Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Side 70

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Side 70
föstudagur 13. júní 200870 Tíska DV Dagsetningar staðfestar Nú er um að gera að fara að panta sér flugmiðana til London en dag- setningar tískuvikunnar í London í haust hafa nú verið staðfest- ar. Tískuvikan sjálf kemur til með að fara fram þann fjórtánda til nítjánda sept- ember á Nátt- úrufræðisafn- inu í London. Í kjölfarið verður tískuhelgin í London sem er með stærstu tískuviðburðum heims en hún fer einnig fram á Náttúru- fræðisafninu sem er einstaklega glæsileg og vel staðsett bygging. Nú þegar hafa margir af fremstu hönnuðum heims boðað komu sína til London á tískuhelgina en þar gefst gestum kostur á að festa kaup á hátískufatnaði og fylgi- hlutum á lækkuðu verði. samfesting- ar í sumar Stuttbuxnasamfestingarnir virð- ast ætla að ryðja sér rúms í sum- ar en Mary Kate Olsen og Jessica Simpson eru meðal þeirra sem eru farnar að þora að skarta slík- um samfestingi úti á lífinu. Sam- festingar eru kannski ekki beint klæðilegustu flíkur sem hægt er að hugsa sér og alls ekki allir sem komast upp með að klæðast ein- um slíkum en ef þú hins vegar ert tískufrík sem vilt vera með á nótunum í sumar er eins gott að þú farir að finna þér hinn eina rétta stuttbuxnasamfsesting. fegrunar- ráð P. DiDDy P. Diddy hefur nú afhjúpað leyndarmál sitt um það hvernig hann haldi sér í formi. Rappar- inn segist taka sér tvo tíma í dag fyrir sjálfan sig með því að fara í gott bað og dansa svo um heimili sitt nakinn. „Ég er verri en allar konur sem ég hef verið með í gegnum tíðina. Ég þarf líka minn tíma til að halda mér fallegum og í formi. Ég nudda svo á mig rakakremi og rakspíra um leið og ég er kominn upp úr baðinu, á meðan ég er enn blautur svo ilmurinn festist betur við húð- ina. Til að þurrka mér nota ég ekki handklæði heldur dansa ég nakinn um heimilið á meðan ég hlusta á James Brown.“ tíska Einstakt skart dömur fá aldrei nóg af skarti og þess vegna er frábært að detta inn á heimasíður eins og Pequitobun.com þar sem hægt er að kaupa æð-islega, sérvalda vintage-skartgripi. skartgripirnir eru allir einstakir og aldrei neinir tveir eins. Heimasíðan er hugguleg og þægilega uppsett þar sem þú getur leit-að eftir því sem hugurinn girnist. Hálsmen, eyrnalokk-ar og armbönd úr ekta silfri og gulli frá tvö þúsund krónum upp í sextíu og fimm þúsund krónur. katrín Halldóra sigurðardóttir ætlar að skemmta gestum og gangandi í miðborg- inni með Götuleikhúsinu í sumar. Hún setur einnig lit sinn á borgina með skrautleg- um og skemmtilegum klæðaburði og hefur meðal annars þróað með sér karakterinn Litríkan sem aldrei er langt undan. Djammfötin Innifötin LopapEysa: rauði krossinn kLútur: Keyptur á Hróarskeldu í fyrra BoLur: Kolaportið LEggings: Keyptar í danmörku sokkar: Eðalsokkar úr Bónus skór: Converse, keyptir á spáni „Það má eiginlega segja að þetta sé leikaralopapeysan mín þar sem ég nota hana mjög mikið í vinnunni minni í götuleikhúsinu. Hún er í miklu uppáhaldi hjá mér því hún er svo falleg og notaleg. Hún er svo stór að maður hálfpartinn hverfur inn í hana en þar sem ég vil nú ekki hverfa hneppi ég aldrei öllum tölunum á peysunni.“ Vinnufötin inniskór: jólagjöf frá Þóru systur sokkaBuxur: Keyptar í danmörku kjóLL: Erfðagóss frá ömmu Kötu kLútur: Búinn til af Boggu frænku „Þegar ég er heima að lesa amadeus sem ég glugga mikið og oft í fer ég í huggulegan og þægilegan fatnað og kem mér fyrir í litla leshorninu mínu. Klúturinn sem ég er með er í miklu uppáhaldi enda búinn til af Boggu frænku sem er mikil listakona.“ kjóLL: Keyptur í topshop fyrir útskriftina Ermar með fjöðrum: Eign sambýlismanns Kötu sokkaBuxur: Keyptar í danmörku skór: Zara VEski: Keypt á götumarkaði úr: jólagjöf frá mömmu og pabba „Þegar ég fer út á lífið hætti ég að vera kjáni og fer í fínu fötin. Mér finnst þessar ermar með fjöðrum alveg dásamlegar en þessa flík á sambýlismaður minn hann Hákon og ég fæ stundum afnot af henni þegar ég vil vera eitthvað sparileg.“ dV-myndir-Ásgeir Útidress Klæðir sig eftir sKapi kápa: afmælisgjöf frá Híu frænku Húfa: Keypt í danmörku trEfiLL: gamall trefill frá mömmu kjóLL: Keyptur á afmælisdaginn í danmörku í fyrra sokkaBuxur: Keyptar í danmörku skór: fókus „Ég klæði mig eftir því hvernig skapi ég er í frekar en eftir veðri. Oftast er það þá eitthvað litríkt og skemmtilegt en ég hef til dæmis þróað með mér karakter sem hetir Litríkur litli og er ávallt skammt undan þegar ég vel mér föt.“ Umsjón: Krista Hall Netfang: krista@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.