Fréttir - Eyjafréttir - 29.12.2011, Qupperneq 15
Fréttir / Fimmtudagur 29. desember 2011
15
Knattspyrna
Fer til Potsdam til að spila
- Segir Margrét Lára Viðarsdóttir sem byrjar hjá einu besta kvennaliði
Evrópu í knattspyrnu, Turbine Potsdam eftir áramót. - Er reynslunni ríkari
MARGRÉT Lára Viðarsdóttir, leikmaður ársins hjá KSÍ og Ieikmaður
FFC Turbine Potsdam í Þýskalandi.
Eins og áður hefur komið fram,
mun Eyjakonan Margrét Lára
Viðarsdóttir leika með þýska stór-
liðinu FFC Turbine Potsdam
næstu tvö árin. Potsdam er ekki
eingöngu stórlið í þýska boltanum
því liðinu hefur oftar en ekki
verið líkt við Barcelona í kar-
Iaboltanum, það er einfaldlega
langtbest.
Nú er vetrarhlé í þýsku deildinni en
Margrét Lára fékk keppnisleyfi með
liðinu eftir áramót. Potsdam er efst
í þýsku Bundesligunni, með 30 stig
eftir 11 leiki og fjögurra stiga
forstkot á Duisburg, sem er í öðru
sæti. Alls eru 12 lið í deildinni og
því er þýska mótið nákvæmlega
hálfnað þegar Margrét Lára kemur
til leiks.
Potsdam liðið kemur frá sam-
nefndri borg, um 24 km suðvestur af
Berlín í gamla Austur-Þýskalandi. I
borginni búa tæplega 160 þúsund
manns en kvennalið borgarinnar
hefur verið í mikilli uppbyggingu og
er í raun enn, en heimavöllur
félagsins tekur um 10 þúsund manns
í sæti.
Frábær aðstaða hjá Potsdam
Margrét Lára gerði eins og hálfs árs
samning við félagið en hún sagði í
samtali við Fréttir að eftir tímabilið
nú, sé endurskoðunarákvæði.
„Eg vil bara byrja á að klára
þennan vetur og sjá hvemig þetta
hentar mér vegna meiðsla sem ég
hef verið að glíma við undanfarið.
Ef allt gengur upp, þá held ég áfram
en þeir vildu auðvitað líka máta mig
við þýska boltann vegna þessara
meiðsla.11
Margrét Lára er búin að skoða
aðstæður hjá þýska liðinu og líst vel
á. „Ég fór í lok nóvember út en var
búin að skoða aðstæður áður. I
seinni ferðinni fór ég meira til að
kynnast félaginu betur og finna mér
íbúð. Ég náði að klára alla þessa
litlu hluti, fann mér íbúð þannig að
það eina sem ég á eftir núna er að
pakka niður fötunum og fara upp í
vél. Það er mjög þægilegt. Deildin
byrjar aftur í lok febrúar þannig að
þegar ég kem út þá byrjar í raun og
vem nýtt undirbúningstímabil. Ég
geri mér grein fyrir að aðrir leik-
menn em í betri leikæfingu þannig
að ég verð kannski aðeins á eftir til
að byrja með en ég verð fljót að ná
þeim.“
Stenst aðstaðan við það sem lofað
var?
,Já það er frábær aðstaða þama. I
Þýskalandi er vetrardeild þannig að
Styrktarmót fyrir Steingrím
Jóhannesson, ntarkahrók, verður
haldið í Eimskipshöllinni á
morgun, föstudag. Skráning í
mótið hefur gengið mjög vel en
alls hafa 25 lið skráð sig til leiks.
Heyrst hefur að leikmenn hafi
gengið kaupum og sölum en þó
stefna væntanlega allir fyrst og
fremst að því að hafa gaman af því
að koma saman, spila knattspymu
og styðja um leið við bakið á
Steingrími og fjölskyldu en Stein-
grímur glímir nú við krabbamein.
