Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Blaðsíða 22
föstudagur 13. júní 200822 Helgarblað DV
lilja guðmundsdóttir
blaðamaður skrifar lilja@dv.is
„Fyrst fór að bera á geitungi á Ísa-
firði í fyrra, en nú hefur þessi land-
nemi tryggt stöðu sína fyrir vestan
og hefur valdið miklum usla þar í
vor,“ segir Guðmundur Óli Scheving,
formaður Meindýraeyðingafélags
Íslands.
Það sem af er sumri hefur lítið
borið á geitungum sunnan heiða,
en um leið og sólin sýnir sig má
búast við mikilli aukningu tilkynn-
inga. Meindýraeyðar segja að eng-
in ástæða sé til að halda að minna
verði af þeim en áður.
Enginn dáið hér á landi
Fyrsta tilkynning um bú barst til
Smára Sveinssonar, meindýraeyðis í
Reykjavík, 25. maí sem er nákvæm-
lega sama dag og í fyrra. „Þótt þeir
fari hægt af stað á Suðurlandi hafa
þeir þegar valdið töluverðum usla á
Ísafirði og Snæfellsnesi, enda hefur
veðurfar þar verið betra en annars
staðar það sem af er vori,“ segir hann
og ber því saman við Guðmund.
Meindýraeyðar beina því til fólks að
vara börn sín við því að atast í geit-
ungabúum.
Venjulega stinga geitungar ekki
nema þeir verði fyrir áreiti eða séu
truflaðir á leið sinni að búinu. Geit-
ungastungur geta hins vegar verið
hættulegar ef þeir stinga í háls eða
munn. Slík eitrun getur leitt fólk
með bráðaofnæmi til dauða,
en ekki er vitað um svo al-
varlegt tilfelli á Íslandi.
Fólki er því ráðlagt að
halda sig frá búunum
og leita sérfræðiað-
stoðar til að eyða þeim.
Holugeitungur
grimmastur
Guðmundur segir að á Ís-
landi séu fjórar tegundir gei-
tunga; holugeitungur, trjágeitung-
ur, húsageitungur og roðageitungur,
sem er afar sjaldgæfur. „Trjágeitung-
urinn kemur fyrstur en holugeitung-
urinn mánuði seinna og er lengur
fram á haustið á sveimi. Holugei-
tungurinn er talinn árásargjarnast-
ur þessara tegunda og er jafnframt
algengastur hér á landi,“ segir hann.
Allar tegundir geitunga hér á landi
vinna bú sín úr trjákvoðu og sækja
meira í sumar trjátegundir en aðr-
ar. „Þess vegna er oft krökkt af gei-
tungum í sumum görðum þó búið
leynist ef til vill í næsta garði,“ seg-
ir hann. Guðmundur segir ýmsa
fagurfræðinga telja að bú holugei-
tungsins séu fallegust en þau hafa
sexstrendingslaga hólf innan í bú-
inu sjálfu sem er nær alltaf fullkom-
in 360° kúla.
sætar hunangsflugur
Hunangsflugan hefur fyrir löngu
tryggt búsetu sína á Íslandi og fólk
virðist almennt hafa vanist henni.
Bú hunangsflugunnar eru yfir-
leitt minni en geitungsins og líkjast
helst brúnum hnetukögg-
lum. „Þau fara oft-
ast framhjá fólki vegna smæðarinn-
ar og vegna þess að mun færri flugur
eru í hverju búi,“ segir Guðmundur
og bætir því við að flestum þyki þær
sætar og meinlausar í samanburði
við geitungana. Þeim eigi fólk hins
vegar eftir að venjast.
algjör sprenging í störum
Spurður um ástand lífríkisins nú
í vor segir Guðmundur að það sé í
miklum blóma. „Mikið hefur bor-
ið á tilkynningum um roðamaur og
köngulær, en þó mest um óþæg-
indi vegna stara sem hefur fjölgað
sér grimmt á undanförnum árum.
Starinn byggir sér gjarnan hreið-
ur í húsaskyggnum sem auðveldar
flónum sem lifa á honum að kom-
ast í beina snertingu við fólk. Eins
geta flærnar borist inn með húsdýr-
um eins og köttum og hundum. Bit-
in geta valdið miklum óþægindum
og kláða en yfirleitt dugar þrifnað-
ur og eitrun til að losna við vágest-
inn,“ segir hann en flóin heldur sig
í hreiðrinu með ungunum en fer á
skrið þegar þeir eru flognir á burt.
„Stundum heldur hún sig í dvala í
eitt, tvö ár þangað til kjöraðstæður
myndast og því er best að eitra sem
fyrst eftir að hreiðrið er tómt. Flærn-
ar gera mannamun sem stafar lík-
lega af mismunandi sykurmagni í
blóði,“ segir hann.
Vill eyða staranum
Guðmundur segir að meindýra-
eyðar vilji vinna bug á þeirri
plágu sem starinn er. „Félag
meindýraeyða vill að eitt-
hvað sé gert varðandi út-
breiðslu starans. Hann
flokkast sem garðfugl
og er alfriðaður. Star-
inn er hins veg-
ar mjög duglegur
fugl og sækir fæði
meðal annars á
ruslahauga
þar sem
hann heldur sig í þús-
undatali. Flærnar sem
fylgja honum eru vaxandi
vandamál og afleitt að fuglinn sé
friðaður. Oft væri nauðsynlegt að
fjarlægja fugla úr görðum til að friða
langþreytt heimilisfólk frá þessum
vágesti,“ segir Guðmundur.
Í upphafi kom starinn til landsins
sem farfugl en er nú bæði staðfugl
og farfugl. Lítið er vitað um stofninn
og vistferðir hans. Engar íslenskar
rannsókn- ir hafa verið gerðar á
áhrif- um hans á lífríkið
„Dæmi eru um að fólk
taki greiðslu fyrir að
eitra í görðum með
vatni eða öðrum gagns-
lausum efnum.“
GEITUNGARNIR KOMA
Þó óvenju lítið hafi verið af geitungum það sem af er sumri segja
meindýraeyðar að fólk þurfi ekki að örvænta. Þeim muni fjölga
hratt nú þegar hlýtt er orðið í veðri. guðmundur óli scheving, for-
maður Félags meindýraeyða, segir að geitungar hafi nú tekið sér
bólfestu á Ísafirði í miklum mæli. Hann segir flær úr störum vax-
andi vandamál og vill róttækar aðgerðir til eyðingar þeirra. Þá seg-
ir hann að mörg dæmi séu um að réttindalausir aðilar taki að sér
eyðingu meindýra og noti jafnvel hreint vatn til að „eitra“ garða.
trjágEitungabú Meindýra-
eyðar hvetja fólk til að kalla til
sérfræðinga til að eyða búunum.
smári sVEinsson mEindýraEyðir
segir geitunga hafa valdið usla á ísafirði og
á snæfellsnesi.
trjágeitungur
hunangsfluga
Trjágeitungur vaknar
fyrstur til lífsins á vorin.
Meindýraeyðir segir hunangs-
flugur meinlausar og sætar
borið saman við geitunga.