Fréttablaðið - 18.10.2014, Page 102

Fréttablaðið - 18.10.2014, Page 102
18. október 2014 LAUGARDAGUR| SPORT | 70 DOMINOS-DEILD 2014 STAÐAN Tindastóll 2 2 0 195:17 4 Haukar 2 2 0 186:16 4 KR 2 2 0 185:164 4 Snæfell 2 1 1 168:154 2 Grindavík 2 1 1 183:172 2 Njarðvík 2 1 1 188:178 0 Keflavík 1 1 0 70:65 2 Þór Þ. 2 1 1 183:193 2 Stjarnan 1 0 1 80:85 0 ÍR 2 0 2 169:186 0 Skallagrímur 2 0 2 140:176 0 Fjölnir 2 0 2 151:194 0 NÆSTU LEIKIR Mánudagurinn 20. okt: Keflavík - Stjarnan, í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. SPORT HÓPFIMLEIKAR Íris Mist Magnús- dóttir hefur tvisvar orðið Evrópu- meistari með íslenska liðinu en núna fylgist hún bara með stelpun- um úr stúkunni þar sem hún ákvað að hætta á síðasta ári. Íslenska liðið náði öðrum besta árangri í undankeppninni og keppir til úrslita í nýju „Fimleika- höllinni“ í Laugardalnum í dag. Íris er á fullu að vinna í kringum mótið og fylgdist að sjálfsögðu með undanúrslitakvöldinu. „Þær voru rosalega flottar og sannfærandi. Það voru þarna smá hnökrar sem er gott því það er gott að hafa eitthvað sem hægt er að laga fyrir úrslitin. Það heldur líka stressinu frá þegar maður getur verið að hugsa um einhverja lykil- punkta,“ sagði Íris Mist. Hún telur að keppnin um gullið verði á milli Íslands og Svíþjóðar. „Þær voru mjög nálægt Svíun- um þannig að þetta verður svaka- lega spennandi keppni á morgun (í dag). Þetta snýst um hvort liðið tekur réttar ákvarðanir um stökk og hverju þær ætla að tefla fram á mótsdag,“ segir Íris Mist. „Mótið í gær skipti engu máli því þær voru alltaf að fara að komast í úrslit. Þær byrja á núlli á laugardaginn (í dag) og þetta var því góð æfing fyrir þær að vera inni í salnum, að vera með áhorf- endum, prófa stökkin og allt svo- leiðis í þessari adrenalínsupplif- un. Það er ekkert gott við að eiga fullkominn dag í undankeppninni því þá getur fólk kannski orðið of rólegt,“ segir Íris Mist og hún talar þar af reynslu. Íslensku stelpurnar fengu mik- inn stuðning í Höllinni og það má jafnvel búast við enn fleira fólki á úrslitunum í dag. „Við höfum alltaf verið með gott stuðningslið þegar við höfum keppt úti en aldrei svona rosalegt. Þær vissu að það voru allir sem þær þekktu að horfa á þær. Þær eru óvanar því af því að þær eru alltaf að keppa í útlöndum þar sem bara fólk tengt fimleikunum mætir en ekki vinir og vanda- menn. Það er mjög skemmtilegt fyrir þær að fá þá upplifun en þessar stelpur eru bara það flottar að þær eru ekki að láta það trufla sig,“ segir hún. Íris Mist er vön því að keppa með íslenska liðinu en nú er hún í nýju hlutverki uppi á pöllum. „Ég finn ekki fyrir löppunum og held eiginlega bara fyrir and- litið allan tímann,“ segir Íris Mist hlæjandi og bætir svo við: „Það er miklu meira stress sem fylgir því að horfa á í staðinn fyrir að vera inni á gólfinu. Maður er nefnilega svo ósjálfsbjarga að horfa á,“ sagði Íris á lokum. Keppnin hjá íslensku stelpunum hefst klukkan 13.30 í dag. ooj@frettabladid.is Finn ekki fyrir löppunum og held fyrir andlitið „Þetta verður svakalega spennandi keppni,“ segir Íris Mist Magnúsdóttir um einvígið á milli Íslands og Svíþjóðar í kvennafl okki á Evrópumótinu í hópfi mleikum sem fer fram „Fimleikahöllinni“ í Laugardal í dag. TVÖFALDUR MEISTARI Íris Mist Magnúsdóttir kom með gull heim af EM 2010 og 2012. