Harmonikublaðið - 01.06.2002, Blaðsíða 3

Harmonikublaðið - 01.06.2002, Blaðsíða 3
HARMONIKUBLAÐIÐ FRÁ RITSTJÓRN Frá ritstjóra Ábyrgðarmaður : jóhannes Jónsson Barrlundi 2 600 Akureyri Sími 462 6432, 868 3774 Netfang: johild@simnet.is Ritvinnsla: Hildur Gunnarsdóttir Prentvinnsla: Alprent Netfang: alprent@alprent.is Meðal efnis • Fréttir af Héraði • FHSN 10 ára • Viðtal við Eyþór H. Stefánsson • Viðtal við Ingva Vaclav • Jón Jónsson frá Hvanná • Frá starfi F.H.U.R Forsíðan Efri mynd: Keppendur og dómnefnd. Frá hægri; Roar, Lilja og Richard. Frá vinstri; keppendurnir )ón Þorsteinn, Unnur Birna og Þuríður. Neðri mynd: |ón Þorsteinn Reynisson ásamt kennara sínum Stefáni R. Gíslasyni Auglýsingaverð: Baksíða 1/lsíða kr. 12.000 —“ l/2síða kr. 6.000 Innsíður 1/1síð kr. 11.000 l/2síða kr. 6.000 ii l/4síða kr. 3.500 l/8síða kr. 2.500 smáauglýsing kr. 1.500 Kæru lesendur! Nú þegar þessi orð eru skrifuð hafið þið þarið augum fyrsta tölublað nýs harmon- ikuþlaðs, sem ætla má að hafi glatt ykkur flest, ef marka má þær góðu undirtektir sem það hefur fengið. Ég vil þakka öllum þeim sem hafa hringt eða sent tölvupóst og lýst ánægju sinni með biaðið. Gott væri að heyra líka í þeim sem finnst að betur megi gera, það er alltaf gott að fá góðar ábendingar. Það er ekki auðvelt fyr- ir þann sem aldrei hefur fengist við blaða- útgáfu og hefur auk þess takmarkaða þekkingu á viðfangefninu þ.e. harmon- ikunni og efni henni tengt að fást við slíkt. Ég vil biðja ykkur lesendur góðir að stuðla að framgangi blaðsins með því að vera dugleg að senda efni, því aldrei er of mik- ið af slíku. Fjölbreytt efni gefur blaðinu gildi og bætir grundvöll þess. Það er von okkar sem að blaðinu stönd- um að þið áskrifendur þess hjálpið okkur að afia fleiri áskrifenda ekki síst vegna þess að það kostar mikið að gefa út svona blað og von okkar er sú að ekki þurfi að borga með því úr þeim litlu sjóðum sem Landsambandið hefur yfir að ráða, enda ekki um margar fjáröflunarleiðir að ræða. Næstum það eina sem sambandið hefur úr að spila eru tekjur af landsmótum sem haldin eru þriðja hvert ár, ef frá eru talin félagsgjöld aðildafélaga SÍHU sem eru mjög lág. Ætlunin er að þessi fyrsti árgangur kosti 1500 kr. Ef við í sameiningu getum aflað fleiri áskrifenda má vænta þess að blaðið lækki enn frekar í verði á næstu árum.Að lokum er ekki úr vegi að minna á landsmót SÍHU sem haidið verður á ísa- firði dagana 4. til 7. júlí. Fyrsta landsmót- ið var haldið í Reykjavík árið 1982.Næsta landsmót var á Varmalandi í Borgarfirði árið 1984. Síðan þá hafa landsmót verið haldin reglulega á þriggja ára fresti og er landsmótið á ísafirði því það áttunda í röðinni.Ég álít að landsmótin séu aðal gleðihátíð allra harmonikuunnenda, ekki bara þeirra sem eiga og leika á harmoniku heldur allra þeirra sem lært hafa að njóta þeirrar gleði sem hún kallar fram við öil möguieg tækifæri. Það að þetta annað tölublað kemur út svo skömmu eftir fyrsta tölublaðið stafar af talsverðri seinkun á útkomu þess fyrra af ýmsum ástæðum sem ekki verða raktar hér. Það mun eflaust koma fram á þessu blaði hve skammur tími hefur verið til efn- isöflunar. Ætlunin er að þriðja og síðasta blað þessa fyrsta árgangs komi síðan út í októbermánuði næstkomandi. Það er undir ykkur komið lesendur góðir hvernig til tekst með framhaldið. Að lokum vonast ég til að sjá ykkur sem flest á Landsmótinu á ísafirði dagana 4.-7. júlí n.k. Með bestu kveðju. lóhannes lónsson Keppni í hljóðfæraleik á vegum Menor Menningasamtök Norðurlands Menor stóðu fyrir keppni í hljóðfæraleik í Tónlistar- skólanum á Akureyri helgina 31.maí til 2.júní 2002. Að þessu sinni voru þátttakend- ur í neðri stigum, en síðar verður keppni eldri nemenda þ.e. 6.-8.stigs. Keppendur komu frá tónlistarskólum Norðurlands. Nítján nemendur þreyttu forkeppni á föstu- dag. Ádaugardag stóðu 6 keppendur eftir og á sunnudag kepptu 3 þeir efstu. Sigur- vegari varð |ón Þorsteinn Reynisson harmonikuleikari frá Mýrarkoti í Skagafirði. Þeir keppendur sem urðu í 2. og 3. sæti eru fiðluleikararnir Unnur Birna Björnsdóttir og Þuríður Ingvarsdóttir báðar frá Akureyri. Þrír voru í dómnefnd, tveir frá Reykjavík, þau Lilja Hjaltadóttir og Richard Simm ásamt Roari Kvam frá Akureyri, en hann annað- ist alla framkvæmd keppninnar, sem fór mjög vel fram.Búnaðarbanki fslands veitti sigurvegurunum vegleg peningaverðlaun. Þess má geta að Menor stóð fyrir söngvarakeppni árið 1996. lóhannes lónsson mt

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.