Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Side 30
Frá Nígeríu
til Noregs
Í Noregi er í bígerð að setja lög sem banna kaup á kynlífsþjónustu. Upp á
síðkastið hefur vændi orðið meira áberandi með tilkomu nígerískra kvenna
sem koma til landsins í von um betri lífskjör en enda sem vændiskonur á
götum norskra borga. Konurnar koma frá Nígeríu í gegnum Ítalíu og Spán
með aðstoð milliliða og á áfangastað eru þær skuldum hlaðnar.
föstudagur 13. júní 200830 Helgarblað DV
Örbirgð og snautlegar framtíðar-
horfur gera að verkum að nígerísk-
ar konur koma til Evrópu í von um
betra líf. Margar hverjar skilja eft-
ir fjölskyldu sína og hyggjast senda
fé heim til að létta byrðina og reyna
auk þess að koma sér upp sjóði til
mögru áranna. En þetta er flóknara
en það virðist.
Fjölda nígerískra kvenna bíð-
ur það hlutskipti að falbjóða blíðu
sína á götum borga víða í Evrópu og
leiðarlok margra eru götur norskra
borga.
Það er ekki hlaupið að því fyrir
konur frá Nígeríu að fá vegabréfs-
áritun inn á Schengen-svæðið. Af
þeim sökum leita þær til milliliða
og bakhjarla sem fá himinháar upp-
hæðir fyrir að smygla þeim til Evr-
ópu. Með falskt vegabréf í farteskinu
fá konurnar landvistar- og atvinnu-
leyfi í Schengen-löndum á borð við
Spán og Ítalíu og hálfur sigur er unn-
inn. Með slík réttindi upp á vasann
er ekkert því til fyrirstöðu að þær
sæki Noreg heim sem ferðamenn og
geta þær dvalið þar um þriggja mán-
aða skeið.
Þrautin þyngri
Eftir að hafa lagt að baki langt og
erfitt ferðalag frá Nígeríu til Norður-
Afríku og farið þaðan með flugvél
eða báti til Evrópu, í flestum tilfell-
um beint til Spánar eða Ítalíu, og síð-
an með flugi til Noregs tekur alvaran
við. Konurnar frá Nígeríu hafa yfir-
leitt keypt „pakka“ af milliliðum sín-
um. Pakkinn inniheldur fölsk skilríki
og flugmiða og verðið er hátt.
Þegar til Noregs er komið nemur
skuld kvennanna við bakhjarla sína
allt að fimm milljónum króna og þó
ekki sé gefið að bakhjarlarnir neyði
konurnar til vændis verður það oftar
en ekki þrautalendingin.
Það er ekki fyrr en eftir að kom-
ið er til Noregs að upp rennur fyrir
nígerísku konunum að skuld þeirra
við milliliðinn er gríðarhá. Að fram-
fleyta sér í landinu er ekki gefið og
sem ferðamenn eiga konurnar ekki
í mörg hús að venda til að finna
sómasamlega vinnu, og því fer svo
að næsta götuhorn verður vinnu-
staður þeirra. Að baki öllu þessu er
vilji kvennanna til að bjarga sér og
sínum úr klóm örbirgðar í heima-
landinu. Sumar kvennanna verða
jafnvel kvendólgar, eða maddömur,
og ráða til sín aðrar nígerískar kon-
ur til starfa, eftir að hafa greitt niður
skuld við bakhjarlana og komið sér
upp staðgóðri þekkingu á markaðn-
um.
Fjölgun nígerískra kvenna
Samtök sem fylgjast með vændi
í Noregi merkja verulga fjölgun ní-
gerískra kvenna á götum Óslóar.
Það sem af er ári hafa þau skráð þrjú
hundruð sextíu og átta nígerískar
vændiskonur í Ósló samanborið við
eitt hundrað áttatíu og sex konur á
sama tíma í fyrra.
Nú er svo komið að vændiskon-
ur frá Nígeríu eru ráðandi á götum
Óslóar, Björgvinjar og Stafangurs og
selja auk þess þjónustu sína í íbúð-
um í Þrándheimi og Tromsö og víð-
ar þar sem baráttan um viðskipta-
vini er ekki eins hörð. Hafa þær í
síauknum mæli numið land í smá-
bæjum og þéttbýliskjörnum í ná-
grenni stærri bæja í Noregi.
Markmið norskra stjórnvalda,
leynt og ljóst, er að koma nígerískum
konum heim til Nígeríu. Í viðleitni
sinni hafa stjórnvöld boðið upp á
fría ferð heim og tuttugu og fimm
þúsund norskar krónur, um þrjú
hundruð og áttatíu þúsund íslensk-
ar krónur, í styrk svo þær geti komið
undir sig fótunum í heimalandinu.