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FLOTTAR Á UNDANÚRSLITAKVÖLDINU Íslenska kvennalandsliðið sést hér í dans- inum á fimmtudagskvöldið. Þær stóðu sig vel á generalprufunni en úrslitin ráðast síðan í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HÓPFIMLEIKAR Íslenska stúlkna- landsliðinu í hópfimleikum tókst ekki að verja Evrópumeistaratitil sinn í flokki unglinga þegar úrslitin fóru fram í gærkvöldi. Okkar stúlkur fengu í heildina 53,050 í einkunn (21,350 fyrir gólf- æfingar, 15,40 fyrir æfingar á dýnu og 16,250 fyrir stökk), og höfnuðu í þriðja sæti. Danir urðu Evrópumeist- arar og Svíar fengu silfrið, en danska liðið vann nokkuð sannfærandi sigur. Á morgun keppir kvennalandsliðið til úrslita. - tom Stúlknalandsliðið vann brons á EM BRONS Stúlkurnar ungu vörðu ekki Evrópumeistaratitilinn sem þær unnu í Árósum fyrir tveimur árum, en þær stóðu sig þrátt fyrir það frábærlega. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FÓTBOLTI Þó það séu komin fjög- ur ár síðan Lars Lagerbäck hætti störfum sem landsliðsþjálfari Svía fylgjast samlandar hans enn grannt með því sem hann gerir, nú sérstaklega þegar íslenska lands- liðið er á toppi A-riðils undan- keppni EM 2016 með fullt hús stiga og markatöluna 8-0. Olof Lundh, íþróttafréttamaður hjá TV4 í Svíþjóð sem hefur fylgt sænska landsliðinu eftir um ára- bil, segir tíma hafa verið kominn á Lars í Svíþjóð. „Þegar hann var með landsliðið hér var hann mjög virtur í lang- an tíma, en undir lokin var fólk orðið þreytt á fótboltanum sem hann spilaði. Því fannst hann ekki nógu sóknarsinnaður. Hann stýrði liðinu náttúrulega í 13 ár og fólk vildi breytingar,“ segir Lund, en nú eru Svíar að uppgötva Lars upp á nýtt, bæði í gegnum starf hans með íslenska landsliðinu og í sjón- varpinu. „Hann nýtur enn meiri virðing- ar núna vegna þess sem hann er að gera með íslenska landsliðið. Hann víkur ekki frá sinni hugmynda- fræði og spilar fótbolta á sinn hátt,“ segir Lund og heldur áfram: „Nú hefur hann einnig verið að starfa sem knattspyrnusér- fræðingur á VIASAT í tengslum við Meistaradeildina. Þótt hann sé svolítið formlegur þar er hann orðinn mjög vinsæll. Sænska þjóð- in er svolítið að kynnast honum aftur. Sumir sakna hans núna, sér- staklega í ljósi þess hvað íslenska liðið er að gera þessa dagana og það sænska komst ekki á HM og byrjar ekki vel núna.