Harmoníkan - 31.05.1990, Blaðsíða 19

Harmoníkan - 31.05.1990, Blaðsíða 19
líka, hann sagði. Ég hef upplifað stórkostlegt kvöld, séð nokkuð sem ég hélt að væri ekki lengur til, þið skemmtið ykkur eins og norð- menn gerðu fyrir 30 árum síðan en höfum nú algerlega glatað. Ég ætla að koma aftur til Islands í sumar og kynnast betur landi og þjóð. Já það er stundum gott að vera íslendingur við förum ekki alltaf troðnar slóðir. Sérstakur boðsgestur hátíðar- innar var formaður Harmoníkufé- lags Rangæinga Sigrún Bjarna- dóttir og maður hennar Valur Haraldsson. Formaður skemmtin. H.H. S. Dehli og S. Olstad fá þakkarskjöl afhent úr hendi skemmtinefndar. Úr dagblaði í San Fransisco U&A. Og fólkið hrópaði á aukalag. Harmoníkuhljómsveit hafði tekið sér stöðu fyrir utan borgarráðhús- ið í San Francisco og lék af fullum krafti til þess að undirstrika kröfu um að þetta yfirlætislausa hljóð- færi yrði gert að hinu opinbera hljóðfæri San Franciscoborgar. Gömlu ítölsku innflytjendurnir sem fluttu þetta hljóðfæri með sér kölluðu það ,,La fisarmonica“ og nú var hægt að segja að það væri jafn stór partur af borginni eins og jarðskjálftar, úthafsskipt eða jafnvel Jeanette Mac Donald í söng sínum „San Francisco.“ Það verður að vera hægt að spila borgarsöngvana á borgar- hljóðfæri og okkur finnst að harmoníkan ætti að vera valin til þess, i ljósi sögunnar, og svo þess, að hún var næstum fundin upp hérna sagði Tom Torriglia hljóm- sveitarmeðlimur og forsprakki samtakanna. 25 harmonikuleikarar að með- talinni 13 manna hljómsveit stóð á tröppunum undir skrifstofu- glugga borgarstjórans Art Agnos, og spiluðu meðal annars „Lady of Spain“ með tilheyrandi fóta- stappi. En fyrir innan var tillagan til athugunar. Henni var vísað til nefndar og umsagnar almennings. Og Torriglia hélt fast við sinn keip, að harmonikan ætti þetta skilið miklu frekar en gítar, píanó eða jafnvel bongo trommurnar frá 1950 og benti á að San Francisco símaskráin væri sennilega sú eina sem hefði harmoníku sem upp- sláttarorð á gulu síðunum, gíta- runnendur mættu hérmeð fara að lækka á sér risið, ekki gætu þeir státað af þessu. Og Torriglia lét andvarann líða gegnum belginn sem gerði honum fært að tjá sínar leyndustu til- finningar. Þýtt og endursagt. I beinu framhaldi af greininni er skemmtilegt að geta þess til fróð- leiks að eftirtaldir harmoníkuleik- arar hafa dvalið einhvern hluta ævi sinnar í San Francisco. Bræðurnir Pietro Deiro og Gu- ido Deiro, Pietro Frosini, Galla- Rini, John Molinari, Erik Gylling og fl. MOLAR í þriðja tölublaði Harmon- íkunnar 1988—89, 3. árg. er grein sem heitir „Hljómlistalíf í Vest- mannaeyjum um aldamót“ eftir Einar Sigurðsson. Úr hókinni Gamalt og nýtt. í greininni neðst á blaðsíðu 15 er athyglisverð lesning er hljóðar svo! Ólafur Ólafsson, London spilaði á alíslenska harmonikku, mjög stóra, sem hann bar í ól yfir axlirn- ar. Hljóðin í þessari harmonikku líktust einna mest orgeltónum að þvi leyti, að þeir voru sterkir og djúpir. Harmonikka þessi var með hálfnótum. Þar sem skemmtun var, var harmonikkan alltaf á ferð- inni. Hún var Vestmanneyingum um þetta leyti hið sama og fiðlan Norðmönnum. NÚ SPYR MAÐ- UR STÓRT? VEIT EINHVER HVAR HARMONÍKAN ER NIÐURKOMIN? UPPLÝSING- AR ERU VEL ÞEGNAR. 19 J

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.