Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.2001, Page 6

Læknablaðið - 15.12.2001, Page 6
Seroxat paroxetin ÞEGAR MEÐHONDLA SKAL ÞUNGLYNDI OG FYLGIFISKA ÞESS VíðáttufælhT Afallastreita , V' Felmtursröskun: ' Áráttu- og þráhyggjuröskurr Féfagsfælni Álmenn i:l kvíðaröskun Hver tafla inniheldur: Paroxetinum INN, klóríð, 22,88 mg, samsvarandi Paroxetinum INN 20 mg. Ábendingar: Þunglyndi. Þráhyggju- og/eða áráttusýki. Felmtursköst. Félagslegur ótti/félagsleg fælni. Almenn kvíðaröskun. Áfallastreituröskun. Frábendingar: Skert nýrna- og lifrarstarfsemi. Varúð: Óstöðug flogaveiki. Lækkaður krampaþröskuldur. Milliverkanir: Forðast skal samtímis notkun MAO-hemjara og skulu líða a.m.k. 14 dagar milli þess sem þessi lyf eru gefin. Aukin blæðingarhætta getur sést samtímis gjöf warfaríns og annarra kúmarínlyfja. Lyfið getur hindrað niðurbrot annarra lyfja svo sem neuroleptica af fentíazínflokki og lyfja við hjartsláttartruflun af flokki IC (flekaíníð) vegna áhrifa á cytochrom P450-kerfið í lifur. Kínidín getur hindrað niðurbrot paroxetíns. Paroxetín hefur áhrif á verkun cimetidíns, fenytóíns, móklóbemíðs, selegilíns auk þríhringlaga geðdeyfðarlyfja. Meðganga og brjóstagjöf: Takmörkuð reynsla af gjöf lyfsins hjá barnshafandi konum. Dýratilraunir hafa sýnt hærri dánartíðni hjá afkvæmum og ber því að forðast gjöf lyfsins á meðgöngutíma. Lyfið útskilst í brjóstamjólk í magni, sem gæti valdið lyfjaáhrifum hjá barninu. Aukaverkanir: Algengar (> 1%): Ógleði með eða án uppkasta (12%) og þreyta eru algengustu aukaverkanirnar. Truflun á sáðláti hefur sést hjá 9% karla. Almennar: Vanlíðan, svitaútsláttur, breytingar á þyngd, yfirlið og svimi. Frá hjarta- og æðakerfi: Hjartsláttur, lækkaður blóðþrýstingur í uppréttri stöðu. Frá miðtaugakerfi: Svefnleysi, æsingur, vöðvatitringur, órói, taugaveiklun. Skortur á einbeitingu og náladofi. Truflun á sáðláti og minnkuð kynhvöt hjá körlum. Frá meltingarvegi: Ógleði, uppköst, niðurgangur, munnþurrkur, lystarleysi og breytingar á bragðskyni. Frá öndunarfærum: Geispar. Þvagfæri: þvaglátatruflanir. Sjaldgæfar (0,1-1%): Almennar: Bjúgur og þorsti. Miðtaugakerfi: Tilfinningalegar truflanir. Mania. Minnkuð kynhvöt hjá konum. Frá meltingarfærum: Kyngingarörðugleikar. Sjúklingar gnísta tönnum, einkum í svefni. Frá húð: Kláði og útbrot. Frá eyrum: Suða fyrir eyrum. Annað: Vöðvaslappleiki. Við félagslegum ótta/félagslegri fælni: Mælt er með 20 mg skammt á dag sem má auka í allt að 50 mg háð svörun sjúklings. Skammtastærðir handa fullorðnum: Við þunglyndi: Mælt er með 20 mg á dag sem upphafsskammti, sem má auka í allt að 50 mg á dag háð svörun sjúklings. Öldruðum skal ekki gefinn hærri skammtur en 40 mg á dag. Við áráttu og þráhyggjusýki: Mælt er með 40 mg skammti á dag, en hefja skal meðferð með 20 mg á dag. Auka má skammt í allt að 60 mg á dag háð svörun sjúklings. Við felmturköstum: Mælt er með 40 mg skammti á dag, en hefja skal meðferð með 10 mg á dag. Auka má skammt í allt að 60 mg á dag háð svörun sjúklings. Við félagslegum ótta/félagslegri fælni: Mælt er með 20 mg skammti á dag, sem má auka í allt að 50 mg á dag háð svörun sjúklings. Skammtur er aukinn um 10 mg hverju sinni eftir þörfum. Almenn kvíðaröskun: Mælt er með 20 mg skammti á dag. Auka má skammtinn um 10 mg hverju sinni, hjá þeim sjúklingum sem svara ekki 20 mg skammti, að hámarki 50 mg/dag háð svörun sjúklings. Áfallastreituröskun: Mælt er með 20 mg skammti á dag. Auka má skammtinn um 10 mg hverju sinni, hjá þeim sjúklingum sem ekki svara 20 mg skammti, að hámarki 50 mg/dag háð svörun sjúklings.Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum Pakkningar og verð 01. 1. júlí 2001 : 20 stk. 3.516,- 60 stk. 9.143,- 100stk. 14.169,-.kr.Afgreiðslutilhögun: R. Greiðslufyrirkomulag: B. 15.10. 2001 ”-W Þ GlaxoSmithKline Þverholti 14 • 105 Reykjavík Sími: 530 3700 • www.gsk.is

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.