“ Lundh viðurkennir að honum hafi fundist kominn tími á að Lars stigi til hliðar, en segir að það megi deila um hvort það hafi verið rétt skref að ráða Eric Hamrén. „Þrettán ár eru langur tími og Svíar þurftu nýjan þjálfara. Kannski þurfti Lars líka nýtt umhverfi því leikmennirnir sem hann var með höfðu heyrt sömu röddina ansi lengi,“ segir hann og hlær við. Samband Lars við sænsku press- una er víðfrægt, en það var ansi stirt á milli hans og sumra blaða- manna. Lundh segir það hafa byrj- að strax eftir fyrsta leik. „Hann og Tommy Söderberg töpuðu fyrsta leik gegn Spáni, 4-0, og fyrirsagnirnar í sumum blöðun- um voru ansi ljótar daginn eftir. Hann var opinn alveg í byrjun, en eftir þetta breyttist hann. Það voru vissir blaðamenn sem hann náði engan veginn saman við og það var oft mikil spenna á milli hans og pressunnar. Báðir aðilar átu sök í máli þarna,“ segir Lund, en hvað finnst honum um byrjun Íslands í undankeppninni? „Ég hefði aldrei trúað að Ísland myndi vinna Holland og hvað þá Tyrkland svona sannfærandi. Þið eruð með Gylfa Þór Sigurðs- son sem er heimsklassa leikmað- ur, en liðið er ekki í heimsklassa. Það er virkilega virðingarvert að sjá hvað Lars hefur gert með þetta lið,“ segir Olof Lundh. - tom Svíar eru að kynnast Lars aft ur Sumir samlandar Lagerbäcks vilja fá hann aft ur í landsliðsþjálfarastarfi ð. VINSÆLL Lars Lagerbäck er einn vinsælasti maðurinn á Íslandi í dag og hann nýtur nú meiri virðingar í Svíþjóð en áður vegna stöðu Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ÚRSLITIN Í GÆR DOMINOS KARLA Í KÖRFU FJÖLNIR-NJARÐVÍK 86-110 (46-49) Fjölnir: Daron Lee Sims 31/8 fráköst, Arnþór Freyr Guðmundsson 22/5 fráköst, Róbert Sigurðsson 12/5 stoðsendingar, Ólafur Torfason 10/7 fráköst, Valur Sigurðsson 4, Hreiðar Bjarki Vilhjálmsson 3, Sindri Már Kárason 2, Davíð Ingi Bustion 2. Njarðvík: Dustin Salisbery 37/8 fráköst, Logi Gunnarsson 20/4 fráköst, Hjörtur Hrafn Einarsson 15, Maciej Stanislav Baginski 12, Ágúst Orrason 7, Mirko Stefán Virijevic 6/4 fráköst, Snorri Hrafnkelsson 5, Ólafur Helgi Jónsson 4, Oddur Birnir Pétursson 2. AUÐVELT Dustin Salisbery fór mikinn fyrir Njarðvík í gær og skorar hér tvö af 37 stigum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FÓTBOLTI Bjarni Guðjónsson lét af störfum sem þjálfari Fram í gær, en hann féll með liðið úr Pepsi-deildinni á sinni fyrstu leik- tíð sem meistaraflokksþjálfari. Úlfur Blandon, aðstoðarmaður Bjarna, er einnig hættur hjá Safamýrarliðinu. „Við fall í 1. deild breyttust fjárhagslegar forsendur samnings knattspyrnudeildar Fram og Bjarna og var það sam- eiginleg ákvörðun beggja aðila að hætta samstarfinu,“ sagði í fréttatilkynningu Framara í gær, en þeir höfðu ekki bolmagn til að greiða Bjarna sömu laun og hann hafði í Pepsi-deildinni. „Stjórn knattspyrnudeildar hefur þegar hafið leit að eftir- manni Bjarna og stefnir að því að ganga frá ráðningu nýs þjálfara hið fyrsta,“ segir enn fremur í tilkynningu Framara. Bjarni er nú sterklega orðaður við þjálfarastarfið hjá KR, að því gefnu að Rúnar Kristinsson fari út í atvinnumennsku eins og líklegt þykir nú þegar þjálfarastarfið hjá Lilleström í Noregi er laust. Bjarni hættur hjá Fram
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.