En konurnar eru ekki ginnkeyptar
fyrir slíku boði. Konurnar vilja frek-
ar snúa til Ítalíu eða Spánar þar sem
þær hafa landvistar- og atvinnuleyfi,
en ótti við bakhjarlana og skuld-
binding gagnvart fjölskyldu í Níger-
íu gerir að verkum að þeim hugnast
ekki heimför, í það minnsta ekki fyrr
en skuldin hefur verið greidd og þær
hafa komið sér upp höfuðstól sem
þær geta tekið með sér heim til Ní-
geríu.
Bann við kaupum á kynlífi
Í Noregi er í bígerð að banna
kaup á kynlífsþjónustu og vilja sum-
ir skella skuldinni á nígerísku vænd-
iskonurnar. Það er ekki eingöngu sú
mikla fjölgun þeirra sem þessi skoð-
un grundvallast á. Sú staðreynd að
nígerísku konurnar veita ódýrustu
þjónustuna vegur einnig þungt, því
með lægra verði eykst eftirspurnin.
Verð á þjónustu nígerísku kvenn-
anna er um þrjú þúsund íslenskar
krónur og langt undir því meðallagi
sem tíðkast á kynlífsmarkaðinum.
Auk þess eru þessar konur sýnilegri
í samfélaginu en aðrir hópar sem
starfa á kynlífsmarkaðinum.
Talið er að um eitt þúsund og
fimm hundruð manns stundi vændi
innan veggja heimila, klúbba eða
annars staðar fjarri skarkala gatna
í borgum Noregs og af þeim fjölda
eru um sextíu prósent norsk, en
fjörutíu prósent koma annars stað-
ar frá. Meðalverð þjónustu er á milli
tuttugu og þrjátíu þúsund krónur.
Fjöldi þeirra sem selja sig á götum
úti í fjórum stærstu borgum Nor-
egs er um eitt þúsund og tvö hundr-
uð, og verð á þjónustu þeirra er að
meðaltali um sjö þúsund og fimm
hundruð krónur. Engar vændiskon-
ur eru ódýrari en þær nígerísku.
Inn af götunni
Á meðal þeirra fyrstu sem komu
til norskra borga til að stunda vændi
á götum úti voru stúlkur frá Eystra-
saltslöndunum; Eistlandi, Lettlandi
og Litháen. Með tíð og tíma urðu
þær sjálfstæðar og urðu ósýnilegar
og stunduðu viðskipti sín með til-
stilli auglýsinga í blöðum og án af-
skipta melludólgs. Sömu sögu má
segja um stúlkur frá Póllandi og
Tékklandi.
Auk nígerísku kvennanna er á
götum úti fjöldi stúlkna frá nýju Evr-
ópusambandslöndunum, Rúmen-
íu og Búlgaríu, sem gerðar eru út af
melludólgum og eru að stærstum
hluta fórnarlömb mansals og um
áttatíu prósent þeirra eru sígauna-
stúlkur sem jafnvel eru sendar í
vændi af eigin stórfjölskyldu.
Í ljósi áætlaðs fjölda þeirra sem
stunda vændi í Noregi telur lögregl-
an að varlega áætlað velti markað-
urinn um fjórum og hálfum millj-
arði íslenskra króna. Stærstur hluti
veltunnar, eða um þrír milljarð-
ar, tilheyrir innimarkaði sem sam-
anstendur af klúbbum, nuddstof-
um, auglýsingum og því um líku.
Um einn og hálfur milljarður er velt-
an í götuvændisgeiranum. Rann-
sókn hefur leitt í ljós að þrettán pró-
sent norskra karlmanna hafa keypt
sér kynlífsþjónustu.
KolBeInn ÞorsteInsson
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Það er ekki fyrr en eftir að
komið er til Noregs að upp
rennur fyrir nígerísku kon-
unum að skuld þeirra við
milliliðinn er gríðarhá.
til evrópu
n Konurnar koma frá nígeríu til
noregs í gegnum spán og ítalíu. til
þess hafa þær keypt „pakka“ sem
inniheldur fölsk skilríki og
flugmiða af millilið.
laNdvistarleyFi
n flestar kvennanna verða sér úti
um varanlegt landvistarleyfi á
ítalíu eða spáni og verður þeim
þar með kleift að fara sem
ferðamenn til noregs eða annarra
landa innan schengen-svæðisins.
til Noregs
n flestar koma konurnar til noregs
með flugi.
Fram og til baka
n Þegar til noregs er komið enda
konurnar oftar en ekki í götu-
vændi, þrátt fyrir áform um annað.
Með reglulegu millibili fara þær
aftur til ítalíu eða spánar því þær
geta lengst verið í noregi í þrjá
mánuði samfellt.
skuldiN greidd
n Þegar konurnar hefja störf í
noregi senda þær fé til fjölskyld-
unnar í nígeríu og greiða niður
skuld við milliliði. sú skuld hleypur
á milljónum íslenskra króna.