Straumhvörf - 15.01.1943, Blaðsíða 31

Straumhvörf - 15.01.1943, Blaðsíða 31
STRAUMHVÖRF 29 fremur neikvæð en jákvæð í félags- legum efnum. Samt er ekki þörf að benda á gildi hennar fyrir félagslífið, því að ef hún hyrfi meðal einhverrar þjóðar, myndi þjóðin sjálf innan skamms hverfa af yfirborði jarðar. Meðal allra dýrategunda tryggist styrkleiki hvatar þessarar með „nátt- úrlegu úrvali“. Meðal manna er hún einnig svo rík, að það hefir jafnan verið einstaklingslegt og félagslegt vandamál, að hafa hemil á henni. Á öllum öldum og öllum stöðum hafa henni verið settar nokkrar hömlur með venjum og lögum, sem rækilega hefir verið fylgt eftir. Undantekningarlítið gætir annarrar hvatar, þar sem tímgunarhvöt kem- ur fram, nefnilega verndarhvatar eða foreldrahvatar. Mikil samsvörun er milli þeirra, ef önnur er sterk, er hin það einnig. Þessar hvatir koma að jafnaði fram í svo nánum tengsl- um, að frá félagslegu sjónarmiði skoðað er eðlilegast að athuga þær saman. Verndarhvötin, (þ. e. eðlisbundin umhyggja foreldranna fyrir afkvæm- unum), er frumorsök og megintrygg- ing f jölskyldunnar. Flestir þeir, er af alúð hafa hugleitt þessi mál, eru á einu máii um það, að traustieiki f jöl- skyldunnar sé nauðsynlegt skiiyrði fyrir heilbrigðu félagslífi og traustu þjóðféiagi. Sennilegt er, þó að aðrar skoðanir hafi einnig verið látnar í Ijós, að fjölskyldan sé fyrsta form mannlegs samfélags. Hvergi hafa birzt öruggar heimildir um mannlegt félag, þar sem ekki hefir gætt fjöl- skyldulífs í einni eða annarri mynd. Lægsta stigi fjölskyldulífsins kynn- umst við ef til vill meðal einstakra negra-kynflokka, þar sem fjölskyldu- lífið, þ. e. samstarf móður og föður, endist einungis, unz börnin komast á legg. Trúlegt er, að þessar tvær hvatir, tímgunarhvöt og verndarhvöt, knýi menn til meiri átaka, erfiðleika og fórna en öll önnur tilefnisrök mann- legra athafna samanlagt. Verndarhvötin kemur einkum fram í athöfnum, sem fela í sér sjálfs- fórn og erfiði í þágu afkvæmisins og bælir niður ýmsar hneigðir, er í þrengri merkingu verða að teljast eigingjarnar. Fórnir þessar í þágu afkvæmisins eru skilyrði fyrir velfarnaði og þroska sérhvers mannlegs félags, og þær koma fram meðal allra þjóða pg þjóðflokka. í fullu samræmi við þetta er fjölskyldulífið og umhyggja for- eldranna fyrir afkvæmunum tryggð og virt og vígð með arfhelgum venj- um og almenningsáliti, trúarathöfn- um og lögum. Vernd þessi, er fjöl- skyldan sem stofnun nýtur, er að öll- um jafnaði því meiri, sem andlegt stig þjóðfélagsins er æðra. Því rík- ari þáttur sem ræð skynsemi verður í menningu þjóða, því auðveldara er að beita gagnráðstöfunum gegn afleið- ingum eðlisbundinna athafna. Þannig má gera ráð fyrir , að eigingirni leggi hömlur á verndarhvötina, en hinar félagslegu öryggisráðstafanir koma þá henni til stuðnings. Við getum gert ráð fyrir, að sífellt hafi ræð skynsemi runnið í köpp við öryggisráðstafanir þjóðfélagsins til tryggingar þessum

x

Straumhvörf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Straumhvörf
https://timarit.is/publication/1092

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.