Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Side 6
föstudagur 13. júní 20086 Fréttir DV Sandkorn n Stórvinirnir Auðunn Blöndal og Eiður Smári Guðjohnsen njóta lífsins þessa dagana. Í gær gerðu þeir sér glaðan dag og skelltu sér í skvass í Sporthúsinu. Vel fór á með þeim félög- um en Eiður Smári er í mánaðarfríi frá æfingum hjá Barcelona. Daglega ber- ast nú fréttir og „ekkifrétt- ir“ þess efnis að Eiður Smári sé á leið frá félag- inu. Hann hefur verið orðaður við hin ýmsu lið, nú síðast West Ham og Newcastle. n Ísbjarnarveiðar í Skagafirði hafa vakið misjafna hrifningu fólks, jafvel þótt helstu spekingar séu nú komnir á þá skoðun að nán- ast hefði verið ógjörlegt að svæfa bjössa og dúllast með hann á milli landa eða leggja út í aðrar flóknar björgunarað- gerðir. Skot- veiðimenn hafa sjálfir tekið nokkr- ar rimmur um réttmæti bjarnar- drápsins á spjallþráðum á internetinu. Einn þeirra fullyrðir að þegar sé búið að samþykkja nýtt nafn á sýslur í Húnaþingi, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd sem dreift var á umræddum spjallþráð- um. n Hinum frjálslynda Sigurjóni Þórðarsyni þykir lítið koma til við- bragða ríkisstjórnarinnar við áliti Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Á vefsíðu sinni hneyksl- ast hann mjög á þeirri röksemda- færslu Helga Hjörvar, þingmanns Samfylkingar- innar, að það væri of dýrt að bæta öllum sjómönnum skaðann sem þeir hafi orðið fyrir vegna kvótakerfisins þar sem þeir séu svo margir. Eins og flestum er kunnugt um er Helgi haldinn alvarlegum augnsjúkdómi og því hefur Sigurjón talið sig hafa fundið leið til að ná til hans þegar hann klykkir út með: „Hvernig ætli Helga Hjörvar litist á að hætta að greiða blindum bætur á þeim forsendum að þeir væru allt of margir?“ n Grímuverðlaunin verða veitt við hátíðlega athöfn í Þjóðleikhúsinu föstudagskvöldið 13. júní. Spenn- andi verður að sjá hvort sýning- ar Landnámsseturs Íslands sópi að sér jafnmörgum verðlaunum og í fyrra en þá hlaut Benedikt Erlingsson þrenn Grímuverðlaun fyrir einleik sinn Mr. Skallagríms- son og stóð uppi sem sigurvegari kvöldsins. Nú er spurn- ing hvort Brynhildur Guðjóns- dóttir verði jafnhlutskörp fyrir sýningu sína um Brák, fóstru Egils Skallagrímssonar, en hún er tilnefnd til fernra verðlauna. Hrói Höttur fékk þrjú ár „Það verður gott að fá niðurstöðu í málinu,“ sagði Rannveig Rafns- dóttir í viðtali við DV í mars síðast- liðinn en í gær fékkst niðurstaða í fjársvikamáli sem hún var ákærð fyrir. Hún fékk þriggja ára fangelsi fyrrir að hafa svikið út 75 milljón- ir króna hjá Tryggingastofnun yfir fjögurra ára tímabil. Ásamt Rannveigu voru 13 af 15 sakborningum sakfelldir fyrir að- ild sína að málinu, refsing var þó í mörgum tilvikum skilorðsbund- in. Samverkamenn hennar höfðu fengið peningana inn á reikning- inn sinn og vissu að um illla feng- ið fé væri að ræða. Aðeins einn sakborningur var staddur í héraðs- dómi í gær þegar dómari las upp niðurstöðuna. Hún brast í grát þeg- ar hann sagði henni að hún þyrfti að afplána þrjá mánuði af níu mán- aða fangelsi sem hún fékk. Gríðarleg