Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Síða 7
Sólstöðuhátíð víkinga við Fjörukrána 12. til 17. júní 2008 Víkingahátíðin í Hafnarfirði er elsta, stærsta og mikilvægasta hátíð sinnar tegundar sem haldin er á Íslandi. Síðan 1995 hefur Hafnarfjörður verið leikvöllur víkinga sem hafa í gegnum tíðina sýnt flesta þætti menningar víkingaaldar, siglingar, handverk, matargerð, leiki, sagnalist, bogfimi, bardaga og tónlist. Hingað hafa komið og tekið þátt í því að heiðra minningu forfeðra okkar fjöldi listamanna hvaðanæva að úr Evrópu og Ameríku. Stundum hefur verið tilefni til að koma með óvænt innskot, stílbrot til að undirstrika enn frekar hvernig nútíminn og víkingar fortíðar geta verið saman í sátt og samlyndi og myndað sterka heild. Allt frá upphafi hefur verið lögð áhersla á að allt sé sem upprunalegast, að hátíðargestum finnist sem þeir hafi verið færðir þúsund ár aftur í tímann og þeir eins og fyrir einhvers konar kraftaverk séu staddir á sumarkaupstefnu. Skip frá útlöndum hefur komið til hafnar og verið tekið í naust, vörur bornar á land og kaupmenn hafa tekið upp varning sinn og stunda kaupskap. Það er mikið um dýrðir, tónlist, trúðleikar og dansmeyjar, mungát góð eins og segir í fornum bókum og borð svigna undan kræsingum. Síðan þegar allt virðist leika í lyndi kastast í kekki, menn berast á banaspjót og í góðsemi vega menn hver annan. Á Víkingahátíðinni 2008 verður enn reynt að kynna til sögunnar nýja og ferska strauma, nýjar hetjur verða kallaðar til og reyndar ásamt gömlum kempum sem tryggir gestir hátíðarinnar þekkja. Alls má gera ráð fyrir að nú verði víkingar hátt á annað hundraðið íslenskir sem erlendir. Sólstöðuhátíð víkinga í Hafnarfirði 12.- 17. júní 2008 Víkingamarkaður - Leikhópur - Bardagavíkingar - Erlendir víkingar Víkingaveitingastaðir í tjöldum Kraftajötnar - Handverksvíkingar - Dansleikir Víkingasveitin - Glímumenn -Eldsteikt lamb Víkingaveislur öll kvöld, o.fl.o.fl. Fjölskylduhátíð Fimmtudagur 12. júní 17.00 Hátíðin hefst og víkingamarkaður opnaður, sýnishorn af því sem verður á dagskrá næstu daga. Bardagasýningar, sögumaður, fornir leikir, bogfimi, tónlist, magadans, trúðleikar, Fjallabræður og Seiðlæti syngja og fleira skemmtilegt. 18.00 Leikir 18.30 Víkingaskemmtun (matur og drykkur) í Freyjuhofi, 1 klukkutími, verð 3600 krónur 19.00 Bardagasýning 20.00 Víkingaveisla í Fjörukránni. 21.00 Víkingamarkaði lokað 23.00 Dansleikur 04.00 Lokun Föstudagur 13. júní 13.00 Víkingamarkaður opnaður 14.00 Leikir 14.30 Víkingaskóli barnanna 15.00 Bardagasýning. 16.30 Bogfimikeppni víkinga 17.00 Bardagasýning 18.00 Leikir 18.30 Bardagasýning 18.30 Víkingaskemmtun (matur og drykkur) í Freyjuhofi, 1 klukkutími verð 3600 krónur 19.00 Víkingabrúðkaup 20.00 Víkingaveisla í Fjörukránni 20.00 Víkingamarkaði lokað 23.00 Dansleikur 02.00 Lokun Laugardagur 14. júní 13.00 Víkingamarkaður opnaður 14.00 Leikir 14.30 Víkingaskóli barnanna 15.00 Bardagasýning 16.30 Bogfimikeppni víkinga 17.00 Bardagasýning 18.00 Leiki 18.30 Víkingaskemmtun (matur og drykkur) í Freyjuhofi, 1 klukkutími verð 3600 krónur 19.00 Bardagasýning 19.00 Víkingaveisla í Fjörukránni 20.00 Víkingamarkaði lokað 23.00 Dansleikur 04.00 Lokun Sunnudagur 15. júní 13.00 Víkingamarkaður opnaður 14.00 Leikir 14.30 Víkingaskóli barnanna 15.00 Bardagasýning 15.30 Bogfimikeppni víkinga 17.00 Bardagasýning 18.00 Leikir 18.30 Víkingaskemmtun (matur og drykkur) í Freyjuhofi, 1 klukkutími verð 3600 krónur 19.00 Bardagasýning 20.00 Víkingaveisla í Fjörukránni 20.00 Víkingamarkaði lokað 23.00 Dansleikur 02.00 Lokun Mánudagur 16. júní 12.00 Veitingastaður opnaður 13.00 Víkingaskóli barnanna 18.30 Víkingaskemmtun (matur og drykkur) í Freyjuhofi, 1 klukkutími verð 3600 krónur 20.00 Víkingaveisla í Fjörukránni 23.00 Dansleikur 04.00 Lokun Þriðjudagur 17. júní 13.00 Víkingamarkaður opnaður 14.00 Leikir 15.00 Bardagasýning 15.30 Bogfimikeppni víkinga 17.00 Bardagasýning 18.00 Leikir 18.30 Víkinga skemmtun (matur og drykkur) í Freyjuhofi, 1 klukkutími verð 3600 krónur 19.00 Bardagasýning 19.00 Víkingaveisla í Fjörukránni 20.00 Víkingamarkaði lokað 23.00 Dansleikur 02.00 Lokun Dagskrá sólstöðuhátíðar 2008 Ferðamálastofa Icelandic Tourist Board
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.