Skráningu lauk á miðnætti í gær,
miðvikudag en ekki lá fyrir endan-
legur fjöldi liða þegar blaðið fór í
prentun. Þess má geta að mörk
kvenna telja tvöfalt í mótinu og
vitað er til þess að í það minnsta tvö
það er ekki mikið um gervigrasvelli.
Við æfum á grasi allt árið og æfinga-
svæðið er ágætt. Það er hins vegar
verið að taka æfingasvæðið í gegn
og það verður tilbúið 2013.
Aðstaðan er kannski svolítið hrá, er
ekki eins og Kórinn eða Eimskips-
höllin, en hún er engu að síður mjög
góð. Þýskaland hefur verið framar-
lega í knattspymunni undanfama
áratugi, bæði í karla- og kvenna-
knattspyrnu þannig að þeir vita
alveg hvað þeir em að gera.
Ahuginn er iíka mikill á kvenna-
knattspymunni, maður sá það á HM
í sumar og svo er gríðarlegur íjöldi
fólks sem æfir knattspymu þama
úti. Þetta er að mörgu leyti mekka
knattspymunnar. Þama er líka gott
teymi utan um liðið, m.a. sjúkraiið
sem skiptir mig miklu máli,“ sagði
Margrét Lára sem hefur undanfarin
ár glímt við erfið meiðsli í baki sem
hafa leitt niður í lappimar.
Nógu góð fyrir Potsdam
Ertu orðin góð af þessum meiðsl-
um?
„Nei og ég efast um að ég verði
nokkum tímann. En ef ég næ að
halda þessu niðri og vera tilbúin til
kvennalið vom búin að skrá sig til
leiks. Leiktíminn verður 1x10
mínútur og verður salnum í
Eimskipshöllinni skipt í íjóra velli.
í leikjunum verða frjálsar skiptingar
en fimm em inn á í einu, þar af einn
markvörður. Þannig að ef meðal-
aldur liðsins er mikið yfir 30 árin, þá
er nauðsynlegt að vera með nokkra
varamenn. Mótsnefnd áskilur sér
rétt til að breyta reglum ef þörf
krefur.
Lágmarksgjald fyrir hvert lið er 10
þúsund krónur en liðum er að sjálf-
sögðu ftjálst að leggja meira til.
Skráning í mótið skal senda á net-
fangið odi@eyjar.is.
Þátttökugjöld og frjáls framlög
leggjast inn á reikning:
0582-15-82639
kt. 140673-4639.
að æfa og spila eins og kostur er, þá
er ég sátt. Ég get ekki æft eins og
venjulegur knattspymumaður en hef
haft mjög skilningsríkan þjálfara hjá
Kristianstad og þannig hef ég getað
spilað svona mikið. En það er
loksins búið að finna út hvað amaði
að þannig að ég get unnið út frá
því.“
Hvernig sérðu fyrir þér stöðuna
þegar þú ferð út? Ferðu þama út til
að komast í byrjunarliðið strax í lok
febrúar eða œtlar þú að gefa þér
lengri tíma í það?
„Ég veit að ef ég er í lagi, þá er ég
nógu góð til að vera sóknarmaður
númer eitt í þessu liði. En þessi
meiðsli þurfa að vera í lagi en auð-
vitað þaif ég að hafa fyrir hlutunum.
Ég ætla mér að spila og ná árangri
og ég lít á mig sem byrjunarliðs-
mann í þessu liði.“
Margrét Lára fór til Þýskalands í
stuttan tíma árið 2006 þegar hún lék
með Duisburg. Sama var upp á ten-
ingnum þá, hún fékk ekki leikheim-
ild fyrr en um áramót en fékk lítið
að spreyta sig hjá liðinu og fór
þaðan til Vals sumarið eftir. „Ég er
reynslunni ríkari og er í dag mun
þroskaðri og betri leikmaður en ég
ÍBV-íþróttafélag fær góða dóma
hjá KSÍ fyrir uppeldisstarf
félagsins í knattspyrnunni. Þeir
Sigurður Ragnar Eyjólfsson,
fræðslustjóri KSI og Dagur
Sveinn Dagbjartsson, starfs-
maður fræðsludeildar heimsóttu
félagið á dögunum og tóku út
knattspyrnuhlutann í starfi
félagsins.
