Hreinar þjónustutekjur þriggja stærstu viðskiptabankanna rúmir 15 milljarðar kr.  Tekjur vegna greiðslukortaviðskipta stærsti tekjuliðurinn og voru fimm milljarðar  Gjöldin hækka reglulega Samsett mynd/Eggert Þjónustugjöld Hreinar þjónustutekjur þriggja stærstu viðskiptabankanna voru 15,1 milljarður króna á fyrstu 6 mánuðum ársins. Verðskráin hjá Landsbankanum hækkaði síðast í ágúst en verðskrá Arion- banka hækkaði í september. Síðasta hækkun Íslandsbanka var í nóvember á síðasta ári. Á töflunum má sjá þróun nokkurra þjónustugjalda frá febr- úar á síðasta ári. Þjónustugjöld þrigga stærstu bankanna 2. okt. 2014 Arion Landsbankinn Íslandsbanki Árgjald debetkorts Debetkortafærslur Úttekt í hraðbanka innanlands Tékkafærslur og útborganir hjá gjaldkera Millifærslur á reikning í öðrum banka Framkvæmd greiðsla í innheimtuþjónustu Upplýsingar um stöðu í gegnum síma Útborgun í banka eða hraðbanka erlendis 750 kr. 18 kr. 155 kr. * 50 kr. 120 kr. 75 kr. 75 kr. 2,75% 650 kr. lágmark 495 kr. 16 kr. 150 kr.* 54 kr. 100 kr. 75 kr. 95 kr. 2% 650 kr. 17 kr. 125 kr* 50 kr. 125 kr. 75 kr. 95 kr. 2% *Ef tekið er út með debetkorti annars banka. Þjónustugjöld þrigga stærstu bankanna 25. feb. 2013 Arion Landsbankinn Íslandsbanki Árgjald debetkorts Debetkortafærslur Útborgun í hraðbanka innanlands Tékkafærslur og útborganir hjá gjaldkera Millifærslur á reikning í öðrum banka Innborgun/greiðsla á greiðsluseðla Upplýsingar um stöðu í gegnum síma Útborgun í banka eða hraðbanka erlendis 690 kr. 15 kr. 110 kr. 50 kr. 110 kr. 110 kr. 75 kr. 2,75% 650 kr. lágmark 495 kr. 16 kr. 150 kr. 54 kr. 100 kr. 75 kr. 95 kr. 2% 400 kr. 15 kr. 95 kr 50 kr. 125 kr. 75 kr. 0 kr. 2% Kostar að kanna stöðuna Að sögn Helga Teits Helgasonar, framkvæmdastjóra við- skiptasviðs hjá Landsbankanum fara hreinar þjónustutekjur m.a í uppihald á tölvukerfum. „Svo er inni í þessu fjárfesting í nýjum tækjum. Það er greitt með þessu. Sú fjárfesting á sér stað yfir lengri tíma. En samkvæmt uppgjörinu þá fer þetta beint í vasann [hjá bankanum],“ segir Helgi Teitur. Ekki er greitt fyrir úttekt í hraðbanka í eigin viðskipta- banka. Hins vegar er greitt ár- gjald fyrir debetkort og í ljósi þess er ekki hægt að nálgast fé af tékkareikningi án þess að greiða fyrir það. Að sögn Helga er eina leiðin til þess að nálgast peninga án þess að greiða fyrir það sú að geyma fé á bankareikningi á borð við sparisjóðsbók. Gjald- kerar bankans innheimti ekki greiðslu fyrir það. „Beint í vasann“ í uppgjöri EKKI GREITT FYRIR ÚTTEKT AF SPARISJÓÐSBÓK JEPPADEKK Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is Vönduð og endingargóð vetrardekk sem koma þér örugglega hvert á land sem er

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.