Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Blaðsíða 64
Alþjóðleg þróunarráðstefna
Apple-fyrirtækisins var haldin í
vikunni í San Francisco í Banda-
ríkjunum. Mikil spenna var með-
al þátttakenda á undan kynningu
Steves Jobs, forstjóra Apple, en
ráðstefnan er jafnan notuð sem
vettvangur til að kynna nýjar vör-
ur eða þjónustu sem fyrirtækið
er að setja á markað. Í þetta sinn
skyggði hinn nýi iPhone 3G á allt
annað enda hefur ein tegund
símtækja sjaldan eða aldrei vald-
ið jafnmiklu tilfinningauppnámi
meðal almennings. Má geta í því
sambandi að hópur Íslendinga
hefur þegar stofnað undirskrifta-
vefsíðu til að þrýsta á fyrirtækið
að selja símann hérlendis en eins
og kom fram í kynningu Jobs er
Ísland ekki á heimskorti Apple
yfir þau lönd þar sem síminn fer
í sölu í júlí næstkomandi. Ekki
er þó öll von úti enn því aðeins
tveimur dögum eftir kynninguna
hafa fjögur ný lönd (Holland,
Panama, Qatar og Venesúela)
bæst við hin upphaflegu sjötíu og
má því ætla að Apple haldi áfram
að bæta við löndum ef viðunandi
samningar nást.
Exchange og GPS
Og hvað er svona merkilegt
við þennan síma? spyrja menn
og klóra sér í hausnum. Jú, Apple
hefur tekist að setja nýtt viðmið
með útliti og viðmóti iPhone.
Flóknar aðgerðir eru gerðar ótrú-
lega einfaldar í framkvæmd með
tilkomu snertiskjásins og fingra-
hreyfinga sem menn tileinka sér
á skammri stundu. Og með til-
komu 3G-útgáfunnar má búast
við að mikill hluti Blackberry-not-
enda komi til með að skipta yfir
í iPhone þar sem nú er kominn
stuðningur við Exchange-póst-
þjóna sem eru helsta undirstaða
tölvusamskipta á fyrirtækjasviði
í heiminum. Auk þess að bjóða,
eins og nafnið gefur til kynna,
upp á 3G - skartar hin nýja út-
gáfa símans GPS-staðsetningar-
tækni með hjálp Google Maps en
einnig verður hægt að fá sérstak-
an GPS-hugbúnað frá TomTom,
eins stærsta framleiðanda stað-
setningartækja í Evrópu.
AppStore er enn ein nýjung-
in í iPhone en það gerir kleift að
sækja og kaupa forrit í símann.
Alls kyns hugbúnaður verður til
staðar eins og leikir, ýmis tól og
spjallforrit. Þar að auki verða
skjöl aðgengilegri, en nú verð-
ur hægt að opna öll Office- og
iWork-skjöl ásamt því að breyta
þeim, afrita og bæta. Nú er einn-
ig mögulegt að ná í myndir af
netinu og vista til að geyma eða
senda áfram úr símanum.
MobileMe
En það var ekki bara iPhone
sem kynntur var á ráðstefnunni.
MobileMe er ný þjónusta sem
mun taka við af Mac-þjónustu
Apple og er í raun „Exchange for
the rest of us“ eins og Phil Schill-
er, einn yfirmanna Apple, orðaði
það á kynningunni. Þjónustan
gengur út á að í hvert sinn sem þú
færð póst, breytir/bætir við teng-
ilið/viðburði í Address Book, iCal
eða Outlook í einhverju af tækj-
um þínum (getur verið Apple-
tölva, iPhone eða PC-tölva) send-
ir MobileMe upplýsingarnar í öll
önnur tæki þín í gegnum svokall-
að ský og uppfærir samstundis
með þeim breytingum sem gerð-
ar hafa verið.
Kerfið virkar með öllum
helstu forritunum (Mail, Address
Book, iCal og Outlook) á iPhone,
Mac OS X eða Windows en auk
þess má gera breytingar að sama
skapi gegnum vefsíðu MobileMe;
www.me.com sem gegnir sama
hlutverki og þessi forrit. Þjónust-
an verður aðgengileg í byrjun júlí
og verðmiðinn er 99 dollarar á ári
eða tæpar átta þúsund krónur.
Snjóhlébarðinn kemur 2009
Eins og hefur verið venja und-
anfarin ár á þróunarráðstefnu
Apple fá hugbúnaðarþróend-
ur prufueintak af næsta stýrikerfi
Apple: Snow Leopard, en það mun
koma á markað um mitt næsta ár.
