Þjóðlíf - 01.11.1988, Síða 54

Þjóðlíf - 01.11.1988, Síða 54
ERLENT Mafíustarfsemi á frjálsum markaði Veitingastaður í einkaeign í Sovétríkjunum. Svo virðist vera sem frjálslynd- is- og umbótastefna Mikhails Gorbachevs, leiðtoga Sovétríkj- anna, hafi leyst áður óþekkt öfl úr læðingi og sett stjórnvöld í vanda. Skipulögð glæpasamtök í líkingu við Mafíuna eru í síaukn- um mæli að hasla sér völl samfara því að einkarekstur fyrirtækja hefur verið leyfður að hluta. Á skömmum tíma hafa hundruð smáfyrirtækja verið stofnsett víðsvegar í Sovét sem telja sig geta boðið uppá betri þjónustu og vörur heldur en stjórnvöld. Stjórnvöld hafa leyft rekstur þessara þjónustufyrirtækja, en hins vegar hafa engin lög verið sett til að vernda starfsemi þeirra, hvorki gagnvart glæpsam- legum viðskiptaháttum né öðru, sem þeim kann að stafa hætta af. Umbótastefnan hefur nefnilega falist í því að afnema hömlur en ekki að setja nýjar t.d. með laga- setningu. Margir hafa orðið til að gagn- rýna „perestroiku" Gorbachevs á grundvelli þessa. Gagnrýniradd- irnar benda á að aukið frjálsræði í viðskiptalífinu auki hættuna á óheiðarlegum viðskiptaháttum og slíkt geti jafnvel leitt til þess að skipuiögð glæpasamtök nái yfir- höndinni. Því þurfi að setja skýr- ari lög um þennan rekstur og tak- marka frelsið. Stuðningsmenn „perestroikunnar" hafna þessari gagnrýni hinsvegar alfarið og segja sem svo að glæpasamtökin þrífist eingöngu vegna andstöðu íhaldssamra skrifræðisseggja í stjórnkerfinu gegn umbótastefn- unni. Mikið hefur verið skrifað um þessi mál í sovéskum blöðum og sýnist sitt hverjum. I nýlegu blaðaviðtali við við Alexander Gurov, sovéskan lögreglufor- ingja, sem rannsakað hefur þessi mál, er haft eftir honum að í So- vétríkjunum séu starfandi yfir 200 skipulögð glæpasamtök sem séu að mörgu leyti sambærileg þeim amerísku. í Sovét eru guðfeður í ætt við A1 Capone með það mikl- ar tekjur að þeir geta eytt meir en milljón dollara í það eitt að múta embættismönnum. Og að sögn Gurovs á starfsemi þessara sam- taka eftir að aukast til muna ef ekki verður nú þegar gripið í taumana. Þessa dagana deila sovéskir stjórnmálamenn hart um þessa hluti, en á meðan blómstra glæpasamtökin og festa enn bet- ur rætur. Sum þessara samtaka leggja höfuðáherslu á að skapa sér hagnað með því að „bjóða" fyrirtækjum upp á „vernd" gagn- vart þeirri skemmdarverkastarf- semi, sem þeir hafa sjálfir uppá að bjóða. Önnur stunda fjárfest- ingar íþessum fyrirtækjum, til að fela illa fenginn gróða, s.s. af eit- urlyfjasölu og vændi. Enn er óljóst hvernig sovésk stjórnvöld hyggjast bregðast við þessum vanda. Þó er ljóst að menn hafa tröllatrú á „glasnost-stefnu" Gorbachevs í þessum efnum, þ.e.a.s. að opin og gagnrýnin umræða meðal almennings leiði til þess að dragi úr glæpum. (Byggt á Newsweek/KAA) ön gö|t" ð J !'-«&'" Múlalundur Hátúm ioc, símar: 38450, 38401, 38405

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.