Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Side 42

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Side 42
Helgarblað DVföstudagur 13. júní 200842 HIN HLIÐIN Hræddur við frægt fólk Nafn og aldur? „Jón Trausti Sigurðarson, 26 ára.“ Atvinna? „Gef út Reykjavík Grapevine, les lögfræði við HÍ, umboðs- maður Sprengjuhallarinnar og Slugs og síðast en ekki síst forsöngvari hljómsveitarinn- ar The Hotness.“ Hjúskaparstaða? „Ég á kærustu og bý með henni.“ Fjöldi barna? „Ég á ekki börn.“ Áttu gæludýr? „Nei. Átti kött þegar ég var lítill sem var „sendur í sveit“. Það var skrítið þar sem ég bjó í sveit á þessum tíma. Kannski var hann sendur í aðra sveit. Ég vona að ég muni hitta hann aftur ein- hvern tímann.“ Hvaða tónleika fórst þú á síðast? „Bob Dylan í Laugardalshöll. Kunni vel að meta.“ Hefur þú komist í kast við lögin? „Var áminntur af löggunni fyrir að hengja tíbetskar bænaveifur fyrir utan kín- verska sendiráðið, út af því að ég er uppreisnarseggur og á mótþróaskeiðinu.“ Hver er uppáhaldsflíkin þín og af hverju? „Tvær. Úlpa sem ég á sem er alveg eins og svefnpoki. Gott í útilegur. Og síðan ullar- nærbrók. Nota hana aldrei, en tilhugsunin um hana veit- ir mér öryggistilfinningu.“ Hefur þú farið í megrun? „Nei. Alls ekki. Slíkt er ekki gert í sveitinni. Já, ég er úr sveitinni.“ Hefur þú tekið þátt í skipu- lögðum mótmælum? „Já, ég er búinn að segja ykkur að ég er uppreisnar- seggur.“ Trúir þú á framhaldslíf? „Að sjálfsögðu. Hvað á svona spurning eiginlega að þýða?“ Hvaða lag skammast þú þín mest fyrir að hafa haldið upp á? „Titanic-lagið.“ Til hvers hlakkar þú núna? „Afmælisdags Reykjavík Grapevine föstudaginn 13. júní. Blaðið er 5 ára og í tilefni af því verður haldin svakaleg veisla í Viðey, auk þess sem gefið verður út sérstakt afmælisblað með þematölunni fimm, með fimm úrvals ungum Íslendingum með ólíkan bak- grunn í ritstjórastólnum.“ Afrek vikunnar? „Þegar afmælisblaðið er komið út. Þá er það afrek og afrakstur viku og vikna.“ Hefur þú látið spá fyrir þér? „Nei.“ Spilar þú á hljóðfæri? „Já. Ég er svona jafnlélegur á nokkur hljóðfæri.“ Styður þú ríkisstjórnina? „Stundum.“ Hvað er mikilvægast í lífinu? „Súrefni. Hata það ekki.“ Hvaða fræga einstakling myndir þú helst vilja hitta og af hverju? „Ég er hræddur við frægt fólk. Myndi aldrei þora að tala við það.“ Ertu með tattú? (hvernig tatttú og hvað táknar það)? „Ég er með tattú. Á því stendur blaðamaður. Verst að ég er ekki blaðamaður.“ Hefur þú ort ljóð? „Já.“ Hverjum líkist þú mest? „Ég veit það ekki. Mér finnst allt fólk fallegt nema fílamaðurinn. Væri ekki til í að líkjast honum.“ Ert þú með einhverja leynda hæfileika? „Ég get hljómað eins og fiska- búr. Held ég fái aldrei vinnu við það samt.“ Af hverju stafar mannkyninu mest hætta? „Andlega þá? Fyrir internetið; ólæsi. Eftir internetið; leskunn- áttu.“ Á að leyfa önnur vímuefni en áfengi? „Ég vil bara leiðrétta hugtaka- notkun. Áfengi og tóbak eru ekki vímuefni heldur nautnalyf.“ Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn? „Óumdeilanlega Laugardalur í Árnessýslu.“ Jón TrausTi sigurðarson, umboðsmaður sprengJuhallarinnar og markaðssTJóri grapevine, undirbýr fimm ára afmælisúTgáfu blaðsins. hann er uppreisnarsegg- ur sem Tekur ekki í mál að fara í megrun og fílaði TiTanic-lagið í gamla daga. GARÐÚÐUN - GEITUNGAR - ROÐAMAUR - MÝS - KÖNGULÆR GOLF & GAMAN Golfvísur og gamanmál frá Kristjáni Hreinssyni, eins og honum einum er lagið. „Frumleg, fyndin og frábær skemmtun” - Guðmundur Arnarsson, ritstjóri Golfblaðsins „Það mun sitthvað þessu líkt um þjóðlíf hafa flogið Hér er sjálfsagt eitthvað ýkt en engu mun þó logið“ - Kristján Hreinsson „Fyndin og frábær lýsing á gleðinni sem golfið geymir.” - Jón Ásgeir Eyjólfsson, forseti Golfsambands Íslands Núna eru þau 52 kílóin sem eru farin! Þar af 30 kíló á 5 mánuðum. Hafðu samband og fáðu nánari upplýsingar í síma 891 6264 eða á allax@simnet.is Sendum fríar prufur og höfum vigtunar og stuðningskvöld í boði fyrir alla, og einstaklingsviðtöl eftir umtali. allax@simnet.is. Lr-Henning kúrinn hefur slegið í gegn Kúrinn er hraðvirkur og árangursríkur Einstaklega ríkur af bætiefnum Betri svefn, aukin orka, bætt vellíðan Ekkert blóðsykurflökt og margt fleira.        HPI Savage XL fjarstýrður bensín torfærutrukkur, sá stærsti og öflugasti til þessa. Nethyl 2, sími 587-0600, www.tomstundahusid.is SAVAGE XL Nýkominn H ild ur H lín Jó ns dó tt ir / h ild ur @ dv .is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.