Fréttir - Eyjafréttir - 17.12.1987, Side 12
Agnar Angantýsson, yfirlögregluþjónn:
Umferðarhappdrættið
Veist þú ökumaður•gódur
að þú spilar í Umferðar-
happdrættinu og þar eru
dregnir út vafasamir vinn-
ingar, svo ekki sé meira
sagt. Par er ekki gott að hafa
(vinnings) hlutfallið hátt og
þú munt áreiðanlega ekki
vilja kaupa marga miða í
þessu happdrætti.
En við skulum kynna okk-
ur þetta merkilega happ-
drætti betur. Reiknum með
að umferðarslysin verði
8000 á þessu ári, í þeim
slasist 700 manns og minnsta
kosti 20 látist. Segjum að
ökumenn séu 150.000.
/þessu happdrætti, notum
við ekki miða, þrennur eða
tölur, heldur skulum við
nota töflur í staðinn. Við
skulum fá okkur kassa og
setja í hann 150. þús. töflur,
sem allar líta eins út. Flestar
eru sætar, en um það bil
8000 eru beiskar, sem þýðir
að þú lendir í umferðarslysi
og mundu líka að 700 af
þeim valda þér líkamlegum
þjáningum og 20 töflur eru
banvænt eitur.
GERÐU SVO VEL VEG-
FARANDI GÓÐUR. MÁ
BJÓÐA ÞÉR EINA.
Þú kannski spyrð. „Verð
ég að taka töflu“ og svarið
verður. Já, ef þú ætlar af
stað út í umferðina.
En þú getur sjálfur ráðið
miklu um hve vinnings/tap-
hlutfallið verður hátt íþessu
miskunarlausa happdrætti.
Við skulum öll vera sam-
taka um að fækka beisku
töflunum.
Hvernig fækkum við
þeim ?
Með AÐGÆSLU OG
TILLITSEMI í umferðinni.
Agnar Angantýsson
yfírlögregluþjónn.
0 Þú getur ráðið sjálfur miklu um hve vinnings/taphlutfallið
verður hátt í þessu miskunarlausa happdrætti.
Mikið úrval afhinum
vestur-þýsku gæðahandverkfærum frá FEIN
TILVALIÐ TIL JÓLAGJAFA Höfum einnig
kirkjugarðsperur og litaðar 220 v. útiseríur.
FEIN RAFMAGNSHANDVERKFfERI
<
§
C2
fc
Nákvæmni og öryggi
RAFVER HF
Höggborvél
—fyrir alhlióa notkun
• Afturábak og áfram snúningur
• Tvö hraðastig með stiglausum rofa
• Handfang sérhannað fyrir rétt átak og grip
• Dýptarstillir í rennigreip
• Hraðastjórn með snúningslæsingu.
Hleðsluborvél
-aflmikil og fjölhæf
• Afturábak og áfram snúningur
• Tvenns konar snúningshraði
• Átaksstillir fyrir skrúfuvinnu
• Sjálfvirkt hleðslutæki með Ijósmerki
• Laus hleöslurafhlaða
• Löng ending hverrar hleðslu
• Fer sérlega vel í hendi
Komið og kynnið ykkur mikið úrval FEIN
rafmagnshandverkfæra.
*P Raftækjavinnustofa
GEISLI SLyjum