Mikil leynd hvílir alla jafna yfir eig-
inleikum nýrra stýrikerfa en fyrir-
tækið hefur þegar gefið upp að í
stað þess að koma með tugi eða
hundruð nýjunga muni áherslan
verða lögð á að gera kerfið léttara
í notkun og minnka þannig þær
auknu vélbúnaðar- og vinnslu-
minniskröfur sem jafnan fylgja út-
gáfu nýrra stýrikerfa. Apple segist
einnig hafa þróað nýja fjölkjarna-
vinnslu sem gerir kleift að vinna
með fleiri örgjörva en áður auk
þess að samnýta afl skjákortsins
með annarri vinnslu kerfisins. Af
öðrum nýjungum má nefna fullan
stuðning við Exchange-þjóna og
möguleika til að nýta áður óþekkt
magn af vinnsluminni en þróun
Apple á 64 bita tækni hefur gert
það fræðilega mögulegt að nýta
allt að 16 TeraBæti af minni sem er
um 500 sinnum meira en þekkist í
dag. Framtíðin virðist því björt hjá
fyrirtækinu næstu misseri.
palli@dv.is
Apple-fyrirtækið undir stjórn Steves Jobs hefur hægt en örugglega nælt sér í æ
stærri bita af tölvu- og tækjamarkaðinum. Nýjar vörur og þjónusta voru kynntar í
vikunni á alþjóðlegri þróunarráðstefnu fyrirtækisins.
Palm Centro
loks á markað
Eftir nokkra bið er hinn nýi sími/
lófatölva Palm-fyrirtækisins loks
að koma á markað. Tækið ber
nafnið Centro og skartar
QWERTZY-lyklaborði, snertiskjá
og 312MHz Intel XScale-örgjörva.
Síminn keyrir nú Palm OS 5.4.9
stýrikerfi í stað Windows Mobile
sem hlaut ekki blíðar móttökur
notenda í fyrri útgáfum. Síminn
kemur til með að kosta 99 dollara
hjá stærstu símafyrirtækjunum
vestanhafs sem er sama verð og á
iPhone-síma Apple-fyrirtækisins.
FösTUdagUr 13. júní 200864 Helgarblað DV
Tækni
Umsjón: PÁLL sVanssOn palli@dv.is
KOMInn í vERSlAnIR
Biðin er á enda. metal gear solid 4 er kominn í verslanir
um heim allan og líka hér á íslandi. Þetta er síðasti og af
mörgum talinn besti metal gear solid-leikurinn. sem fyrr
er maður í hlutverki hins grjótharða snake en að þessu
sinni berst hann gegn stórfyrirtækjum sem heyja stríðin.
Þriðja heimsstyrjöldin blasir við og snake er sá eini sem
getur stöðvað ósköpin. Leikurinn býður upp á ótrúlega
fjölbreytta spilun. allt frá því að vaða uppi með vélbyssuna
yfir í að læðast á milli lappanna á óvininum.
nintendo enn
á toPPnum
nintendo heldur áfram að selja
mest á leikjatölvumarkaðnum.
Samkvæmt vgchartz.com selst
nintendo DS best, síðan Wii, PSP,
PS3 og loks Xbox 360. Á síðunni
segir einnig að Wii eigi fjóra af
fimm söluhæstu leikjum heims
um þessar mundir en í fjórða sæti
er GTA4 á Xbox 360. Það má þó
búast við því að PS3 sæki inn á
þennan lista nú þegar MSG4 er
kominn út.
APPLE
MEÐ NÝJUNGAR
Þrívíddar-
skjár í ten-
ingsformi
Japanir eru að þróa nokkurs
konar skjátening sem gefur þann
möguleika að geta skoðað ýmsa
hluti í raunverulegri þrívídd.
Teningurinn er aðeins 10
sentímetrar að stærð og gæði
upplausnar ekki mikil. Stefnt er á
að innan þriggja ára verði hægt
að setja teninginn á markað í
viðunandi stærð og upplausn.
Gert er ráð fyrir að í tækinu verði
innbyggt þráðlaust kerfi sem geri
kleift að senda í það myndgögn
og aðrar upplýsingar. Helsti
markhópur þrívíddarteningsins
er vísindamenn, hönnuðir og
tölvuleikjaþróendur.