Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 23.08.2001, Blaðsíða 12

Fréttir - Eyjafréttir - 23.08.2001, Blaðsíða 12
12 Fréttir Fimmtudagur 23. ágúst 2001 Treysti mér til að búa í Eyjum -þrátt fyrir eldvirkni því ég vil miklu frekar búa á svona fallegum stað þar sem einhver hætta er en litlausum stað sem engin hætta er, segir Simone Fischer sem vinnur að rannsóknum á eldfjöllum í byggð og afleiðingum af jarðskjálftum Enn er Heimaeyjargosið vettvangur vísinda- manna og mætti halda að nú tuttugu og átta árum eftir gosið væri búið að þaulkanna allar mögulegar og ómögulegar hliðar á atburðinum en það er öðru nær. Brekkusöngurinn heillaði Simone Fischer er tuttugu og sex ára jarðfræðinemi frá Sviss sem stödd er í Vestmannaeyjum til að vinna að lokaritgerð sinni sem ijallar um eldgos í byggð. hversu mikil hætta er á að gjósi hér aftur og áhrif þess á fólkið að búa á virku gossvæði. Simone kom til Eyja tveimur dögum fyrir þjóðhátíð en ákvað að fara ekki í Dalinn. „Nei, ég er stödd hérna ein og þekkti engan og eins var mér sagt hvað kostaði inn, það var rosalega dýrt. En ég var stödd nánast við Dalinn með tjaldið mitt og sá því bæði brennuna og flugeldasýninguna, sem var stórglæsilegt." Það sem heillaði Simone mest var brekkusöngur Arna Johnsen. „Söng- urinn var frábær og einstakt að heyra svo marga syngja í kór.“ Fyrir rúmum fjórum árum þegar Simone var að byrja sitt nám þurfti hún að ákveða hvað hennar lokaril- gerð ætti að fjalla um, hún fékk í hendur lista með hinum ýmsu rannsóknarverkel'num og eftir að hafa lesið niður listann kom hún að verkefni á Islandi og sló til. „Eg hafði séð myndir frá landinu og heillaðist af þvf. Ég kem sjálf frá litlu fjallaþorpi sem heitir Venthone og þar búa rétt rúmlega þúsund manns." Venthone er í suðurhluta frönsku- mælandi hluta Sviss. „Mér finnst landslagið alls ekki ósvipað því sem ég þekki að heiman þó með einni undantekningu, við höfum tré.“ Það var Ijóst þegar líða tók á námið að Simone þurlti að fara til Islands til að vinna að lokaritgerðinni og tveggja mánaða ferð var undirbúin, Simone lagði svo af stað til íslands með Norrænu sjöunda júlí og kom til Seyðisfjarðar þann tíunda. „Ég var svo heppin að fá lánaðan bíl hjá foreldmm mínum og auðveldar það mér mikið en ég verð að viður- kenna að á leiðinni hingað með skipinu fór ég að efast um að ég væri að gera rétt í því að fara hingað ein í tvo mánuði en um leið og ég keyrði frá borði á Seyðisfirði hvarf allur vafi úr huga mér, ég gjörsamlega féll fyrir landinu." Byrjaði í ferðamannaleik Hún eyddi fyrstu tíu dögunum í að ferðast eins og ferðamaður, tók dags- ferð til Gullfoss og Geysis, skoðaði Þingvelli og kom svo til Vestmanna- eyja og eyddi fyrstu vikunni hér í ferðamannaleik. „Ég vildi kynnast túrismanum fyrst áður en ég færi að setja mig í einhverjar stellingar, tók því rútuferðina um eyjuna, bátsferðina kringum eyjuna og skoðaði lundann." Simone segir þó að hún hafi verið orðin leið á sífelldum spurningum frá ferðamönnum um hvort hún hafí séð lunda eða Keikó, „það virtist ekkert annað komast að en nákvæmlega það Simone finnst miður hvernig ferðamenn taka á Vestmannaeyjum. Fólkið sem gisti á tjaldstæðunum hélt að það væri búið að sjá allt sem vert er að sjá í Vestmannaeyjum eftir rúmlega klukkutíma rútuferð, því fer svo fjarri, segir hún. SIMONE við rannsóknastörf. sem matreitt er ofan í fólkið og því var ég spurð nokkrum sinnum á dag hvort ég hafi séð Keikó." Simone finnst miður hvemig ferða- menn taka á Vestmannaeyjum. „Fólkið sem gisti á tjaldstæðunum hélt að það væri búið að sjá allt sem vert er að sjá í Vestmannaeyjum eftir rúm- lega klukkutíma rútuferð, því fer svo fjarri.“ Rannsóknin Rannsókn Simone fjallar að mestu leyti um þær jarðhræringar sem urðu hér 1973 og hvemig við höfum unnið úr gosinu og hvemig við nýtum t.d. hitann úr hrauninu. „Það er aðdáunarvert hvemig þið hafið lært af gosinu og nýtt ykkur það til betri byggðar." Eins er mannlegi þátturinn mikil- vægur hluti af ritgerðinni og til þess þarf hún að ræða við fólk sem upplifði gosið. „Ég hef mikinn áhuga á að ræða við fólk sem var hér í gosinu og sneri aftur, til að fá þeirra viðhorf gagnvart því að búa hér eftir að hafa upplifað gosið.