Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2004, Blaðsíða 57

Læknablaðið - 15.06.2004, Blaðsíða 57
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BROSHORNIÐ 49 Reykingar og augnskoðun Reykir frúin? Kona með lungnaþembu á háu stigi var lögð inn á spítala vegna andþyngsla. Þegar konunni fór að skána ákvað deildarlæknirinn að spyrja hana um reykingar. „Má ég spyrja, reykir þú sígarettur?“ „Já, en aðeins mér til ánægju." „Hvað reykir þú marga pakka á dag?“ „Ekki marga.“ „Hvað áttu við með því?“ spurði læknirinn. „Er það kannski pakki á dag?“ „Nei, aðeins fáeinar sígarettur,“ sagði konan. „Hálfur pakki á dag?“ „Nei, Guð minn góður,“ sagði konan, „ekki svo mikið. Pakkinn endist mér yfirleitt í tvo daga.“ Tékknesk augnskoðun Tékki sem hafði búið á íslandi í mörg ár fann fyrir því hvað sjónin tók að daprast. Hann ákvað að hitta augnlækni. Læknirinn hóf skoðun sína og sýndi mannin- um sjónprófunarspjald þar sem leturstærðin fór minnkandi eftir því sem neðar dró á spjaldinu: CRKBNWXSKZY... „Getur þú lesið þetta?“ spurði læknirinn. „Lesið þetta?“ spurði Tékkinn. „Veistu að þetta er skírnarnafn móður minnar!“ Af netinu Þær tröllasögur hafa gengið á netinu að Iæknar vari við a.m.k. einni aukaverkun af stinningarlyfinu Viagra. Karlar sem kyngja töflunni ekki nógu fljótt og drekka lítið með henni fá hálsríg. Hugarró unglæknis Einn af sérfræðingunum á kvennadeildinni spurði ungan mann sem var nýbúinn með kandídatsárið hvers vegna hann væri svo áhugasamur um kven- sjúkdóma og fæðingarhjálp. „Á kandídatsárinu var ég sannfærður um að ég væri með sömu einkenni og sjúklingarnir. Þegar ég var á lyflækningadeildinni var ég viss um að ég væri að fá fyrir hjartað, væri kominn með asma og vefjagigt. Á handlækninga- deildinni fannst mér ég vera kominn með kviðslit, botnlangabólgu og trosnuð liðbönd í hné. Á geð- deildinni taldi ég mér trú um að ég væri kominn með geðhvarfasýki. Hér á kvennadeildinni get ég loksins slappað af.“ Heitrof Læknirinn varð alveg æfur þegar unnustan sleit trúlof- un þeirra. „Hann varð svo brjálaður," sagði kærastan fyrrverandi við vinkonu sína, „að hann krafðist þess að ég skilaði hringnum, öllum gjöfunum og að ég greiddi minn hlut í þeim ferðum sem við fórum saman.“ „Hvað segirðu?" sagði vinkonan. „Ekki nóg með það,“ sagði kærastan, „heldur sendi hann mér reikning fyrir að hafa komið í áttatíu og fjórar vitjanir til mín.“ Ófrísk eður ei Móðir fór með gjafvaxta dóttur sína til læknis út af morgunógleði upp á hvern dag. Læknirinn komst að því að dóttirin væri ófrísk. „Útilokað,“ sagði móðirin, „dóttir mín hefur aldr- ei komið nálægt karlmanni. Er það ekki rétt hjá mér, elskan mín?“ spurði móðirin dóttur sína. „Jú, alveg rétt,“ sagði dóttirin. Læknirinn varð hugsi, gekk út að glugganum og horfði til himins. „Er ekki allt í lagi?“ spurði mamman. „Ég veit svei mér ekki hvað skal segja,“ sagði læknirinn. „Það er nú einu sinni svo að síðast þegar eitthvað gerðist f þessa veru birtist skær stjarna á austurhimni. Ég var bara að athuga hvort sagan væri kannski að endurtaka sig.“ Sár á fæti Júlía var mikið náttúrubarn og fór flestra sinna ferða berfætt. Dag nokkurn fór hún út í bílskúr og var svo óheppin að stíga á nagla. Júlía fór til læknis og fékk stífkrampasprautu. Tveimur mánuðum seinna var hún að raka úti í garði þegar hún steig á járnbút og skar sig á fæti. Sýking komst í sárið og hún leitaði aftur til læknisins. Hann bjó um sárið og skrifaði síðan út lyfseðil þar sem hann ávísaði sýklalyfi og síðan stóð skrifað stórum stöfum: VERTU í SKÓM. Bjarni Jónasson bjarn i.jonasson@hg. is Bjarni er heimilislæknir í Garðabæ. Læknablaðið 2004/90 513
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.