Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.2001, Page 43

Læknablaðið - 15.02.2001, Page 43
UMRÆÐA & FRÉTTIR / KONUR í LÆKN ASTÉTT Tími til kominn - Félag kvenna í læknastétt FÉLAG KVENNA I' LÆKNASTÉTT VAR STOFNAÐ ÞANN 18. maí 1999. Aðdragandinn var sá að nokkrar konur sem höfðu kynnst ýmiss konar samvinnu kvenna í læknastétt erlendis, hittust snemma á árinu 1999, ásamt konum sem höfðu um áratugi fyrr kannað áhuga á stofnun slíks félags. í apríl hittust þær á nýjan leik og höfðu þá með sér fleiri áhugsamar konur úr stéttinni. Settur var á laggirnar undirbúningshópur og á stofnfundinn í maí komu um 50 konur, sem var langt umfram það sem búist hafði verið við. Ólöf Sigurðardóttir formaður félagsins hafði búist við að sjá 20-30 konur á fundinum en svo fylltist salurinn af konum og stofnfélagar urðu um 70 talsins. „Pað þykir mjög hátt hlutfall kvenna í læknastétt ef miðað er við hliðstæð félög í nágrannalöndunum. Þessi tala var um þriðjungur þeirra kvenna sem lokið höfðu lækna- námi og voru starfandi hér á landi 1999.“ Og stöðugt fjölgar í félaginu. Nú lætur nærri að um 80 konur séu félagar. í nóvember 1999 var haldinn framhalds- stofnfundur og gengið frá seinustu formsatriðunum varðandi félagið. Undirtektimar sýna svo ekki verður um villst að þörfin fyrir félag af þessu tagi var orðin brýn. Víðast hvar í nágrannalöndunum voru félög kvenna í lækna- stétt stofnuðu miklu fyrr, eða um og upp úr aldamótunum 1900. Árið 1919 vora stofnuð alþjóða- samtök kvenna í læknastétt (Medical Women’s International Association, MWIA) og íslenska félagið gerðist aðili að þeim samtökum vorið 2000. Félagið tekur einnig þátt í starfi Norður-Evrópu- deildar samtakanna. „Við höfum fengið gífurlegan stuðning, bæði frá eldri konum í stéttinni og frá alþjóðasamtökunum og Norður-Evrópudeildinni," segir Ólöf Sigurðardóttir formaður Félags kvenna í lœknastétt. Ekki fyrsta tilraunin Haustið 1989 var haldin ráðstefna kvenna í læknastétt í Skíðaskálanum í Hveradölum og í tengslum við það var kannað hvort tímabært væri að stofna félag. Um þessa ráðstefnu er fjallað í Lœknablaðinn/Fréttabréfi lœkna 11/89. Önnur ráðstefna var haldin árið 1991. Ekki varð af því að stofnað yrði félag þá, þrátt fyrir að talsverður hugur hafi verið í þeim konum sem að ráðstefnunum stóðu. Síðan hefur konum fjölgað verulega í læknastétt og þegar aftur var hreyft við málinu tók tiltölulega skamman tíma að koma félaginu á laggirnar. Ólöf Sigurðardóttir, sem kjörin var fyrsti formaður Félags kvenna í læknastétt kynntist fyrst samvinnu vísindakvenna er hún tók þátt í vísindaneti kvenna sem komið var á fót hjá Karólínsku stofnuninni í Stokkhólmi 1993. Verkefnið var á vegum jafnréttisráðs Karolínsku stofnunarinnar og stóð yfir í tvö ár. Netið var ætlað konum í doktorsnámi og starfandi vísindakonum sem voru við nám og störf hjá Karólínsku stofnuninni eða sjúkrastofnunum tengdum henni. Ólöf var þá í doktorsnámi og vann á Karólínska sjúkrahúsinu. Er hún kom heim til Islands nokkrum árum síðar komst hún að raun um að fleiri konur höfðu komist í kynni við hliðstæð net kvenna annars staðar eða þekktu félög kvenna í læknastétt og höfðu sumar verið þátttakendur í þeim í öðrum löndum. Þær konur sem höfðu hugsað sér til hreyfings áratugi fyrr voru ánægðar með að fá liðsstyrk. Fyrr en varði var stofnun félagsins í höfn. Læknablaðið tók nýlega hús á Ólöfu og fékk hana til að segja í nokkrum orðum frá sjálfri sér, félaginu, sem hefur farið hógværlega af stað, og reynslu sinni af starfinu fram til þessa. Grisjótt net þegar ofar dregur Vísindanetið sem þú tókst þátt í við Karólínsku stofnunina virðist hafa verið áhugavert, getur þú sagt aðeins nánarfrá því? „Netið hafði það markmið að styðja við bakið á vísindakonum og efla þær. Netið var hluti af verkefni sem kanna átti hvers vegna konum vegnaði ekki eins vel eftir doktorsnám og hvers vegna svo margar konur hætta í vísindum. Var það forgangsröðun kvenna eða áttu þær erfitt uppdráttar af öðrum ástæðum. Meginniðurstöður þessa verkefni voru þörfin fyrir net kvenna og þörfin fyrir handleiðslu eftir sérnám og/eða doktorsnám. í lokin var 10 konum boðið upp á handleiðslu (mentor) eftir doktorspróf, eins konar framhaldsverkefni sem ég tók ekki þátt í. Kom það verkefni mjög vel út. Voru handleiðaramir bæði konur og karlar. Það hefur komið í ljós að konum gengur yfirleitt mjög vel í námi, bæði sérnámi og doktorsnámi, en svo þegar því er lokið er netið sem konur hafa aðgang að oft æði grisjótt, einkum sá hluti sem liggur upp á við í stjórnunar- og áhrifastöðum. Eitt af því sem mikill akkur var í var að kynnast öðrum konum í hliðstæðri stöðu og að bera saman reynslu okkar, sem var Læknablaðið 2001/87 139

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.