Harmonikublaðið - 01.05.2011, Page 16

Harmonikublaðið - 01.05.2011, Page 16
Landsmót S.Í.H.U. Hellu á Rangárvöllum 30. júní - 3. júlí 2011 Landsmót harmonikufélaga verður haldið á Hellu dagana 30. júní til 3. júlí nk. í boði Harmonikufélags Rangæinga, sannkölluð fjölskylduhátíð. íþróttahúsið á Hellu verður vettvangur landsmótsins, en þar er mjög góð aðstaða. Hlökkum til að sjá sem flesta og eiga með ykkur góða helgi. Harmonikufélag Rangæinga mun taka á móti ykkur með útbreiddan faðminn og sól í hjarta á landsmótinu komandi sumar. Landsmótið verður sett á fimmtudags- kvöldið og síðan er samfelld tónlistar- veisla alla helgina Sérlegur gestur landsmótsins er Öivind Farmen, norskur harmonikusnillingur. Einnig koma góðir gestir frá Noregi, frá Vestfold trekkspillklubb í tilefni 30 ára starfsafmælis. Þeir spila á tvöfaldar harmonikur og munu spila bæði á tónleikum og fyrir dansi. Unglingatónleikar verða á laugardag og stefnt að unglingadansleik á Hvolsvelli á föstudagskvöld. Svo verður auðvitað spilað og dansað víðs vegar á Hellu á föstudagskvöld og stórdansleikur í íþróttahúsinu á laugardagskvöldið. Dagskráin verður nánar auglýst síðar, á vef S.Í.H.U. og eins verður hún send formönnum allra aðildar- félaga sambandsins. Helstu gististaðir: Gistihúsið Mosfell (Fosshótel) - 35 herbergi með baði og 18 herbergi án baðs, sími:487-5828. Munið að taka fram að þetta ervegna harmonikumóts, vegna þess að samið hefur verið um 25% afslátt um lands- mótshelgina. Hellirinn Ægissíðu - gisting ífjórum fullbúnum heils- árshúsum, sími: 487-5171 eða 868-3677. Árhús - 28 smáhýsi, stórt tjaldstæði og góð aðstaða fyrir húsbíla, sími: 487-5577. Guesthouse Nonni - Jón Ragnar Björnsson sími:894-9953. Einnig er mikið af bændagistingu í nágrenni Hellu. Ef um allt þrýtur þá hafa samband við Jóa Bjarna í síma: 695-5370. Húsbíla- ogtjaldsvæði ávegum Harmonikufélagsins eru í nágrenni íþróttahúss, á meðan að pláss leyfir, einnig á Árbakkanum. Hittumst heil Jóhann Bjarnason formaður, sími: 695-5370 16

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.