Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.07.2006, Qupperneq 44

Læknablaðið - 15.07.2006, Qupperneq 44
UMRÆÐA & FRÉTTIR / VIÐTAL VIÐ ÓLAF ÁRNA SVEINSSON Hugsunin er kóróna sköpunarverksins Hávar Sigurjónsson Heimspekin er gjarnan sögð upphaf allra vísinda, hvort sem er hug- eða raunvísinda. Ekki er víst að allir harðir raunvísindamenn vilji samþykkja þessa fullyrðingu en dagljóst er að í störfum sínum þurfa læknar að fást við siðferðilegar spurningar og kunna við þeim svör, oft án mikils tíma til umhugs- unar og ríður þá á að þekkja hugtökin og kunna að beita þeim. Ólafur Árni Sveinsson lauk kandídatsprófi í læknisfræði fyrir fjórum árum. Hann hefur síðan stundað framhaldsnám í lyf- og taugalækningum hér heima og jafnframt tekið BA-próf í heim- speki við HI og vinnur nú að meistaraprófsverk- efni í heimspeki. Hann hyggur á framhaldsnám erlendis í taugalækningum og starfar á taugadeild Landspítala. Hjálpar heimspeki lœknisfrœðinni? Tengsl heimspeki og læknisfræði eru margvísleg og ég held að það blundi í mörgum læknum að kynna sér heimspeki nánar, þeir átta sig flestir á mikilvægi hennar. Hún er eitthvað sem flestir vilja kynna sér nánar en komast ekki í það. Fyrir mér er hugsunin kóróna sköpunarverksins og heimspekin fjallar um hugsunina. Hún kennir okkur að hugsa og slípar þetta tæki sem hugsunin er, til að mynda getuna til að fylgja röksemdafærslu, greina rökvill- ur, sjá viðfangsefni frá mörgum sjónarhornum svo eitthvað sé nefnt. Það má setja spurningarmerki hvort heimspekin hjálpi læknisfræðinni sérstak- lega, umfram aðrar fræðigreinar, en bersýnilega hjálpar þessi tækni öllum vísindamönnum, sér- staklega ef viðfangsefnið er mjög flókið og taka þarf tillit til margra þátta við úrlausn þeirra. Það má líka spyrja hvort læknisfræðin hjálpi ekki heim- spekinni, sem mér finnst hún gera. Hún hjálpar mér að minnsta kosti að rauntengja heimspekina. Þó heimspekin sé góð er hún engin allsherjarlausn og svarar alls ekki alltaf eigin spurningum, enda erfiðar en tæknin sem menn læra í heimspeki getur nýst mjög vel í öðrum greinum. Með því að greina rökin og varpa ljósi á vandamálið er svarið oftast augljóst. Hvers konar vandamál ertu þá með í huga? Hugsum okkur að læknir standi frammi fyrir því að þurfa að ráðleggja sjúklingi ákveðna með- ferð sem hefur bæði kosti og galla í för með sér. Auðvitað er það klínísk reynsla og þekking sem hjálpar mönnum mest við slíkar aðstæður en heim- spekin skerpir hugsunina og hjálpar mikið við að greina vandann. Hún hjálpar manni að finna út hverjir eru persónur og leikendur vandans ef svo má segja. En eins og ég sagði áðan þá er heim- spekin engin allsherjarlausn. Hún hefur sín hugtök og það getur verið erfitt að komast inn í hugs- unarhátt hennar. Það tekur langan tíma að verða læs á heimspeki og ég veit ekki hvort ég er orðinn það fyllilega ennþá. Hvað með heimspeki á íslandi? Segja má að Islendingar séu almennt lítið læsir á heimspeki miðað við aðrar bókmenntagreinar. Lítil hefð er fyrir heimspekilegri umræðu hér á landi. Víða á meginlandi Evrópu er heimspeki hluti af menningunni en það hefur verið sagt að hér á Islandi hafi þjóðin alist upp við einræður, mónólóg, í formi frásagna og ljóðalesturs en lítið um samræður, díalóg, en þann hæfileika þroskar heimspekin einna mest. En samræðan er að mínu mati lykillinn að því að leysa vandamál. Maðurinn er ekki eyland og þarf aðstoð. En til þess að samræðan beri árangur verður hún að fara rétt fram. Menn verða að hafa samræðuhæfileika og samræðuvilja annars gagnast hún lítið. Hvort sem samræðan á sér stað við aðra lækna eða sjúkling- inn er samræðan leiðin til að nálgast vandann að mínu mati. Góð samræða er þar sem tveir aðilar mætast af heilindum í sjálfu viðfangsefninu með það að markmiði að leysa það. Jafnvel þó annar aðilinn hafi meiri fræðilega þekkingu á efninu eins og læknirinn þá er það engu að síður sjúklingurinn sem upplifir vandamálið og þekkir sinn líkama best. Þarna mætist því tvenns konar þekking, fræðileg þekking læknisins og huglæg þekking sjúklingsins. Það er geysilega gaman og menntandi að nálg- ast manninn frá mismunandi sjónarhornum og beita við það mismunandi aðferðum og hugtökum. Sjálfur lít ég á læknisfræði sem hluta af húmanisma í þeim skilningi að bæði heimspeki og læknisfræði fjalla um manninn frá ólíkum hliðum og með því að tileinka sér sem flest sjónarhorn fær maður fyllri sýn á manneskjuna. Þessi sýn á líka við um hinar mörgu greinar læknisfræðinnar. Þó lækn- isfræðin skiptist oft mjög skýrt í ákveðnar greinar þá eru skilin á milli sjúkdóma ekki alltaf jafn skýr. Skil milli sjúkdóma eru mannanna verk og oft festast læknar á sérsviði sínu og loka á allt annað. Þó maður geti aldrei kunnað allt er nauðsynlegt að nálgast sjúklinginn í víðum skilningi. Ég held að heimspekin hjálpi manni við það. Það sem ég er að reyna að segja er að finna verður ákveðinn milliveg, bræðing úr tveim skólum, læknisfræði og heimspeki. Þar sem fögin hjálpa hvort öðru. Afhverju hefurþú áhuga á heimspeki? Mér finnst í rauninni erfitt að skilja hvernig fólk 552 Læknablaðið 2006/92
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.