Vísbending - 15.03.2010, Blaðsíða 3
V í s b e n d i n g • 1 0 . t b l . 2 0 1 0 3
framhald á bls. 4
Mynd 3: Hagvöxtur í Evrópu árið 2009Mynd 2. Skuldir hins opin-
bera í Evrópuríkjum í árslok
2008
land sem eru grænu svæðin í Evrópu. Eng-
inn hefði getað sagt fyrir um það á þess-
um tíma að þessi lönd ættu eftir að verða
eftirbátar hinna aðeins fimm árum seinna.
Og ekki bara eftirbátar heldur að í þessum
löndum ríkti kreppuástand sem kallaði á
fjölþjóðlegt björgunarlið.
Líklega gerðist það sama í flestum
ríkjanna. Laun hækkuðu meira en inn-
stæða var fyrir. Reynslan bendir til þess að
lífskjör megi bæta um 1,0 til 1,5% á ári í
frjálsum ríkjum. Á Íslandi var kaupmátt-
araukning á milli þrjú og fimm prósent á
ári. Slíkt stenst í skamman tíma sem leið-
rétting, en til lengdar er það ekki raun-
hæft. Svipað gerðist í flestum hinna land-
anna sem hér eru nefnd. Þensla var svo
mikil að hagkerfið brast. Þó er athyglisvert
að í Eystrasaltslöndunum hafa skuldir
hins opinbera ekki verið mjög miklar. Þar
eins og hér á landi var það fyrst og fremst
einkageirinn sem brást.
Grikkir höfðu allan tímann sérstöðu
að því leyti að skuldir ríkisins voru mjög
miklar og ofan á það beittu þeir brellum
eins og rakið var nýlega í Vísbendingu (sjá
6. tbl.). Mynd 2 sýnir að þeir voru í árslok
2008 næstskuldugastir Evrópuþjóða ef litið
var á opinberar skuldir. Ofan á þetta koma
svo skuldir vegna eftirlauna almannatrygg-
inga, en þau eru víðast hvar fjármögnuð af
ríkinu, ólíkt því sem er á Íslandi þar sem
stór hluti lífeyris er greiddur gegnum líf-
eyrissjóði. Ítalir, Belgar og Ungverjar eru
líka vel yfir 60% mörkunum og staða
flestra þjóða hefur versnað mikið á því
rúma ári sem liðið er.
Á mynd 3 er svo sýnt hvernig hagvöxt-
urinn var á nýliðnu ári. Þar er eins og lita-
spjaldinu hafi verið snúið við. Þær þjóðir
sem áður blómstruðu eru nú eftirbátar
hinna, en þess er þó að geta að í öllum
löndum dróst landsfarmleiðslan saman.
Það virðist því enn einu sinni komið á
daginn, að ef eitthvað virðist vera of gott
til þess að vera satt, þá er það líklega svo.
Í flokki með svínunum
Þau lönd á evrusvæðinu sem verst standa
eru talin vera Portúgal, Írland, Ítalía,
Grikkland og Spánn. Einhver sniðugur
hefur sett á þau samheitið PIIGS með við-
eigandi hugsunartengslum við svínaklúbb.
Íslendingar vita að hér á landi hefur verið
mjög erfitt að hafa hemil á launahækk-
unum. Jafnvel þó að allir skilji að landið er
að þrotum komið, krefjast þær stéttir sem
geta nýtt sér stöðu sína þess að fá miklar
launahækkanir. Varnir eru veikar. Hvað
þá þegar allt virðist leika í lyndi? Aðilar
vinnumarkaðarins semja um hækkanir
sem þeir vita að engin innstæða er fyrir
á sama tíma og fyrirtæki verða að segja
upp fólki vegna rekstrarerfiðleika. Einmitt
þetta er það sem gerðist í svínaklúbbnum.
Íslendingar eru ekki sokknir á botninn
þegar þeir fara að hegða sér ábyrgðarlaust
á ný.
Auk þessa er rétt að undirstrika að stór
hluti hagvaxtar á Íslandi undanfarin ár er
vegna þess að hingað til lands hefur flutt
stór hópur útlendinga. Landsframleiðsla
á mann hefur minnkað, en það þýðir að
samkeppnishæfnin hefur orðið minni ár frá
ári. Það liggur minna eftir hvern og einn.
Upptalningin hér að framan sýnir að
það er engan veginn sjálfgefið að Íslend-
ingar hefðu losnað við kreppuna, ef þeir
hefðu verið innan Evrópusambandsins.
Evran sjálf hefði að vísu tryggt að skuldir
einstaklinga og fyrirtækja hefðu ekki tvö-
faldast í einu vetfangi. En þátttaka í slíku
samstarfi krefst aga og það er alls ekki víst
að Íslendingar hefðu beygt sig undir hann
fremur en Írar eða Grikkir. Þegar nú er
talað um afarkosti Evrópusambandsins
gagnvart Grikkjum er einungis átt við að
þeir verði að gæta þess að eyða ekki um-
fram efni. Það sama gildir um „ógnar-
áætlun“ AGS á Íslandi. Auðvitað má laga
áætlunina, en í grunninn er hún eina
skynsamlega tillagan sem komið hefur til
langtímalausnar á vandanum.
Grikkir fá hjálp
Margir andstæðingar Evrópusambandsins
hafa glaðst yfir því að í Grikklandi er nú
barist á götum vegna þess að ríkið ætlar
nú loksins að draga saman seglin. Meðan
Eistland
Lúxemborg
Rúmenía
Búlgaría
Litháen
Lettland
Slóvenía
Slóvakía
Tékkland
Danmörk
Króatía
Finnland
Svíþjóð
Tyrkland
Spánn
Írland
Pólland
Kýpur
Noregur
Bretland
Ísland
Holland
Austurríki
Malta
Þýskaland
Portúgal
Frakkland
Ungverjaland
Belgía
Grikkland
Ítalía
Heimild: Eurostat.com
Álfan skiptir litum. Heimild: Eurostat.com