Harmonikublaðið - 01.12.2003, Blaðsíða 6

Harmonikublaðið - 01.12.2003, Blaðsíða 6
Ferðasaga HARMONIKUBLAÐIÐ Við Seljalandsfoss gengu allir sem vettlingi gátu valdið undir fossinn og fengu frískandi andlitsbað. Þegar við komum að bílnum biðu okk- ar kærkomnar veitingar kaffi og meðlæti. En var haldið áfram og nú að Skógarfossi Þar misstu „tvær" eldri konur sig, héldu að þær væru orðnar ungar í annað sinn og eltu unga fólkið upp brekkurnar upp með fossinum. Þetta hreinsaði bara lung- un og æðakerfið og annari fjallageitinni til mikillar gleði þá fann hún lítið blóm sem hún hafði aldrei séð áður. Fór hún að leita upplýsinga og voru þær auðfengnar Vigfús einn af heimamönnum sagði að blómið fyndist aðeins í Mýrdalnum og undir Eyjafjöllum og héti Stúfa. Dagskráin var ekki aldeilis búin, nú skyldi haldið að Skógum og heilsað uppá Þórð safnvörð. Hann tók á móti hópnum og vísaði öllum til kirkju, hélt þar yfir okk- ur fróðlegan fyrirlestur um tilurð kirkj- unnar og sögu safnsins lét söfnuðinn að lokum syngja með sér sálm, fórum við út þaðan betri manneskjur, líklega. Skoðuðum við síðan þetta stóra og merkilega safn eða öllu heldur litum yfir það því nákvæm skoðun á munum þess tekur lengri tíma en við höfðum yfir að ráða. Nú var degi tekið að halla og bílnum snúið í vestur átt þetta var ekki aldeilis búið, bílstjórinn beygði á Markarfljóts- aurum og keyrði upp í Fljótshlíðina og satt er það „fögur er Hlfðin". Einhver nefndi að gaman væri að koma heim í Hlíðarendakot en þar var þá ekki þverfót- að fyrir Samfylkingarfólki sem var í skemmtiferð á mörgum rútum. Rifjuðum við upp það sem sagt er í fornum fræðum að „Enginn má við margnum" og vildum við eiga samskipti við Samfylkinguna annarsstaðar en í Fljótshlíðinn. Á heimleiðinni keyrðum við í gegnum Hvolsvöll og þá eins og áður um daginn sagði einhver af heimamönnum okkur ýmsan fróðleik og gamanmál úr sveitun- um en það er ómetanlegt þegar farið er um ókunnar slóðir. Um kvöldið var okkur haldin dýrðleg veisla í boði heimamanna. Efni í næsta blað! Lesendur blaðsins eru hvattir til að vera duglegir að skrifa í blaðið. Efni í næsta blað þarf að hafa borist eigi síðaren31.marsnk. í Kanslaranum á Hellu. F.v. Rangæingarnir Sigrún Bjarnadóttir, Stefán Ármann Þórðarson, Bragi Gunnarsson, Grétar Geirsson og Skagfirðingarnir Kristján Þór Hansen og )ón St. Gíslason. Slappað af undir Seljalandsfossi. Var síðan slegið upp fjörugum dans- leik, konur og karlar tekin til kostanna og dansað fram eftir nóttu. Spiluðu þar margar sveitir og svo að lokum allir sam- an. Útlendingar sem kíktu inn með hálf- um huga snemma kvölds fóru ekki aftur fyrr en að dansleik loknum. Skemmtu þeir sér manna mest og líklega er land- kynning sem þessi á við margar auglýs- ingar. Morguninn eftir voru vinir okkar enn mættir og að skilnaði færðu þau hópnum geisladiska sem félagið hafði gefið út. Því miður var formaður þeirra veikur og gat ekki tekið þátt í samveru félag- anna, við vonum að hann hafi náð sér og sendum honum góðar kveðjur. Harmonikufélag Rangæinga kærar þakkir fyrir ógleymanlega helgi vonandi getum við í einhverju endurgoldið ykkur þessa miklu gestrisni. Harmonikufélag Skagafjarðar. VERKSTÆÐITIL ALHLIÐA VIÐGERÐA Á HARMONIKUM AÐ KAMBASELI 6, RVK HAFIÐ SAMBAND VIÐ GUÐNAÍSÍMA 567 0046

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.