Morgunblaðið - 03.10.2014, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 03.10.2014, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2014 stjórnmálunum. Hún vildi ekki svara því hvort hún hygðist gefa kost á sér í kosningunum eða sækjast eftir því að verða aftur formaður flokks- ins. Kemst hún aftur til valda? Endurskoðunarnefnd þingsins sagði að Hammond hefði nokkrum sinnum verið áminnt um að endur- greiða féð sem hún sökuð um að hafa notað í eigin þágu. Hún endur- greiddi fjárhæðina í síðasta mánuði. Endurskoðunarnefndin hugðist ljúka rannsókninni síðar í mán- uðinum en gert var hlé á henni vegna þingkosninganna. Gert er ráð fyrir því að rannókninni verði haldið áfram eftir kosningarnar. Að sögn stjórnmálaskýrenda er hugsanlegt að Hammond verði aftur leiðtogi Siumut-flokksins ef rann- sóknin leiðir í ljós að fjárhæðin hafi ekki verið endurgreidd vegna mis- taka starfsmanns hennar. Grænlenski stjórnmálaskýrandinn Sten Lund telur að Siumut sé í miklum vanda vegna málsins þar sem flokkurinn hafi svikið loforð sín fyrir síðustu kosningar um að binda enda á misnotkun á opinberu fé. Flokkur Hammond var við völd á Grænlandi í 30 ár samfleytt frá árinu 1979, þegar landið fékk sjálf- stæði í eigin málum, og þar til hann beið ósigur í kosningum árið 2009. Hann var einn við völd á árunum 1979 til 1983 en eftir það í stjórn með einum eða tveimur öðrum flokkum þar til hann beið afhroð í kosningunum fyrir fimm árum. Hammond varð þá formaður Siumut og flokkurinn komst síðan aftur til valda í kosningum í mars á síðasta ári. 30 ár við völd spilla Ásakanir um spillingu hafa lengi loðað við grænlenska stjórn- málamenn sem hafa verið sakaðir um að vera frekir til fjárins þegar þeir komast í landstjórnina. Danski blaðamaðurinn og rithöf- undurinn Marianne Krogh Ander- sen, sem hefur fylgst grannt með grænlenskum stjórnmálum í 30 ár, telur að þetta megi m.a. rekja til langs valdatíma Siumut. „Þeir [Siumut-menn] eru feður heima- stjórnarinnar, en þeir hafa verið of lengi við völd,“ hefur fréttavefur danska ríkisútvarpsins eftir And- ersen. „Ímyndið ykkur ef við hefð- um haft sama flokkinn við völd í 30 ár. Völdin spilla, ef menn venjast því að sitja alltaf við stjórnvölinn.“ Siumut-flokkurinn í miklum vanda  Ásökun um spillingu leiddi til „pólitísks glundroða“ Skammgóður vermir Aleqa Ham- mond fagnar sigri Siumut í kosning- unum á Grænlandi í mars 2013. Hreinsuð af ásökunum? » Aleqa Hammond gagnrýndi í gær fyrrverandi félaga sína í landstjórninni og stjórnarand- stöðuna fyrir að dæma hana seka áður en niðurstaða rann- sóknar á meintu lögbroti henn- ar lægi fyrir. » Hammond segist vilja að rannsókninni á máli hennar verði haldið áfram og vonar að hún verði hreinsuð af ásök- unum um lögbrot. AFP BAKSVIÐ Bogi Þór Arason bogi@mbl.is „Þetta er pólitískur glundroði. Við erum í mjög óvenjulegri stöðu, það sem hefur gerst er mjög sjaldgæft. Ég held að ég hafi aldrei upplifað annað eins,“ sagði Poul Krarup, rit- stjóri grænlenska blaðsins Sermits- iaq, um stöðuna í stjórnmálum Grænlands eftir að landstjórnin sprakk og boðað var til kosninga. Aðdragandinn var mjög drama- tískur. Formaður endurskoðunar- nefndar grænlenska þingsins til- kynnti á