umsvif Það var ekki fyrr en í júní 2006 sem upp komst um umfangsmikil fjársvik Rannveigar. Þá kom í ljós að hún hafði gefið út nærri átta hundruð tilhæfulausa reikninga til þess að svíkja út fé. Peningana lagði hún inn á ýmsa reikninga en sjálf hagnaðist hún um þrjátíu milljónir á svikunum. Alls sveik hún tæpar 76 milljónir út úr Tryggingastofn- un á fjórum árum. Sjálf hafði hún starfað hjá Tryggingastofnun í tutt- ugu ár. „Ég játaði brotin,“ sagði Rann- veig en henni var það talið til tekna í héraðsdómi að hún var sam- vinnufús hjá lögreglunni og veitti mikilvæga aðstoð við að upplýsa alla þræði fjársvikanna sem voru gríðarlega umfangsmikil. Fékk þrjátíu milljónir „Þetta var bara svona Robin hood-dæmi,“ sagði Rannveig um fjársvikin og skírskotaði til sögu- hetjunnar Hróa hattar sem stal frá þeim ríku og gaf þeim fátæku. Hún sagði fleiri hafa fengið peningana, eða eins og hún orðar það í mars: „Þetta fór ekki allt til mín.“ Rannveig sagðist sjálf bera höf- uðábyrgðina í málinu. Hún lenti í óreglu og eitt leiddi af öðru. „Þetta fór bara úr böndunum,“ sagði Rannveig sem aldrei dró úr eigin ábyrgð. Þarf að endurgreiða allt Þegar Rannveig var spurð í hvað peningarnir fóru sagðist hún enga hugmynd hafa um það. Hún hafi átt við áfengis- og fíkniefnavanda að stríða og því hafi meginþorr- inn staðið straum af þeirri neyslu. Hún sagði í mars að hún væri hætt í óreglu og væri að vinna við að koma sér aftur á beinu brautina. Meðal annars hefði hún sótt nokk- ur námskeið hjá námsflokkunum. Þar á meðal tölvunámskeið. Hún hafði ekki unnið í rúmt ár þegar rætt var við hana síðast enda óþægilegt að hafa dómsmálið hang- andi yfir sér. Núna er því lokið. Brast í grát „Auðvitað liggur þetta þungt á manni,“ sagði Rannveig um mál- ið og svaraði því aðspurð að henni þætti leitt að svo margir hafi verið ákærðir í þessu máli. Auk henn- ar var sonur hennar dæmdur en héraðsdómur leit svo á að hann og Rannveig hefðu verið höfuðpaurar málsins. Aftur á móti mætti enginn nema einn sakborningur í dómsupp- kvaðningu í gær. Það var stúlka á þrítugsaldri. Dómarinn útskýrði sérstaklega fyrir henni að hún hefði hlotið níu mánaða dóm. Þar af voru sex mánuðir skilorðsbundnir. Hún var kærasta sonar Rannveigar og því hafi peningarnir verið lagð- ir inn á reikninginn hennar. Þegar dómari sagði henni að hún yrði að afplána þriggja mánaða fangelsis- vist brast hún í grát. Og gekk með tárin í augunum út úr salnum. „Auðvitað liggur þetta þungt á manni.“ valur Grettisson blaðamaður skrifar: valur@dv.is Fjársvikakonan rannveig rafnsdóttir var dæmd í þriggja ára fangelsi í gær fyrir að svíkja út 75 milljónir króna á fjögurra ára tímabili. Einn sakborningur mætti í dóms- uppkvaðningu í gær en hún brast í grát þegar dómarinn tilkynnti henni að hún yrði að afplána þrjá mánuði af níu mánaða fangelsisvist. Alls voru 13 manns dæmdir. Í uppnámi stúlkan sem mætti í dómsuppkvaðningu grét eftir að dómari kunngerði niðurstöðuna. Hún þarf að dúsa í fangelsi i þrjá mánuði vegna fjársvika rannveigar rafnsdóttur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.