“ Fyrir rúmum fjórum árum þurfti hún að ákveða hvað hennar lokaritgerð ætti að fjalla um, hún fékk í hendur lista með hinurn ýmsu rannsóknarverkefnum og eftir að hafa lesið niður listann kom hún að verkefni a íslandi og sló til. Stemmningin í bænum er ekki ósvipað því sem Simone þekkir frá heimabæ sínum. „Hér býr vinsamlegt fólk sem segir skemmtilega frá og ég býst við að kúltúrinn sé svipaður hér og ég þekki að heiman, lítill bær þar sem allir vita hver er hvað og rúmlega það,“ segir Simone og brosir. Simone segir að hér hafi allir reynst sér afskaplega vel, allir væru tilbúnir að aðstoða hana eftir fremsta megni og það hafi auðveldað henni vinnuna. „Ég var í tjaldi þar til á föstudag en þá var mér boðið að gista í skáta- heimilinu og því gat ég lagt tjaldinu í bili a.m.k. Eins hef ég fengið aðstöðu í Háskólanum hér til að vinna. Ég fór þangað til að ræða við fólkið og var strax tekið opnum örmum og boðið skrifborð til afnota meðan á dvöl minni stendur." Þegar hún er spurð af því hversu mikla hættu hún telji á að gjósi aftur segir hún best að fara varlega í allar svoleiðis spár. „En það er alveg ljóst að þið búið á virku svæði og því eru alltaf tölu- verðar líkur á að það gjósi aftur. en það þarf ekki að vera að það verði á Heimaey, alveg eins langt úti á sjó hér í kring. Þó er alveg ljóst að Eyjamenn munu ekki lenda aftur í sömu aðstöðu og 1973, enda segja þeir vísindamenn sem ég hef rætt við hér að þeir geti sagt til með allt að viku fyrirvara ef eitthvað er að fara að gerast.“ Simone segist hiklaust treysta sér til að búa hér þrátt fyrir það. „Ég vil miklu frekar búa á svona fallegum stað þar sem einhver hætta er en litlausum stað sem engin hætta er.“ SÞ. Laxeldið fer ekki af stað fyrr en næsta vor Nú er orðið Ijóst að ekkert verður af fyrirhuguðu laxeldi í Klettsvík fyrr en næsta vor. Astæðan er, að sögn Erlendar Bogasonar, utanaðkomandi tafir, þ.á.m. Ijósleiðari Línu.Net sem þarf að færa til. „Þeir menn sem vinna við þetta eru fastir við einhvem rafstreng í Reykjavík sem er slitinn og komast því ekki út í Eyjar tyrr en f næstu eða þamæstu viku og því ljóst að ekkert verður af laxeldinu fyrr en í vor.“ sagði Erlendur og bætti við að fleira hefði komið til sem hafi tafið verkið og nú væri hreinlega orðið of seint íyrir þá að setja niður laxinn. „Ef það á að standa rétt að þessu þarf að vera búið að setja niður í í mars eða apríl og slátra í nóvember eða desember, og það segir sig sjálft að nú emm við orðnir allt of seinir.“ Þó svo að ekki verði sett niður fyrr en í vor er nóg að gera fyrir Erlend og hans menn við frekari undirbúning, „nú verður farið í það að undirbúa verkið frekar, farið verður í umhverfisrannsóknir og festingar settar niður þannig að allt verði klárt í vor.“ Það er því ljóst að ekki verður þrengt að háhymingnum Keikó í vetur og ætti að fara vel um hann í Klettsvík þar sem hann mun að öllum líkindum hafa vetrardvöl. Hvernig er háttað aðgengi fatlaðra? Svohljóðandi fyrirspurn barst frá Ragnari Oskarssyni á síðasta fundi bæjarráðs: „Hinn 29. ágúst 2000 sam- þykkti bæjarráð að vísa eftirfarandi tillögu til tækni- deildar: „Bæjarráð samþykkir að gera ráðstafanir til þess að laga aðkomu fyrir hjólastóla, bamavagna og ketrur við helstu mót gangstétta og gatna bæjarins. Bæjarráð leggur áherslu á að verkinu verði flýtt svo sem frekast er kostur.“ Hver er staða þessa máls nú? Bæjarráð vísar fyrirspuminni til tæknideildar. Ragnar Óskarsson hélt áfram: „Ég óska hér með eftir skriflegri greinargerð um stöðu biðlista á leikskólum bæjarins. Jafnframt óska ég eftir upplýsingum um úrræði vegna biðlista.“ Bæjarráð samþykkti að fela skólamálafulltrúa í samráði við leikskólafulltrúa. að afla umbeð- inna gagna.“

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.