Harmonikublaðið - 01.06.2004, Blaðsíða 14

Harmonikublaðið - 01.06.2004, Blaðsíða 14
Fróðleikur HARMONIKUBLAÐIÐ Heimsókn í Borgarfjörð Félagar í Harmonikufélagi Vestfjarða hafa ávallt tekið virkan þátt í félagsstarfi og hafa þeir iðulega fjölmennt í þær ferðir sem félagið hefur staðið fyrir. Sumarið 2003 var farið í vel heppnaða ferð til Borgarfjarðar og var þátttaka mjög góð. Lagt var af stað frá ísafirði í einmuna veðurblíðu að morgni föstudagsins 22. ágúst. Farið var með hópferðarbíl frá Ferðaþjónstu Margrétar og Guðna og Hannes Kristjánsson var bílstjóri ferðar- innar. Fjórir félagar bættust í hópinn í Súðavík og áfram var ekið sem leið lá inn djúp þar sem komið var við í sumarbú- stað Þórdísar og Dúdda trommara í Skötufirði. Þar tók hópurinn sér tíma til að drekka kaffi og njóta útsýnisins frá þessum einstaka stað þar sem fjöllin spegluðust á. sjávarfletinum í sólríku veðri. Síðan var ekið sem leið lá áfram inn ísafjarðardjúp og yfir Þorskafjarðar- heiði og um Dali með viðkomu í Skriðu- landi í Saurbæ. Eftir léttan hádegisverð í Skriðulandi var haldið áfram til Búðar- dals þar sem komið var við í Dalakjöri. Þar drógu Ásvaldur frá Núpi og Benedikt frá Bíldudal upp díatónísku harmonik- urnar og héldu útitónleika fyrir gesti og gangandi við mikla ánægju viðstaddra og lagði Ingi grafari til forláta húfu og safn- aðist dágóð upphæð og minnti þetta á stemninguna á Strikinu í Kaupmanna- höfn. Úr skoðunarferð um Borgarfjörð Ásgeir for- maður í forgrunni. urlands ásamt eiginkonum sem buðu okkur velkomin á svæðið. Ungur og efnilegur harmonikuleikari, Rut Berg Guðmundsdóttir.frá Akranesi, lék fyrir okkur nokkur lög við frábærar undirtektir og síðan sló hópurinn ásamt gestum upp balli á hótel Borgarnesi. Fé- lagarnir Villi Valli, Baldur Geirmunds, Dúddi og Magnús Reynir fóru á kostum og var dansað fram á nótt og voru allir glaðir eftir vel heppnað kvöld. Á laugardeginum var farið í skoðunar- ferð um uppsveitir Borgarfjarðar undir leiðsögn Gunnars Gauta Gunnarssonar, dýralæknis, sem er mikill húmoristi og sagnameistari og skilaði hann því hlut- verki frábærlega. í ferðinni var komið við á þekktum ferðamannastöðum eins og Húsafelli, Hraunfossum og Reykholti og nutum við skemmtilegra frásagna Gunn- ars sem hafði frá mörgu að segja um menn og málefni svæðisins enda vel kunnugur á öllum bæjum. Veðrið var með besta móti og er ferðin ógleymanleg í huga þeirra sem fóru enda hjálpaðist allt að. Um kvöldið var haldinn dansleikur í fé- lagsheimilinu Miðgarði í innri Akranes- hreppi. Dansleikurinn átti að hefjast klukkan 22:00, en klukkan 21:30 þegar verið var að stilla upp hljóðfærunum fylltist húsið óvænt af dansglöðu fólki, okkur til mikillar ánægju, enda óvenju- legt að dansleikir hefjist hálftíma fyrir auglýstan tíma. Ánægjulegt var að upp- götva að á meðal gesta voru formenn og félagar nokkurra harmonikufélaga, sumir langt að komnir, m.a. úr Húnavatnssýslu. Fjórar hljómsveitir léku fyrir dansi. Ein frá harmonikuunnendum Vesturlands, og þrjár frá Vestfjörðum. Þessi fjörugi og fjölmenni dansleikur var stórkostlegur endir á skemmtilegum degi. Á sunnudagsmorgni var haldið aftur heim á leið eftir vel heppnaða dvöl f Borgarfirði og ríkti góð stemning í rút- unni, sagðar voru sögur og farið með gamanmál nánast alla heimleiðina. Kom- ið var við í Ögri við ísafjarðardjúp þar sem hópurinn, skoðaði sýningu sem stóð yfir á gömlum ljósmyndum úr Ögur- hreppi. Djúpið skartaði sínu fegursta í kvöldkyrrðinni eins og svo algengt er. Komið var til ísafjarðar um klukkan 21:00. Það voru ánægðir ferðafélagar sem kvöddust á bílastæðinu við Menntaskól- ann þetta kvöld. Fyrir hönd Harmonikufélags Vestfjarða þökkum við Borgfirðingum samveruna og hlýjar móttökur. Ásvaldur Guðmundsson og Ásgeir S. Sigurðsson. Um kvöldið var haldinn dansleikur í fé- Þegar komið var á áfangastað í Borgar- nesi síðdegis bættust nokkrir félagar við og taldi þá hópurinn samtals 50 manns sem kom sér fyrir á herbergjum sínum á Hótel Borgarnesi. Um kvöldið var borðað saman í veitingasal hótelsins og komu þangað í heimsókn Rafn iónsson og stjórnarmenn Harmonikuunnenda Vest- Kemur nokkuð í húfuna? Benedikt og Ásvaldur spila við Dalakjör í Búðardal Ingi E.Jóhannesson fylgist með. í Húsafelli. Gunnar Gauti leiðsögumaður í Borgarfjarðarferð fyrir miðju segir eina af sínum stórkostlegu sögum. EEfflT

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.