Þjóðlíf - 01.11.1987, Blaðsíða 21

Þjóðlíf - 01.11.1987, Blaðsíða 21
INNLENT Pétur er nú forstöðumaður Hrafnistu í Hainarfirði og hefur reyndar gegnt því starfi siðastliðin tíu ár. „Ég er formaður Sjó- mannadagsráðs sem hefur m.a. með Hrafn- tstuheimilin að gera, orlofshús og félagsheimili samtakanna í Grímsnesi. Svo gegni ég enn ýmsum trúnaðarstörfum sem ég yar kosinn í af Alþingi; ég er formaður í stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs og er formaður í bankaráði Landsbankans, enn- fremur á ég sæti í stjórn Fiskimálasjóðs," segir Pétur og getur raunar bætt við þessa upptalningu svo sem því að nú er hann að Uúka 25. árinu sem ritari Sjómannafélags Éeykjavíkur og er í stjórn Happdrættis DAS. Ekki kveðst Pétur sakna þingmennsk- unnar en segir að frekar sakni hans þess að geta ekki komið fram ýmsum ntálum í gegn- unt þingið. „Ég var t.d. flutningsmaður bjór- frumvarps og tel að hér eigi að fást bjór rétt eins og annað áfengi með sömu fyrirvörum °g settir eru fram í því bjórfrumvarpi sem lagt var fram á þinginu um daginn. Önnur og stærri mál, atvinnu- og byggðamál af ýmsu •agi, hef ég reyndar áhrif á enn í dag í gegn- Um setu mína í bankaráði Landsbankans." Ekki vill Pétur segja af eða á um það hvort hann sé hættur í pólitík. „Ég gef engar yfir- lýsingar um það. Það getur þess vegna vel verið að ég verði kominn í stjórnmálabarátt- una á morgun," bætir hann brosandi við. Pétur tilkynnti með talsverðum fyrirvara áður en síðasta þingi lauk, að hann ætlaði ekki að gefa kost á sér, að sinni, í framboð til Alþingiskosninga. Talið var að miklu hefði ráðið hve kostnaðarsöm og umfangsmikil prófkjörsbarátta átti sér stað meðal sjálf- stæðismanna í Reykjavík. Sjálfur segir Pétur: „Okkur, þessum „vesalingum" úr verkalýðshreyfingunni hefur vegnað frekar illa í prófkjöri innan Sjálfstæðisflokksins. Kostnaðurinn hefur mikið að segja því að félagar verkalýðshreyfingarinnar hafa ekki ráð á þessu. Þeir hafa enga sjóði að ganga í til að reka kostnaðarsama prófkjörsbaráttu. Hins vegar hafa ýmis fyrirtæki sem standa straum af kostnaði annarra frambjóðenda miklu betri tækifæri til þess," segir Pétur Sigurðsson en þess má geta að hann var al- þingismaður Reykvíkinga áratugum saman; frá 1959 til 1978 og aftur frá 1979 fram á vorið 1987. INGVAR GÍSLASON: „Ég var ekki í neinum vandræðum með að finna mér starf þegar ég ákvað að gefa ekki aftur kost á mér til þingsetu," segir Ingvar Gíslason ritstjóri Tímans. „Ég taldi mig alltaf eiga góða möguleika á að finna mér vinnu, Ég er á góðum starfsaldri, er lögfræðingur að mennt og hafði allskonar möguleika og niðurstaðan varð sú að ég tók við ritstjóra- starfi á Tímanum hérumbil strax og þinginu lauk í mars. Þá hafði égsetið á Alþingi í 26 ár og fannst vera kominn tími til að skipta um starf," segir hann. Ingvar segir að það fylgi öllum sem menn hafa sinnt lengi að upp komi ákveðin vanda- mál þegar þeir hætta og ekki sé ástæða til að gera meira úr því hvað þingmenn varðar um- fram aðra. Ingvar var þingmaður Framsóknarflokks- ins í ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen 1980 - 1983. Hann hefur hreint ekki sagt skilið við pólitíkina; „nei, ég er daglega í pólitík," segir hann. „Ég skrifa leiðara Tímans að verulegu leyti og sit oftast þingflokksfundi fram- sóknarmanna og fylgist náið með framvindu stjórnmálanna." Hann telur að nú sé sennilega að verða örari endurnýjun þingmanna í kosningum en áður fyrr. „Það er ekkert óeðlilegt, tímarnir eru breyttir og ég lield að almenningi finnist að það megi skipta oftar um menn í efstu sætum framboðslistanna. Ég kveið því aldrei að hætta á Alþingi og var búinn að taka um það ákvörðun með löngum fyrirvara." Óskar Kristjánsson trúir því aö Prealandin hjálpi sér aö lifa eölilegu lííi * Óskar Kristjánsson fékk liöaglgt þegar hann var 12 ára gamall. Sjúkdómurinn lagöist þungt á hann. Þjáðist Óskar af stanslausum sviða og bólgum f liöamótum. * Þessi einkenni hurfu um nokkurra ára skeiö en þegar Óskar var tœplega þritugur blossaði liða- gigtin upp aftur. Lœknar sögöust lítið geta hjálpað honum. Þeir kunna aðeins eitt ráð: Að taka Aspirin í ómœldu magni! * „Þetta var auðvitaö algjör vitleysa. Aspirin er að- eins kvalastillandl Það lœknar ekki sjúkdóm- inn," segir Óskar. Fyrir 8 árum rakst hann svo á grein um Preglandin í dönsku blaði. „Ég ákvað að prófa og lét kaupa fyrir mig nokkur glös í út- löndum." * Óskar byrjaði að taka töflurnar og íljótlega fóru áhrlíin að koma í ljós. Bólgurnar hjöönuðu. Sviöi og óþœgindi hurfu skjótt. Brátt minnkaði hann skammtinn úr 6 töflum á dag 13. Liðagigtin orsakaði engar þjáningar lengur. * Preglandin inniheldur gammalynolensýru sem er byggingarefni prostaglandin. Rannsóknir á fólki með liðagigt benda til aö ein af orsökum hennar sé skortur á þessum mikilvœgu eínum. Bati Óskars Kristjánssonar er ekkert einsdœmi. Viö i Heilsuhúsinu þekkjum mörg dœmi þess að Preglandin hjálpi fólki með alvarlega sjúkdóma. ■Áhiíí Preglandin eru einstaldingsbundln Olangreínd frásðgn er byggð á reynslu eins aí þelm fjölmörgu, sem hala notiö göös af Preglandin. Fœst I verslunum með heilsuvörur og apótekum. Éh eilsuhúsið Skólavoröustig 1 Sími: 22966 101 Reykjavik 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.