Þetta kemur fram á heimasíðu ÍBV-
íþróttafélags en þeir Sigurður og
Dagur skiluðu inn greinargerð um
starfið í Eyjum.
I greinargerð þeirra kemur m.a.
fram að unnið sé að nýrri uppeldis-
áætlun hjá félaginu enda sé síðasta
áætlun frá 2002 og því komin til ára
sinna. „ÍBV hefur verið í stefnu-
mótunarvinnu á undanfömum
mánuðum og verið að vinna þar í
var 2006. Það er alltaf erfitt að
breyta um umhverfi en ég hef núna
meiri reynslu af því. Þetta getur
verið skemmtilegasta vinna í heimi
en um leið sú leiðinlegasta því ef þú
ert ekki að spila, þá er þetta mjög
erfitt. En ef ég verð heil heiisu, þá
verður þetta ekkert mál fyrir mig því
að spila fótbolta er það skemmti-
legasta sem ég veit. Auðvitað er
alltaf erfitt að vera í burtu frá kær-
astanum, fjölskyldu og vinum en ég
fer ein út en í staðinn get ég einbeitt
mér algjörlega að því að spila fót-
bolta."
Má ekki gera ráð fyrir því að þama
sé gríðarleg pressa á árangur í Ijósi
árangurs félagsins undanfarið ?
,Jú, ég geri ráð fyrir því. Fjölmiðlar
eru líka mun ágengari og umfjöllun
um liðið er mjög mikil en um leið er
pressan enn meiri. En ég lít á það
sem áskorun, ég vil hafa ákveðna
pressu á að standa mig enda held ég
að maður nái bestum árangri undir
hæfilegri pressu."
Full sjálfstrausts til Þýska-
lands
Margrét Lára var á dögunum
útnefnd sem knattspymukona ársins
hjá KSÍ. „Það var frábært fyrir mig
að fá þessi verðlaun eftir tvö erfið ár.
Sumarið nú var frábært því Kristian-
stad er lið sem er á uppleið og
gaman að fá að taka þátt í þeirri upp-
byggingu. Þetta er lið sem var alltaf
í fallbaráttu en nú enduðum við um
miðja deild og ég varð önnur tveggja
markahæstu leikmanna deildarinnar.
Ég fer því full sjálfstrausts til Þýska-
lands og svona verðlaun eru alltaf
jákvæð.“
Það vakti talsverða athygli þegar
tvær knattspymukonur voru valdar
fram yfir Margréti Lám á topp 10
lista fyrir íþróttamann ársins en
knattspyrnukona ársins var ekki
meðal 10 bestu íþróttamanna lands-
ins. „Ég sef alveg yfir þessu en
auðvitað er maður í íþróttum til að
ná árangri og þetta skiptir máli. Ég
var valin íþróttmaður ársins 2007 og
það er mesti heiður sem mér hefur
hlotnast á ferlinum. En það er alltaf
þannig að það eina sem ég get gert
er að spila og reyna standa mig vel
en það eru aðrir sem dæma mig út
frá því. Þegar ég var valin fþrótta-
maður ársins þá vom ömgglega ein-
hverjir sem vom ekki sammála því
en svona er þetta bara. Ég geri bara
mitt besta og þá kannski kemst ég
inn á listann á næsta ári. En þama
em 10 íþróttamenn sem eiga þetta
fyllilega skilið," sagði Margrét Lára
að lokum.
gerð nýrrar stefnu sem er langt á veg
komin og er vönduð og ítarleg.
Þeirri uppeldisáætlun verður skilað
inn með næstu leyfisumsókn ÍBV.
