Þjóðlíf - 01.08.1987, Page 35

Þjóðlíf - 01.08.1987, Page 35
INNLENT SIGRÍÐUR GUNNARSDÓTTIR • Ungur maður lyftir höndum í bæn á samkomu eins nýja íslenska trúarhópsins. Truarvakniiig á Íslandi Kraftaverk, tungutal og götutrúbod oröin vinsæl. Hlutir sem þjódkirkjan sinnir ekki. Æ fleiri leita á náöir safnaöa „meö fjöri“. Nýirsöfnuöir undirbúa sjónvarpsstöö/stöövar. Tengsl viö bandaríska söfnuöi. 1 BANDARÍKJUNUM hefur sjónvarpstrúboð ^-'rið stundaö af miklum móði sl. tuttugu ár. rosir söfnuðir, svo sem babtistar, hvítasunnu- rn°nn og evangelistar sjónvarpa predikunum ^num um þver og endilöng Bandaríkin um ^nhalsjónvarpstöðvar í eigu stórra safhaða. toðvamar eru reknar með áskrift safnaðar- n^ðlima og frjálsum framlögum. Stærsta sjón- ^rpstöðin, PTL (Praise the Lord eða People w Lovej, hefur átt í miklu stappi undanfama ^ anuði og hafa orðið snögg eigendaskipti á a 0 lnr|i. Babtistinn frægi Jerry Falwell, stofn- ^n í Moral Majority (Hinn siðprúði meiri- •), hefur yfirtekið sjónvarpstöðina og söfnuðinn af hinum ómórölsku en evangelisku hjónum Jim og Tammy Bakker. Jim Bakker sem var til skamms tíma einn af vinsælustu sjónvarpspredikumm Bandaríkj- anna hefur verið uppvís að framhjáhaldi, sam- kynhneigð, fjárdrætti, makaskiptum og ýmsu öðru ókristilegu athæfi. Kona hans, sem styður hann í raunurn, segir ásakanimar upplognar (það er ljótt að ljúga), hefur ekki verið uppvís að neinu ókristilegu ef frá er talið óstjómlegt kaupæði og yfirgengileg peningagræðgi. Þau hjón hafa aflað sér mikilla vinsælda og frelsað margan manninn með því að boða að hér á jörð eigum við að njóta lífsins Guði til dýrðar. Það sé engin synd að berast á og sækjast eftir þessa heims gæðum. Frú Bakker uppgötvaði þessi sannindi smátt og smátt á unglingsárunum. T.d. segir hún í sjálfsævi- sögunni, I Gotta Be Me (Ég verð að vera ég sjálf, eða á góðri íslensku, ég um mig frá mér til mín) að “Guð væri miklu frjálslyndari en ég hélt." Þegar hún fór að nota varalit refsaði guð henni ekki, eins og henni hafði verið kennt svo hún komst að rökréttri niðurstöðu. “Maður þarf ekki að vera púkó til þess að vera sann- kristinn," segir frúin og klæðir sig svo hún lítur út eins og sambland af Dolly Parton og Svínku. Jerry Falwell er öllu íhaldsamari og boðar að í himnaríki verði hinir síðustu fyrstir, og því sé hágöfugt að vera fátækur. Hann berst með oddi og egg gegn hvers kyns solli og átti m.a. hlut að máli í því að útsendingar á Löðri, sjón- varpsþættinum vinsæla, vom stöðvaðar. Hann hefur hrifsað til sín sjónvarpstöð kollega síns af mjög svo óeigingjömum hvötum að eigin sögn. í vikutíma gekk á með skítkasti milli þessara heilögu manna í sjónvarpi og var bandarísku þjóðinni farið að blöskra og meðlimir beggja safnaða orðnir tvístígandi í trúnni. Falwell ýmist ásakaði Bakker um syndsamlegt lífemi eða fyrirgaf honum. Bakker aftur á móti sakaði Falwell um að hafa út úr sér söfnuð og sjónvarpstöð með klækjum. 35

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.