Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2012, Síða 76

Frjáls verslun - 01.01.2012, Síða 76
76 FRJÁLS VERSLUN 1. TBL. 2012 Janne Sigurðsson segir að sér finnist gaman í vinnunni. Þeir sem vinna með henni segjast helst halda að henni finnist gaman í vinnunni. Nýr forstjóri Fjarðaáls á Reyðarfirði er danska húsmóðirin og tölvuverkfræð ­ ing urinn sem bauð fram krafta sína í álverinu og reynist svo kröftug í vinnunni að hún tók þar öll völd. Ég var oF Mjúk áður TExTi: Gísli KrisTjánsson / mynd: GEir Ólafsson janne sigurðssOn, FOrstjóri alcOa FjarðaÁls Á reyðarFirði Janne Sigurðsson var ekki þekkt nafn í íslensku atvinnulífi þegar hún tók við stjórn inni í álveri Alcoa á Reyðarfirði. Þar heima í héraði þekktu allir orðið þessa skeleggu dönsku konu en öðrum kom nafnið á óvart þegar hún var kynnt sem arftaki Tómasar Más Sigurðs­ sonar. Eitthvað hlýtur hún að hafa til brunns að bera. Hún kom fyrst í álver árið 2006. Þegar rætt er við fólk um Janne er bent á vinnu semi, opinskáa framkomu, stjórnunarhæfileika og stjórnun­ ar stíl sem kosti hennar – og stundum galla. Afslöppun að vera í vinnunni Við biðjum Janne sjálfa að út ­ skýra þennan áhuga á vinnunni. „Það er afslöppun og skemmti ­ legt að vera þar sem verk eru unnin; þar sem eitthvað er að gerast,“ segir Janne. Og hún seg ir að sem stjórnandi kunni hún best við sig „á gólfinu“ innan um þá sem vinna hina raun verulegu vinnu. Hún vill ekki sitja inni á skrif ­ stofu í fínum fötum og skipa fyrir. Hún vill vera „á gólfinu“ í vinnu galla með hjálm á höfði að ræða málin „Ég tala við fólkið og hlusta eftir hvaða vandamál steðja að. En það er starfsfólkið sem er sérfræðingarnir, ekki ég,“ segir Janne. „Mér finnst gaman að vinna í hópi,“ segir hún ennfremur og segist finna fyrir stressi ef það líða dagar án þess að hún kom ­ ist út í verksmiðjuna. Þeir sem vinna með henni taka undir þetta. Smári Kristinsson er framkvæmdastjóri steypuskála í álverinu. Hann hefur haft Janne sem næsta yfirmann í fjögur ár. „Hún hefur fólk með sér í ráð um og hlustar á aðra,“ segir Smári. „En hún er líka mjög ákveð in og fylgir ákvörðunum eftir.“ Þessi eftirfylgni þýðir að eng ­ um í vinnu hjá Janne líðst að humma verkin fram af sér. Reyndur stjórnandi Janne hefur þannig getið sér orð sem stjórnandi. Hún kann stjórn un og nýtur virðingar fyrir stjórnunarstílinn.Þetta er ekki sjálfl ært hjá henni núna eftir að hún kom í álverið. Þegar hún kom þangað til vinnu bjó hún þegar að langri reynslu sem stjórn andi í Danmörku. Hún er tölvu verkfræðingur og var síðast yfir farsímadeild Siemens í Dan­ mörku en sagði upp til að fara til draumalandsins, Íslands. Það ganga sögur um komu Janne í álverið á Reyðarfirði fyrir sex árum. Það var í þann mund sem verið var að ræsa álverið. Það vantaði tölvulært fólk sem gæti komið skipulagi á upplý singaferla innan fyrirtækis. Enginn var á lausu. Þetta var fyrir hrun bankanna og allir sem eitthvað smávegis kunnu á tölvu voru í vinnu við að telja verðlausa peninga fyrir sunnanÁtti að reyna að næla í ungstúdenta glóðvolga frá próf ­ borðinu? Eða hvað? Skjótur frami Spurningunni var aldrei svarað því í þessum vandræðum miðj ­ um kom húsmóðir frá Eskifiði og bauð fram krafta sína. Kona Magn úsar múrara Sigurðar­ sonar á Eskifirði og starfandi í verk taka fyrirtækihans bauð sig fram í starfið. Þau voru tiltölulega ný komin til landsins frá Dan­ mörku en hún gat þrátt fyrir það bjarg að sér á íslensku. Og hún fékk vinnuna og innan sex ára var hún orðin forstjóri í Fjarðaáli. Sagt er að hún hafi birst þarna eins og valkyrja í Wagneróperu og síðan unnið sig upp úr einu stjórnunarstarfinu í annað. Smári segir að það hafi strax komið í ljós að Janne hafði mikið til brunns að bera. Hún kunni til verka þótt hún væri ekki sérfræð ingur í málmvinnslu. „Hún bjó að mikilli reynslu í stjórnun í fyrirtæki og það kom sér vel við uppbygg inguna á Reyðarfirði,“ segir Smári. Barði ekki í borðið áður En hefur Janne breytt stjórnunar­ stíl sínum frá því hún var í far símunum í Danmörku. Hún segir að svo sé: „Ég var oft of mjúk áður; ekki nógu ákveðin og reyndi að forðast átök,“ segir Janne. „Það á ekki að pakka öllu inn í fínar umbúðir. Menn verða að geta barið í borðið en ég gerði það ekki fyrst þegar ég byrjaði sem deildarstjóri í fyrirtæki í Danmörku. En ég var búin að læra að berja í borðið þegar ég fór frá Siemens!“ Hún segist samt aldrei hella sér yfir fólk en eiga það til að tuða. „Ég æsi mig ekki við fólk en það hendir samt að ég fer yfir strikið og þá vil ég sættast á eftir og viðurkennna mistök mín. Ég spyr því: Fór ég þarna yfir strikið og þá biðst ég afsökunar og svo getum við haldið áfram,“ segir Janne. Stjórnun er alltaf stjórnun Janne þekkir marga framleiðslu­ ferla í álverinuHún segist skipta um skaut ef á þarf að halda. Það er mikilvægt að hennar mati að vita hvernig framleiðslan fer fram og kunna skil á ferlunum, sérstaklega ef vandamál koma upp. En Janne segir að það séu bara einföldustu störfin sem hún kunni – erfiðustu störfin sé best að láta sérfræðingunum – fram­ leiðslustarfsmönnunum – eftir að vinna. En þekking á framleiðslunni er ekki allt: „Stjórnun er alltaf stjórn­ un, sama hverju stjórnað er,“ segir Janne. Hún segir líka að verksmiðju­ stjóri með mikla þekkingu á framleiðslunni verði að gæta sín þegar kemur að ákvörðunum. „Það getur komið fyrir að stjórn andinn treysti að lokum bara á eigin kunnáttu og víki ráðum annarra til hliðar og svo kemur í ljós að aðrir vissu betur. Of ítarleg þekking getur „Tómas Már Sigurðs- son, forstjóri Alcoa í Evrópu: „Hún drífur fólk áfram og er mjög kerfisbundin, sérstak- lega undir álagi.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.