Harmoníkan - 31.05.1990, Blaðsíða 9

Harmoníkan - 31.05.1990, Blaðsíða 9
HÉRAÐSBÚA Fréttir af Héraði X rshátíð H.F.H. varhaldin ^ 7 apríls.l. íHótelVala- skjálf. Var hún með hefð- bundnu sniði að öðru leiti en því að tvö félög stóðu fyrir henni að þessu sinni. Harmo- níkufélag Héraðsbúa og Karla- kór Fljótsdalshéraðs. Helstu röksemdir fyrir þessari ný- breytni voru þær að allmargir félagar í H.F.H. eru einnig í Karlakómum. Þessi tilraun fékk góða dóma og þótti takast vel. Heiðursgestur árshátíðar var Grétar Geirsson bóndi úr Rangárþingi. Fékk hann að vonum góða dóma fyrir hressi- legan og vandaðan harmoníku- leik. Að þessu sinni voru veðurguðimir okku hliðhollir en á því hefur verið misbrestur síðustu tvö árin. Það bar til tíðinda þennan sama dag að hljóðritaðir voru fjórir sauma- stofudansleikir fyrir Ríkisút- varpið. Upptöku stjómaði Hermann Ragnar Stefánsson ásamt tæknimönnum ffá svæðisútvarpi Austurlands og fór upptakan fram í samkomusal Dvalarheimilis Aldraðra á Egilsstöðum. Fannst nikkurum H.F.H. nóg að gera þennan laugardag en þeir sáu einnig um danstónlist á fyrr- nefndri árshátíð. Guttormur Sigfússon Danir koma Na er búið að ákveða það að hópur frá „Videbæk Harmonikaklub" komi í heim- sókn í sumar. Aðalhvatamaður að þessari heimsókn er Hermóður B. Alfreðsson, danskur maður sem bjó hér lengi en er nú fluttur aftur heim til Danmerkur. Hermóður hefur lengi reynt að koma á sambandi milli ís- lenskra og danskra félaga og skipulagt ferðir danskra spilara til íslands eins og t.d. Poul Uggerly og Lille-Palle Ander- sen. Einnig hefur hann greitt götu íslenskra harmoníkuleikara í Danmörku og má því segja að honum hafi tekist að leggja grunn að vináttutengslum þjóðana. Lengi skrifaði hann pistla í danska harmoníkublaðið „Har- monika Folder" sem áttu að vera fféttir frá íslandi en upp úr því samstarfi slitnaði síðar. Um þessar mundir ritar hann pistla í Hermóður B. Alfreðsson norska blaðið „Gammel dans" og á þá til að skrifa undir „Hermodur Island". Eins og fyrr segir kemur danska harmoníkufélagið í júlí í sumar. Að því tilefni mun „3. Klúbburinn" sem raunar er aðeins Hermóður einn, halda skemmtun í Djúpinu í Hafnarstræti. Má reikna með að þar verði þröngt á þingi þar sem salurinn tekur ekki með góðu móti nema um 35 manns. Þar mun Hermóður væntanlega greina ffá harmoníkumóti, sem hann ásmt fleirum sjá um og verður haldið í Danmörku á næsta ári. Þ.Þ. Molar Haraldur Þórarinsson, Kvistási í Kelduhverfi á stórt safn af plötum og öðrum hljóðritunum með Toralf Tollefsen. Hefur hann skrifað honum og fengið ýmislegt sem vantaði í safnið og er nú svo komið að Haraldur telur sig eiga nær allar hljóðritanir, eða u.þ.b. 150 lög, sem eru til með honum. Eitt lag er þó sem hann á ekki og man ekki nafnið á, en þar syngur Tollefsen og leikur. Ef einhver getur gefið upplýsingar hvar hægt er nálgast þessa hljóðritun er hann beðinn að hafa samband við Harald. Nýlega var viðtal í útvarpinu við Elías Davíðsson, skólastjóra tónlistaskóla Ólafsvíkur. í við- talinu kom fram að skólinn á 8 harmoníkur fyrir byrjendur í harmoníkuleik. Taldi Elías litlar píanóharmoníkur betri kost að læra á en raf-hljómborð. Gaman væri ef Elías sendi okkur myndir og upplýsingar um unga harmoníkuleikara í Ólafsvík. 9

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.