föstudaginn var að Aleqa Hammond, formaður landstjórnar- innar, hefði verið sökuð um að hafa notað rúmar 106.000 danskar krónur (2,2 milljónir íslenskra) af opinberu fé í eigin þágu. Hammond er sögð hafa notað féð til að greiða fyrir flugmiða, hótelgistingu og veitingar fyrir fjölskyldu sína. Hammond greip til þess ráðs að óska eftir því að fá leyfi frá störfum vegna rannsóknar nefndarinnar og þingið samþykkti beiðnina. Skömmu síðar felldi þingið tillögu stjórnar- andstöðunnar um að lýsa yfir van- trausti á landstjórnina og efna til kosninga. Svo virtist sem stjórnin myndi halda velli þar til tveir ráðherrar og þrír þingmenn í flokki Hammond, jafnaðarmannaflokknum Siumut, sögðu af sér vegna óánægju með hvernig forysta flokksins tók á mál- inu. Frjálslyndi flokkurinn Atassut ákvað þá að slíta stjórnarsamstarf- inu við Siumut, þótt þingmenn hans hefðu áður greitt atkvæði gegn van- trauststillögunni. Landstjórnin missti þar með meirihluta sinn á þinginu og boðað var til þingkosn- inga 28. nóvember. Hammond sagði einnig af sér sem formaður Siumut-flokksins í fyrra- kvöld og að sögn Sermitsiaq er mikil óvissa um hvort hún haldi áfram í Mikil spenna var í miðborg Hong Kong í gær eftir að lögreglumenn sáust bera kassa með táragashylkj- um og gúmmíbyssukúlum úr flutn- ingabílum í grennd við götur sem þúsundir mótmælenda hafa lagt undir sig. Lögreglan varaði mótmæl- endur við því að ráðast inn í opinber- ar byggingar eins og samtök náms- manna höfðu hótað ef æðsti embættismaður Hong Kong, Leung Chun-Ying, segði ekki af sér. Námsmennirnir höfðu gefið Leung frest til miðnættis að staðar- tíma í gær, klukkan 16.00 að íslensk- um, til að verða við kröfunni um af- sögn. Skömmu áður en fresturinn rann út hélt Leung blaðamannafund og sagðist ekki ætla að segja af sér en bauðst til að hefja viðræður við fulltrúa mótmælendanna. Mikil reiði var meðal mótmælend- anna þegar fréttist af flutningunum á táragasi og gúmmíbyssukúlum. „Því fleiri sem við erum hérna, þeim mun öruggari erum við,“ sagði einn mótmælendanna. „Ef þeir beita táragasi færum við okkur á aðrar götur, ef þeir skjóta gúmmíkúlum hlaupum við svolítið hraðar.“ AFP Spenna Lögreglumenn standa gegnt mótmælendum í miðborg Hong Kong. Leung hafnaði kröfu um afsögn VELKOMIN Á TAPASHÚSIÐ FISK LOVER/FISH LOVER 5.750 KR. Skelfisksúpan okkar... Bláskel, leturhumar, tómatur Skötuselur & steiktur leturhumar... graskersmauk, fennika, beikonfroða Créme brulée, daim súkkulaði, rifsber, marengs SURF & TURF 7.200 KR. Hægelduð bleikja... Reykt majónes, rúgbrauð, fennika Sojamarineraður túnfiskur... geitaostur, hnetusósa, agúrka Tapas nautapiparsteik & steiktur leturhumar... béarnaise Súkkulaðikaka... reese´s pieces, jarðaber, rjómaís HJÁ OKKUR ER OPIÐ Í HÁDEGINU OG LANGT FRAM Á KVÖLD TAPASHOUSE - ÆGISGARÐUR 2 - SÓLFELLSHÚSIÐ - 101 REYKJAVÍK +354 512 81 81 - INFO@TAPASHOUSE.IS - WWW.TAPASHOUSE.IS Kíktu til okkar niður á höfn og njóttu þess að borða góðan mat! Gylfaflöt 7, Grafarvogi | Sími 587 8700 | www.krumma.is Dropinn fæst í KRUMMA Mikið úrval lita Frábært í barnaherbergið Verð frá kr. 19.900 Opið: Mán.-fös. 8:30-18:00 Öryggi – Gæði - Leikgildi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.