Uppeldisáætlunin verður aðgengileg
á heimasíðu ÍBV og endurskoðuð
reglulega í framtíðinni. Jafnframt
verður tilkynning send á foreldra
eftir endurskoðun uppeldisáætlunar-
innar svo þeir séu vel upplýstir. Hin
nýja uppeldisáætlun ÍBV mun inni-
halda leiðbeiningar um líkamlegt,
andlegt, félagslegt og knattspyr-
nulegt uppeldi innan félagsins,"
segir í greinargerðinni.
I henni er jafnframt komið inn á að
ÍBV eigi meistaraflokkslið í fremstu
röð, bæði Pepsídeild karla og kven-
na þar sem uppaldir leikmenn fái
reglulega tækifæri. Þeir félagar
segja jafnframt það hafa verið
lærdómsríkt að kynnast starfi ÍBV.
íþróttir
Fótbolti:
Víðir aftur
heim í ÍBV
Eyjapeyinn ungi Víðir Þorvarðar-
son hefur ákveðið að ganga aftur í
raðir ÍBV eftir tveggja ára dvöl í
Stjömunni. Hannes Gústafson, í
knattspymuráði staðfesti þetta en
hann sagði að Vfðir væri góð
viðbót við leikmannahópinn. „Við
viljum byggja upp gott lið til
framtíðar og emm að taka inn unga
leikmenn inn í hópinn."
Þrátt fyrir að vera aðeins tæplega
tvítugur á Víðir að baki 18 leiki í
Islandsmótinu og bikarkeppninni
fyrir Stjömuna en hann hefur sko-
rað eitt mark í þessum leikju.
„Nú vil ég bara að Eyjamenn fjöl-
menni á völlinn næsta sumar, styðji
við þessa peyja sem ætla að gera
alvöru atlögu að titlinum," sagði
Hannes.
Fótbolti:
Eiður Aron og
Þórarinn Ingi í
A-landsliðið
Eyjapeyjamir Eiður Aron Sigur-
bjömsson, leikmaður Örebro og
Þórarinn Ingi Valdimarsson, sem
leikur með IBV, hafa báðir verið
valdir í fyrsta landsliðshóp nýs
landsliðsþjálfara, Lars Lagerback.
Þjálfarinn hefur boðað 28 leikmenn
til æfinga 12. til 14. janúar næst-
komandi en æfingamar fara fram í
Kómum í Kópavogi. Einungis
vom valdir leikmenn sem leika á
íslandi og á Norðurlöndunum í
þetta skiptið.
Þrjár valdar í
A-landsliðið
Þær Elísa Viðarsdóttir, Elínborg
Ingvarsdóttir og Berglind Björg
Þorvaldsdóttir vom allar valdar í 40
manna æfingahóp íslenska kvenna-
landsliðsins í knattspymu. Sigurður
Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálf-
ari mun funda með hópnum um
framtíðarmarkmið landsliðsins en
hópurinn mun taka breytingum ef
þurfa þykir.
Handbolti:
Kári komst í
gegnum
niðurskurðinn
Kári Kristján Kristjánsson komst í
gegnum fyrsta niðurskurð Guð-
mundar Þ. Guðmundssonar, lands-
liðsþjálfara, sem nú undirbýr ísl-
enska handboltalandsliðið fyrir
þátttöku sína á Evrópumótinu í
næsta mánuði. Annar Eyjamaður
hlaut hins vegar ekki náð fyrir
augum þjálfarans en það var
markvörðurinn gamalreyndi,
Birkir ívar Guðmundsson. Það
skal engan undra að Kári verði
með íslenska landsliðinu á EM
því Eyjapeyinn hefur verið að
spila sérlega vel í þýsku úrvals-
deildinni að undanförnu og skor-
aði m.a. 7 mörk á þriðjudagskvöld
í tapleik gegn Magdeburg.
Framundan
Miðvikudagur 4. janúar
Kl. 17:00 ÍBV-HK
2. flokkur karla, bikar.
Styrktarmót fyrir markahrók
Fjölmörg lið skráð til leiks
- Mótið fer fram í Eimskipshöll á morgun, föstudag
Úttekt KSÍ á knattspyrnustarfi í Eyjum
ÍBV fær góða dóma